Fréttablaðið - 22.12.2020, Síða 50
ÞETTA ER HLAÐBORÐ,
EKKI AÐALRÉTTUR.
ÞAÐ ER EKKI SÉNS AÐ VELJA
BARA EITT.
Dröfn
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.
geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
SENSITIVE heitir núna PEAUX SENSIBLES
Nýjar umbúðir – sama góða varan
Nú er jólavikan hafin og varla hægt að heyra tónlist nema hún sé tengt á einn eða annan hátt við jólin. Íslendingar
hafa löngum verið duglegt að þýða
erlend jólalög og hellast vafalaust
minningar yfir marga við að heyra
sum þeirra. Það er stórfurðuleg
staðreynd að heil tónlistarstefna
lifi í kringum þessa tvo mánuði.
Það er þó ekki úr vegi að fá nokkra
vel valda viðmælendur til að deila
með okkur hvert þeirra uppáhalds
jólalag er.
steingerdur@frettabladid.is
Ljúfar
minningar frá
jólalögum
Aðfangadagur nálgast óðfluga og varla
hægt að stíga inn í verslun nema að heyra
nokkur jólalög. Flestir eiga sínar minningar
tengdar þeim og fékk Fréttablaðið nokkra
aðila til að nefna sitt uppáhaldsjólalag.
Diljá Ámundadóttir
varaborgarfulltrúi Viðreisnar og jólabarn
Ég er afar hrifin af jólalögum og skammast mín ekkert
fyrir það að byrja að spila þau í nóvember eða á „pre“-
ventunni, sem fékk að heita glaðventan í ár.
Ég skipti jólalögum í nokkra flokka. Allt frá mjög
hátíðlegum eins og Mahaliu Jackson til „guilty
pleasures“ eins og Snjókorn falla með Ladda. Ég elska
þegar hann syngur af innlifun „fagna sigri ljóssins“.
Ég held samt að það lag sem trónir alltaf hæst og
gefur jólahjartanu gæsahúð ofan á gæsahúð sé Jólin
jólin alls staðar með Ellý og Villa. Þetta „intró“ er bara
svo marglaga fallegt. Ég á margar ljúfar minningar
með þessu lagi.
Atli Viðar Þorsteinsson
plötusnúður
Ég held mikið upp á Christmas in Hollis með Run
DMC. Heyrði það í fyrsta sinn þegar ég horfði á Die
Hard alltof ungur og ég hafði bara aldrei heyrt jólalag
sem var svona „öðruvísi“. Ég hef verið svona níu ára,
bjó fyrir vestan og hafði varla heyrt rapptónlist, hvað
þá jólarapplag, og það gersamlega sturlaði mig að
það væri hægt að taka eitthvað jafn fullorðins og
heilagt og snúa því á hvolf á þennan hátt.
Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas
listrænn stjórnandi
Úff, fyrst þótti mér svo auðvelt að svara þessu og
svo hugsaði ég þetta í hring, þá eru þau öll æði. Þótt
ég sé desember-afmælisbarn sem er svolítið brennt
af jólunum og sökum anna, prófa eða bara des-ves
og enginn man eftir manni, þá er ég samt jólabarn.
Fyrsta lagið sem kom upp í hugann er Þú komst með
jólin til mín með Ruth Reginalds og Bjögga og ég elska
Last Christmas með Wham!, Þú og ég og jól með Svölu
Björgvins, Christmas Time Is Here með Vince Guaraldi,
jólaplöturnar með Sigurði Guðmunds og Siggu Thorl
og allan Baggalúts-katalóginn en ég held mig við mitt
fyrsta hugboð og Ruth og Bó standa. Þetta er hlað-
borð, ekki aðalréttur. Það er ekki séns að velja bara eitt.
Ólafur Örn Ólafsson
veitingamaður og stjórnandi Kokkaflakks
Það er mjög mismunandi á milli ára og líka mismunandi eftir skapi,
dögum, veðri og alls konar. Allt frá Tom Waits til Mariah Carey. En sú
jólaplata sem á alltaf við og ég fæ aldrei nóg af er Soulful Christmas með
James Brown og fyrsta lagið á hlið A er lag sem alltaf gerir allt betra og
heitir Santa Claus Go Straight To The Ghetto.
Berglind Pétursdóttir
sjónvarpskona
Þú komst með jólin til mín er langbesta jólalagið. Hið
fullkomna lag til að hlusta á þegar maður kemur smá
kenndur heim af jólaskemmtun.
2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð