Feykir - 04.09.2019, Blaðsíða 3
Húsnæðismál hafa verið ofarlega á
baugi síðastliðin ár enda ríkir skortur á
íbúðarhúsnæði víða um land.
Ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á
að efla húsnæðismarkaðinn og stuðla
að auknu jafnvægi á honum óháð
efnahag og búsetu. Fjölmörgum
aðgerðum hefur nú þegar verið hrundið
í framkvæmd til að bregðast við og eru
aðrar í bígerð. Landsbyggðin hefur
löngum þótt sitja eftir í þessum efnum.
Uppbygging íbúðarhúsnæðis víða um
land hefur ekki fylgt auknum íbúa-
fjölda, frekar en á höfuðborgarsvæðinu
og eru dæmi um að skortur á íbúðar-
húsnæði hafi staðið atvinnuupp-
byggingu á landsbyggðinni fyrir þrifum.
Tillögur unnar í samstarfi við
sveitarfélög
Á haustmánuðum setti ég af stað
tilraunaverkefni um húsnæðismál á
landsbyggðinni með Íbúðalánasjóði,
Byggðastofnun og Sambandi íslenskra
sveitarfélaga. Var það gert í því skyni
að leita leiða til þess að bregðast við
langvarandi stöðnun á húsnæðis-
markaði víða um land.
Þrjátíu og þrjú sveitarfélög af öllu
landinu sóttu um þátttöku. Sjö urðu
fyrir valinu og tók valið mið af því að
áskoranirnar sem þau stæðu frammi
fyrir væru mismunandi og á ólíkum
landsvæðum. Þannig yrði til breiðara
framboð lausna í húsnæðismálum sem
nýst geti sem flestum sveitarfélögum
sem á þurfa að halda. Íbúðalánasjóður
hefur undanfarna mánuði unnið náið
með tilraunasveitarfélögunum að því
að greina þann vanda sem þau standa
frammi fyrir og undirbúa tillögur að
aðgerðum.
Tólf tillögur að aðgerðum
Á grundvelli þeirrar vinnu voru lagðar
fram tólf tillögur að lausnum sem
kynntar voru fyrir ríkisstjórn í maí og
birtar í samráðsgátt stjórnvalda í lok
júlí. Þær umsagnir sem bárust voru
allar jákvæðar og var í kjölfarið ákveðið
að tillögurnar yrðu innleiddar.
Í byrjun síðustu viku skrifaði ég
undir breytingar á reglugerð um
lánaflokka Íbúðalánasjóðs sem gerir
það að verkum að sveitarfélög,
einstaklingar og óhagnaðardrifin félög
á lands-byggðinni muni geta tekið lán
hjá Íbúðalánasjóði til húsnæðisupp-
byggingar á stöðum þar sem opinber
húsnæðisáætlun, staðfest af Íbúða-
lánasjóði, sýnir að skortur sé á húsnæði
af því tagi sem byggja á. Þá verður
brugðist við skorti á hagkvæmu
leiguhúsnæði með því að gera sveitar-
félögum á landsbyggðinni kleift að
byggja íbúðir í almenna leigukerfinu
með auknu stofnframlagi ríkisins og
verður frumvarp þess efnis lagt fram á
haustþingi.
Öflug byggðastefna er hagsmuna-
mál okkar allra
Það er mikilvægt að atvinnutækifæri
séu nýtt allt í kringum landið en dæmi
eru um að skortur á íbúðarhúsnæði
hamli frekari uppbyggingu. Sá skortur
er tilkominn vegna þess að misvægi er
á milli byggingarkostnaðar og
markaðsverðs. Mikilvægt er að
húsnæðisskortur standi ekki í vegi
fyrir því og geri það að verkum að fólk
fáist ekki til starfa. Sé það raunin ber
stjórnvöldum að mínu viti skylda til
þess að grípa til aðgerða og eftir því
hefur ítrekað verið kallað. Með þeim
aðgerðum sem ákveðið hefur verið að
ráðast í til að bregðast við húsnæðis-
vanda á landsbyggðinni erum við að
undirstrika vilja ríkisvaldsins til að
standa við bakið á heimamönnum í
uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Undirritaður hefur verið
samningur um að frá og
með 1. september 2019
muni Blönduósbær taka yfir
götulýsingarkerfi
sveitarfélagsins, og allt sem
því tilheyrir.
Fyrr á árinu ritaði
RARIK sveitarfélögum bréf,
þar sem boðið var upp á
viðræður um yfirtöku á
götulýsingarkerfinu, ásamt
því að leggja fram gögn um
stöðuna á því.
Á heimasíðu Blönduóss
kemur fram að sveitarstjóra
hafi verið falið að undirrita
samning um afhendinguna
eftir kynningu af hálfu
RARIK, í Reykjavík og á
Blönduósi og vandlega
skoðun heimamanna enda
samningurinn samþykktur
á 144. fundi byggðaráðs,
fimmtudaginn 22. ágúst sl.
Áður hafði RARIK afhent
nokkrum sveitarfélögum
götulýsingarkerfi með sama
hætti.
Götulýsingarkerfi Blöndu-
ósbæjar samanstendur af
374 götuljósastaurum með
tilheyrandi ljósbúnaði
ásamt strengjalögn fyrir
götulýsingu og tilheyrandi
götuskápum með varnar-
og stjórnbúnaði. /PF
Samningur um afhendingu
götulýsingarkerfis til
eignar í Blönduósbæ
Blönduósbær
Mánudaginn 26. ágúst sl. var formleg móttaka á
höfðinglegum gjöfum sem HSN á Sauðárkróki
hefur fengið frá Minningarsjóði Sigurlaugar
Gunnarsdóttur frá Ási á tímabilinu janúar til
ágúst 2019. Heildarverð gjafanna er
10.717.099,00 m.vsk. Í stjórn Minningarsjóðsins
eru þau Örn Ragnarsson formaður, Ásta Ólöf
Jónsdóttir gjaldkeri og Elín H. Sæmundardóttir
ritari. Auk þeirra mættu Engilráð M.
Sigurðardóttir fyrrverandi gjaldkeri og Björg
Baldursdóttir, formaður Sambands skagfirskra
kvenna (SSK). Herdís Klausen
yfirhjúkrunarfræðingur veitti gjöfunum viðtöku
fyrir hönd HSN.
Í tilkynningu frá HSN kemur fram að
Minningarsjóður frú Sigurlaugar Gunnarsdóttur
frá Ási hafi verið stofnaður 7. júlí 1969 en þá
voru liðin 100 ár frá stofnun fyrsta kvenfélagsins
í Skagafirði. Sjóðurinn er því 50 ára í ár.
Í staðfestri skipulagsskrá sjóðsins frá 30. júlí
1970 segir í 3. grein að tilgangur sjóðsins sé að
styrkja Héraðssjúkrahúsið á Sauðárkróki og
ellideild þess eða elliheimili, til kaupa á lækninga-
tækjum eða öðru því sem stjórn sjóðsins telur
mesta nauðsyn á á hverjum tíma. Óheimilt er að
nota féð til rekstrar þessara stofnana.
Í 5. grein segir meðal annars að sjóðurinn
veiti viðtöku minningargjöfum og öðrum
gjöfum. Blóma og gjafabúðin á Sauðárkróki er
með minningarkort sjóðsins til sölu og einnig er
hægt að kaupa minningarkort í afgreiðslu HSN á
Sauðárkóki á virkum dögum.
Í janúar gaf sjóðurinn hjúkrunardeildum
HSN Sauðárkróki tvær Sara Steady skutlur,
heildarverð gjafar 446.400 krónur og í febrúar
gaf sjóðurinn sjúkra- og hjúkrunardeildum þrjár
súrefnissíur af gerðinni Resp Everflo. Heildarverð
þeirrar gjafar var kr. 462.024.
Í mars gaf sjóðurinn heilsugæslusviði skáp
fyrir hjúkrunar- og læknavörur að verðmæti kr.
376.568 og sjúkradeild stafræna stólvog að
verðmæti 242.178 krónur.
Í apríl gaf sjóðurinn tvö hjúkrunarrúm með
fylgihlutum á hjúkrunardeild að verðmæti kr.
809.000 og Keisi blóðtökuvagn með fylgihlutum
á rannsóknarstofu upp á 434.294 krónur.
Í júní gaf sjóðurinn sjúklingamónitor með
fylgihlutum á sjúkradeild sem telur kostnað upp
á kr. 3.742.753 og loks bættust við tvær
telemetríur ásamt fylgihlutum nú í ágúst.
Heildarverð 4.198.882 krónur. /PF
Rausnarlegar gjafir til sjúkrahússins
Minningarsjóður Sigurlaugar Gunnarsdóttur frá Ási
Örn Ragnarsson, formaður Minningarsjóðsins, Engilráð M.
Sigurðardóttir fyrrverandi gjaldkeri, Elín H. Sæmundardóttir
ritari, Ásta Ólöf Jónsdóttir gjaldkeri, Björg Baldursdóttir,
formaður Sambands skagfirskra kvenna og Herdís Klausen
yfirhjúkrunarfræðingur. Myndina tók Helga Rósa Guðjónsdóttir.
Íbúðaskortur má ekki aftra
atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni
AÐSENT Ásmundur Einar Daðason
Helga Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs RARIK og Valdimar O.
Hermannsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar við undirritun samningsins.
MYND: AÐSEND.
33/2019 3