Fréttablaðið - 22.12.2020, Side 38
ÍÞRÓTTIR Kórónaveirufaraldurinn
setti strik í allt íþróttalíf á heims-
vísu. Íþróttalífið lamaðist í tvo mán-
uði en fór hægt og bítandi að hefjast
á ný yfir sumarið og þá yfirleitt án
áhorfenda. Í dag eru blikur á lofti
með að áhorfendur fái að komast
aftur á atburði á nýju ári en bakslag
gæti komið í veg fyrir það. Ekkert
varð úr Ólympíuleikunum né Evr-
ópumóti karla í knattspyrnu sem
áætlað er að fari fram næsta sumar.
Á árinu kvöddu tvær goðsagnir
skyndilega og áttu margir erfitt með
að meðtaka fréttirnar um að þessar
goðsagnir væru skyndilega látnar.
Önnur rós í hnappagat Þóris
Þórir Hergeirsson hélt áfram að
bæta við rósum í hnappagatið sem
þjálfari Noregs þegar norska liðið
varð Evrópumeistari í fjórða skiptið
undir hans stjórn. Noregur sigraði
ríkjandi meistara, Frakkland, í
úrslitaleik mótsins. Þórir hefur auk
þess að vinna Evrópumótið fjórum
sinnum sem aðalþjálfari Noregs
orðið Ólympíumeistari einu sinni og
heimsmeistari tvisvar. Þá var þetta
í 13. skipti sem hann er í brúnni hjá
norska liðinu í úrslitaleik á stórmóti.
Áður en hann varð aðalþjálfari Nor-
egs árið 2009 var hann svo aðstoðar-
maður Marit Breivik frá 2001 til
2009. Á meðan Þórir var aðstoðar-
þjálfari norska liðsins varð Noregur
Ólympíumeistari árið 2008 og þrí-
vegis Evrópumeistari. Þá því með
sanni segja að Noregur hafi verið
sigursæll á þeim tíma sem Þórir
hefur starfað fyrir norska hand-
boltasambandið.
Maradona og Kobe kvöddu
Undir lok ársins missti knatt-
spyrnuheimurinn einn sinn dáðasta
son þegar argentínska goðsögnin
Diego Armando Maradona féll frá.
Þessi frábæri leikmaður markaði
djúp spor bæði í heimalandi sínu,
þar sem hann hann var þjóðhetja,
sem og í Napólí þar sem hann spil-
aði á hátindi ferilsins. Maradona
var magnaður á heimsmeistara-
mótinu árið 1986 þar sem hann
skoraði fimm mörk Argentínu sem
varð heimsmeistari og lagði upp
önnur fimm. Engin leikmaður hefur
komið að jafn mörgum mörkum
í sögu heimsmeistaramótsins. Þá
varð hann tvisvar sinnum ítalskur
meistari sem leikmaður Napoli en
það var í fyrstu skiptin sem Napoli
varð landsmeistari. Þá leiddi Mara-
dona liðið sömuleiðis til sigurs í
ítalska bikarnum og í Evrópukeppni
félagsliða en hann var í guðatölu í
Napólí.
Kör f ubolt agoðsög nin Kobe
Bryant lést óvænt í upphafi þessa
árs þegar þyrla með Kobe, dóttur
hans og sjö öðrum fórst í Los
Angeles. Þyrlan var að ferja fólkið
í körfuboltabúðir Kobe þegar
þyrlan brotlenti og létust allir um
borð samstundis. Það kom strax
í ljós hversu djúp spor Kobe voru í
íþróttaheiminum og þá sérstaklega
í körfuboltanum eftir að fregnir
bárust um að hann hefði látist.
Kobe var minnst út um alla borg
enda goðsögn í Los Angeles eftir
að hafa fært liðinu fimm meistara-
titla sem leikmaður Lakers og stiga-
hæsti leikmaðurinn í sögu félags-
ins. Hann er talinn einn af bestu
Tvær goðsagnir féllu skyndilega frá
Heimsfaraldurinn setti strik í íþróttalífið á heimsvísu og var nánast allt íþróttastarf stöðvað í tvo mánuði fyrr á árinu. Þegar keppni
hófst á ný voru nokkur lið og einstaklingar sem stóðu upp úr. Tvær af helstu íþróttagoðsögnum undanfarinna áratuga létust óvænt.
Þórir gerði Noreg að Evrópumeisturum í fjórða sinn stuttu fyrir jól. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Aðdáendur
Kobe og Lakers
eru duglegir að
minnast hans
og dóttur hans,
Giönnu, með
blómvöndum
við listaverk af
feðginunum í
Los Angeles.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Þrjátíu ára bið Liverpool eftir titlinum lauk í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Sinclair bætti met með 185. marki sínu fyrir Kanada í ár.
körfuboltamönnum allra tíma og
lék allan sinn feril með Lakers frá
því að hann kom úr menntaskóla.
Minning Kobe var heiðruð það sem
eftir lifði tímabilsins í NBA og nýttu
fremstu íþróttamenn heims í öðrum
íþróttum fjölmörg tækifæri til að
heiðra minningu Kobe.
Þrjátíu ára bið lokið
Liverpool batt enda á þrjátíu ára
bið sína eftir enska meistaratitl-
inum í knattspyrnu karla á árinu
sem er að líða. Stuðningsmenn
liðsins voru reyndar hræddir um
að kórónaveiru faraldurinn yrði til
þess að koma í veg fyrir að titillinn
kæmi í hús en ekkert lið gat stöðvað
Liverpool. Liðið vann deildina með
mesta mun sem gert hefur verið
í sögu ensku efstu deildarinnar.
Ekkert lið hefur unnið deildina jafn
snemma og Liverpool, það er þegar
sjö umferðir voru eftir af deildinni.
Þá jafnaði Liverpool metið yfir flesta
sigra í efstu deild á einu keppnis-
tímabili með því að hafa betur í 30
leikjum. Fagnaðarlætin hér heima
voru lágstemmd en þau bíða betri
tíma.
Lakers jafnaði met Celtics
LeBron James fór fyrir liði Los
Angeles Lakers sem vann sinn fyrsta
meistaratitil í tíu ár og jafnaði með
því met Boston Celtics sem sigur-
sælasta félag NBA-deildarinnar með
sautján meistaratitla. Þetta var um
leið fjórði meistaratitill LeBron með
þriðja félaginu. Líkt og aðrar deildir
fann NBA fyrir áhrifum kóróna-
veirufaraldursins og lá keppni
niðri í tæpa fimm mánuði áður en
hafist var handa að nýju í búbblu í
Orlando.
Leikmenn létu rödd sína heyrast í
réttindabaráttu þegar þeir neituðu
að spila og íhuguðu að ljúka tíma-
bilinu án meistara eftir morðið á
Jacob Blake. Deildin vildi senda
sterk skilaboð í baráttunni gegn
lögregluofbeldi og fengu leikmenn
að kjósa réttindabaráttu til að aug-
lýsa aftan á treyjum sínum í úrslita-
keppninni í stað nafns.
Bardagi innan Barcelona
Það gekk mikið á hjá spænska knatt-
spyrnufélaginu Barcelona á þessu
ári, bæði innan vallar og kannski
enn frekar utan. Barcelona þurfti
að horfa upp á að Real Madrid varð
spænskur meistari. Þá féll liðið úr
leik í átta liða úrslitum spænska
konungsbikarsins og tapaði í Ofur-
bikarnum heima fyrir. Mesta niður-
lægingin var þegar Bayern München
gjörsigraði liðið 8-2 í átta liða úrslit-
um Meistaradeildar Evrópu. Eftir
þann leik var Quique Setien látinn
taka pokann sinn en hann hafði
tekið við liðinu af Ernesto Valverde
fyrr á árinu. Sumarið fór svo í það hjá
forráðamönnum Barcelona að sann-
færa Lionel Messi um að vera áfram
í herbúðum félagsins en Messi gagn-
rýndi þá sem stýra félaginu opinber-
lega í fyrsta skipti á ferli sínum. Það
tókst en Josep Maria Bartomeu lét af
embætti sem forseti Barcelona og öll
stjórn félagsins fylgdi fordæmi hans.
Ronald Koeman tók við þjálfun
liðsins í sumar og er liðið í kynslóða-
skiptum og svo virðist sem einhver
tími sé þar til það kemst í hæstu
hæðir á nýjan leik.
Á sama tíma blómstrar karlalið
þýska knattspyrnufélagsins Bayern
München undir stjórn Hans Flick.
Bayern München varð þýskur meist-
ari, vann þýska bikarinn og kórónaði
tímabilið með því að vinna Meistara-
deild Evrópu í sjötta skipti í sögu
félagsins. Pólski framherjinn Robert
Lewandowski var langmarkahæsti
leikmaður liðsins með 55 mörk en
hann var verðlaunaður fyrir frammi-
stöðu sína með því að vera valinn
besti leikmaður heims af Alþjóða-
knattspyrnusambandinu, FIFA.
Erfitt að bæta met Sinclair
Kanadíska landsliðskonan Christine
Sinclair bætti met Abby Wam bach
þegar hún skoraði tvívegis fyrir
Kanada í sigri á St. Kitts og Nevis í
undankeppni Ólympíuleikanna.
Með því tókst hinni 37 ára gömlu
Sinclair að bæta metið yfir flest mörk
í landsleikjum og stendur metið nú í
185 mörkum. Aðspurð út í Christine
sagði Dagný Brynjarsdóttir, fyrr-
verandi liðsfélagi hennar, auðvelt að
samgleðjast kanadíska sóknartengi-
liðnum. „Hún er búin að vera nálægt
metinu svo ofboðslega lengi, vantað
einhver 1-2 mörk og ég man að þegar
við fórum í landsliðsverkefni í fyrra
þá vonaðist maður eftir því að hún
myndi ná að slá metið. Það er því
auðvelt að samgleðjast henni þegar
það er farið að sjá í annan enda fer-
ilsins. Við reyndum að hvetja hana
áfram,“ sagði Dagný og bætti við:
„Það er mjög ólíklegt að einhver nái
að taka þetta met af henni úr þessu.“
Á sama ári var annað nýtt met bætt
þegar Chelsea greiddi metfé fyrir
danska markahrókinn Pernille
Harder frá Wolfsburg. Pernille sem
hefur verið ein besta knattspyrnu-
kona heims undanfarin ár, var valin
best að mati Evrópska knattspyrnu-
sambandins.
kristinnpall@frettabladid,is
hjorvaro@frettabladid.is
ERLENDAR ÍÞRÓTTIR 2020
2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R24 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT