Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.12.2020, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 22.12.2020, Qupperneq 42
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Ástkær sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Friðrik Hafsteinn Guðjónsson framkvæmdastjóri hjá Jens Árnasyni ehf., Miðleiti 7, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu Sléttuvegi sunnudaginn 20. desember. Útför auglýst síðar. Guðbjörg Sigríður Kristjónsdóttir Sjöfn Friðriksdóttir Snorri Sigurðsson Guðríður Óskarsdóttir Sigrún Snorradóttir Hafdís Björk Jensdóttir Ívar Freyr Hafsteinsson og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og vinur, Einar Þór Sigurþórsson rafvirki, Háamúla í Fljótshlíð, lést miðvikudaginn 16. desember á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Útförin verður í Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð miðvikudaginn 30. desember klukkan 13.00. Aðeins nánustu aðstandendur og vinir verða viðstaddir athöfnina en henni verður streymt á slóðinni: facebook.com/groups/utforeinars Auður Dóra Haraldsdóttir Katrín Einarsdóttir Valdimar Grétar Gunnarsson Haukur Þór Valdimarsson Sölvi Freyr Valdimarsson Atli Einarsson Harpa Kristjánsdóttir Egill Atlason Arnór Atlason Sara Atladóttir Freyr Friðriksson og fjölskylda Óskar Sveinn Friðriksson og fjölskylda. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Jóhann Óskar Sigurðsson frá Stóra Kálfalæk, lést á dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi, föstudaginn 18. desember. Útförin verður auglýst síðar. Lilja Jóhannsdóttir Guðmundur Þorgilsson Sigurður Jóhannsson Ólöf Anna Guðbrandsdóttir Andrés Björgvin Jóhannsson Hrafnhildur Sigurðardóttir Guðrún Jóhannsdóttir Steinunn Jóhannsdóttir Sigurður Ingvarsson Jóhann Óskar Jóhannsson Guðrún Þorsteinsdóttir Helga Jóhannsdóttir Ásbjörn Kjartan Pálsson afabörn, langafabörn og langalangafabörn. Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Elsku hjartans mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, Hrafnhildur Baldvinsdóttir kennari, lést á heimili sínu Grenihlíð, Austurbyggð 17, þann 14. desember. Útförin mun fara fram í Akureyrarkirkju þriðjudaginn 29. desember kl. 13.30. Vegna aðstæðna geta aðeins nánustu aðstandendur verið viðstaddir athöfnina en henni verður streymt á Facebook- síðunni: Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Leifur Kristján Þorsteinsson María Þórðardóttir Sigurbjörg Þorsteinsdóttir Haraldur Guðmundsson Jón Rúnar Þorsteinsson Ásrún Elín Guðmundsdóttir Sigrún Þorsteinsdóttir Ragnar Sverrisson Sólveig Auður Þorsteinsdóttir Tryggvi Þór Gunnarsson Sigurlína Arna Þorsteinsdóttir Bjarni Hallgrímsson Sigríður Þorbjörg Bjarni Bjarnason Þorsteinsdóttir ömmubörn, langömmubörn og fjölskyldur. Þetta skilti var búið til í samvinnu við Ólaf Jóhann Engilbertsson og föður hans Engilbert Ingvarsson frá Tyrðilmýri og er gert í nafni Snjáfjallaseturs. Ég sá um að setja það upp í haust á brún Stofu- hlíðar við norðanvert Ísafjarðardjúp. Taldi mig hafa fundið staðinn þar sem landpósturinn Sumarliði Brandsson fór fram af, ásamt hesti sínum Sörla, í nátt- myrkri og blindbyl 17. desember 1920,“ segir Bragi Hannibalsson um skjöld sem hann festi á stóran stein til að minnast þessa slyss og f leiri sem á eftir fylgdu. Mér finnst þetta vera atburður sem á að munast. Það var ekki bara að pósturinn færi fyrir björg heldur drukknuðu þrír þeirra fjögurra sem fóru að leita hans er þeir lentu í snjóflóði sem bar þá út í sjó. Minnstu munaði svo að þeir sem fóru að ná í líkin sjóleiðina færust líka, það kom svo vont brot á bátinn að hann fyllti næstum.“ Bragi notar þann hógværa titil skrift- vélavirki í símaskránni og hefur líka verið leiðsögumaður hjá Ferðafélagi Íslands. Hann ólst upp á Hanhóli í Bol- ungarvík, hinum megin við Djúpið, frá Vébjarnarnúpi séð. „Ég heyrði frásögn af þessum atburði við Núpinn þegar ég var milli fimmtán ára og tvítugs og hef lesið hana síðar, meðal annars upphátt þegar ég hef verið fararstjóri um Horn- strandir. Einn hóp hef ég líka farið með yfir Snæfjallaheiði og út á brúnina og að sjálfsögðu rifjað þessa sögu upp. Hún er meðal annars höfð eftir Jóni Kristjáns- syni sem var með Sumarliða pósti í hans hinstu för.“ Bragi segir mikinn berggang úti á brúninni sem heiti Stofa. Þar sé gat niður í sjó. „Jón hélt að Sumarliði hefði bara farið fram af smá barði en var svo heppinn að það rofaði aðeins til og þá sá hann gatið og áttaði sig á hvað hafði gerst. Ég tel að steinarnir sem hann talar um að hafa séð þegar hann hrökklaðist frá brúninni, séu þeir sem skjöldurinn er á.“ Bragi ákvað einnig að setja vegvísi á eina vörðu á Snæfjallaheiði, þar er GPS- staðsetning sem vísar á minnisvarðann í rúmlega kílómetra fjarlægð og í gegnum QR-kóða er líka hægt að lesa frásagnir af atburðunum. „Ég hugsa að þetta sé varðan sem Jón kom að. Það er magnað að hann skyldi hitta á hana í náttmyrkri og byl. Trúlega bjargaði það lífi hans því síðan náði hann að fylgja vörðum til byggða. Það var í raun kraftaverk því svo langt er á milli þeirra. Ég var sjálfur að verða dagþrota eftir að ég kom þessum skiltum fyrir og það var rétt svo að ég náði að fylgja vörðunum.“ gun@frettabladid.is Atburður sem á að munast Bragi Hannibalsson skriftvélavirki setti nýlega upp minningarskjöld um fjóra menn sem týndu lífi í slysförum við Vébjarnarnúp við Ísafjarðardjúp fyrir hundrað árum. Bragi við minnisvarðann á Stofubjargi. Þangað er um kílómetra gangur frá varðaðri leið um Snæfjallaheiði. MYNDIR/AÐSENDAR Bragi setti líka skilti með QR-kóða og GPS-hniti á þessa vörðu. Áletrunin á skiltinu: Að kvöldi 17. desember 1920, í byl og náttmyrkri, féll Sumarliði Brandsson landpóstur hér fram af Núpnum ásamt hesti sínum Sörla. Daginn eftir fannst lík hans niðri í fjöru ásamt hræi hestsins. Snjóflóð féll þá í fjörunni á fjóra leitarmenn og hreif þá, ásamt líki Sumarliða og hræi hestsins, á haf út. Þrír leitarmenn drukknuðu: Guð- mundur Helgi Jósefsson, Bjarni Hall- dór Bjarnason og Pétur Pétursson. Lík þeirra fundust en lík Sumarliða aldrei. Blessuð sé minning þeirra. 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R28 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.