Feykir


Feykir - 04.09.2019, Blaðsíða 2

Feykir - 04.09.2019, Blaðsíða 2
Það er líklega að bera í bakkafullan lækinn að fara að ræða um tilraunir veganista til að „kristna“ þjóðina og nota börnin til að festa trú þeirra í sessi. Auðvitað er bráðsnjallt að byrja trúboðið á ungviðinu þar sem það er að sjálfsögðu veikast fyrir og venja það af að borða fisk og kjöt og senda í því skyni erindi til allra sveitarstjórna á landinu með áskorun þess efnis að innleiða grænkerafæði í skólum landsins! Í áskorun grænkera er m.a. vísað til þess að landbúnaður losi mikið af gróðurhúsalofttegundum. Satt er það, en eins og margir hafa bent á þarf að flytja inn stóran hluta þess grænmetis sem neytt er í landinu. Mér hefur alltaf þótt merkilegt hvað oft gleymist að reikna út kolefnissporið fyrir innflutning matvara þegar verið er að bera saman erlenda og innlenda framleiðslu og svo er einnig nú. Einnig er því haldið fram að grænkerafæði sé almennt ódýrara en annað fæði. Þetta eru ný sannindi fyrir mér þar sem í gegnum tíðina hef ég vanist því að alltaf sé talað um að grænmeti og ávextir sé svo óhemju dýr fæða. Gott ef það hefur breyst. Þá segir í áskoruninni: „Það er margsannað að plöntumiðað mataræði er fullnægjandi að öllu leyti á öllum æviskeiðum og því væri rökrétt skref að bjóða upp á þann kost í öllum skólamötuneytum landsins.“ Þetta stangast á við það sem haldið er fram í grein á vef landlæknis eftir þær Elvu Gísladóttur og Hólmfríði Þorgeirsdóttur, verkefnastjóra næringar hjá embættinu, þar sem segir m.a. „Jurtafæði án mjólkur og eggja, þ.e. grænkerafæði (e. Vegan), er ekki viðunandi næring fyrir ungbörn (0-1 árs) nema sérstök kunnátta eða ráðgjöf komi til. Foreldrum sem ákveða að gefa barni sínu grænkerafæði er því ráðlagt að leita sér aðstoðar næringarráðgjafa eða næringarfræðings til að tryggja að fæðið uppfylli þarfir ungbarnsins fyrir öll þau næringarefni sem líkaminn þarf á að halda.“ Þá er einnig bent á að aðrir viðkvæmir hópar, eins og barnshafandi konur og konur með börn á brjósti, þurfi að vanda val sitt á matvælum svo og að grænkerafæði henti illa fyrir einstaklinga með litla matarlyst og þá sem borða lítið þar sem kjöt og mjólkurvörur veiti mikilvæga orku og prótein og önnur næringarefni og því þurfi minni skammta til að fullnægja næringarþörfinni en ef jurtafæðis er neytt eingöngu. Að vísu eru þetta ekki hópar sem eru almennt í fæði hjá skólamötuneytum en athyglisverður punktur engu að síður. Já, er nema von að maður þurfi öðru hvoru að klóra sér í höfðinu og íhuga í hvorn fótinn maður eigi að stíga. Ég held að minnsta kosti að ég velji þann kostinn að taka undir ályktun byggðarráðs Skagafjarðar sem „leggur áherslu á að í skólum sveitarfélagsins sé eins og kostur er boðið upp á holla og fjölbreytta fæðu svo sem kjöt, fisk, mjólkurvörur og grænmeti sem framleidd er í Skagafirði. Með því telur sveitarfélagið að komið sé til móts við bæði lýðheilsumarkmið, gildi heilsueflandi samfélags og lágmörkun kolefnisspors.“ Fríða Eyjólfsdóttir blaðamaður LEIÐARI Allt er vænt sem vel er grænt – eða hvað? Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Áskriftarverð: 555 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 685 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Í síðustu viku lönduðu 40 bátar á Skagaströnd og var afli þeirra rúm 330 tonn. Á Sauðárkróki var landað rúmum 516 tonnum úr 18 skipum og bátum en inn í þá tölu vantar 21 þúsund kassa af togaranum Arnari. Á Hofsósi lönduðu sjö bátar rúmum 15 tonnum og á Hvammstanga var landað 2,7 tonnum. Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi vestra var 865.031 kíló auk afla Arnars. /FE Aflatölur 25. – 31. ágúst 2019 330 tonn til Skagastrandar SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 1.646 Gyðjan HU 44 Handfæri 318 Hafdís HU 85 Handfæri 2.119 Hafrún HU 12 Dragnót 25.842 Hjalti HU 313 Handfæri 596 Hrund HU 15 Handfæri 1.369 Húni HU 62 Handfæri 838 Indriði Kristins BA 751 Lína 8.378 Jenny HU 40 Handfæri 1.145 Kambur HU 24 Handfæri 2.497 Kópur HU 118 Handfæri 390 Kristinn SH 812 Landbeitt lína 43.837 Loftur HU 717 Handfæri 2.825 Lukka EA 777 Handfæri 838 Smári HU 7 Handfæri 581 Steinunn SF 10 Botnvarpa 106.809 Straumey HF 200 Lína 8.221 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 2.569 Særif SH 25 Lína 27.985 Sæunn HU 30 Handfæri 290 Viktor Sig. HU 66 Handfæri 1.787 Víðir EA 423 Handfæri 1.060 Víðir ÞH 210 Handfæri 835 Alls á Skagaströnd 330.845 HOFSÓS Alfa SI 65 Handfæri 374 Ásdís ÓF 250 Handfæri 1.686 Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 794 Geisli SK 66 Handfæri 336 Njáll ÓF 275 Dragnót 9.724 Skotta SK 138 Handfæri 946 Ösp SK 135 Handfæri 1.177 Alls á Hofsósi 15.037 HVAMMSTANGI Harpa HU 4 Dragnót 2.726 Alls á Hvammstanga 2.726 SAUÐÁRKRÓKUR Arnar HU 1 Botnvarpa 32 Bryndís SK 8 Handfæri 3.914 Drangey SK 2 Botnvarpa 190.413 Fannar SK 11 Landbeitt lína 1.815 Fannar SK 11 Handfæri 662 Farsæll SH 33 Botnvarpa 52.423 Gammur SK 12 Þorskfiskinet 624 Gjávík SK 20 Handfæri 1.147 Hafey SK 10 Handfæri 2.489 Hafborg EA 152 Dragnót 50.506 Kristín GK 457 Lína 84.598 Kristín SK 77 Handfæri 1.544 Maró SK 33 Handfæri 1.611 Már SK 90 Handfæri 2.164 Onni HU 36 Dragnót 47.698 Óskar SK 13 Handfæri 1.554 Sigurborg SH 112 Botnvarpa 71.158 Tara SK 25 Handfæri 1.312 Vinur SK 22 Handfæri 759 Alls á Sauðárkróki 516.423 SKAGASTRÖND Auður HU 94 Handfæri 1.159 Beggi á Varmalæk Handfæri 435 Bergur sterki HU 17 Lína 1.623 Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 1.509 Blíðfari HU 52 Handfæri 2.992 Blær HU 77 Landbeitt lína 1.771 Bogga í Vík HU 6 Handfæri 1.421 Bragi Magg HU 70 Handfæri 2.499 Dagrún HU 121 Handfæri 3.444 Dísa HU 91 Handfæri 2.378 Dóra HU 225 Handfæri 2.011 Dúddi Gísla GK 48 Lína 18.112 Elín ÞH 82 Handfæri 1.649 Geirfugl GK 66 Landbeitt lína 23.597 Geiri HU 69 Handfæri 2.366 Greifinn SK 19 Handfæri 1.433 Guðrún GK 47 Lína 19.671 Nú er sá langþráði draumur orðinn að veruleika að staðsetning hefur verið ákveðin fyrir ærslabelg á Sauðárkróki. Verður hann staðsettur hjá sundlauginni ef næst að fjármagna sjálfan belginn. Hollvinasamtökin Leikum á Króknum standa nú að söfnun fyrir ærslabelgnum. „Nú reynir á kraft fyrirtækja, góðgerða- samtaka, félagasamtaka, einstaklinga og samfélagsins að Sauðárkrókur eignist ærslabelg sem eflir hreyfingu, samveru og gleði líkt og á Hofsósi, í Varmahlíð og í Fljótum. Hver króna skiptir máli,“ segir í tilkynningu frá samtökunum. Belgurinn sjálfur kostar um eina og hálfa milljón með fylgihlutum en hægt er að styrkja verkefnið með því að leggja inn á reikning Local Heart. Kt 561216-0450 og rk.nr. 0161-26-005612. „Með fyrirfram þökk og von um að innan tíðar geti börnin okkar farið að ærslast saman á belgnum.“ Í framvarðasveit Leikum á Króknum eru þær Auður Björk Birgisdóttir, Sigríður Garðarsdóttir, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Sigurlína Erla Magnúsdóttir. /PF Safnað fyrir ærslabelg LEIKUM Á KRÓKNUM krakkar að hoppa og skoppa á ærslabelg á Hofsósi. Mynd: FE 2 33/2019 Ert þú búinn að heilsa upp á Feyki.is? Feykir.is lúkkar fínt í tölvunni, spjaldtölvunni og símanum! Kíktu á... Feykir.is

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.