Feykir


Feykir - 04.09.2019, Blaðsíða 11

Feykir - 04.09.2019, Blaðsíða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Band Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING Krossgáta Feykir spyr... Fylgist þú með kvennaknatt- spyrnunni? Spurt á Facebook UMSJÓN : palli@feykir.is „Já, okkar stelpum í Tindastól. Þær eru frábærar fyrirmyndir og eitt af flaggskipum íþrótta í Skagafirði.“ Jóhannes Björn Þorleifsson Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ótrúlegt - en kannski satt... Fyrsti lottómiðinn á Íslandi var keyptur 22. nóvember 1986 af Steingrími Hermannssyni en á þeim tíma var Lottó kallað „Lottó 5/32“. Fyrsti útdrátturinn fór svo fram 29. nóvember 1986 í Ríkissjónvarpinu. Líkurnar á að fá 5 aðaltölur réttar í íslenska lottóinu eru 1/501.942 en 1/95 að fá 3 aðaltölur réttar. Ótrúlegt, en kannski satt, þá eru 100% líkur á því að vinningshafar bæti á sig kílóum eftir þann stóra, samkvæmt bandarískri rannsókn. Teriyaki ærfille með nanbrauði og súkkulaðimús Matgæðingur vikunnar er hún Gréta. Hún býr ásamt unnusta sínum, Elmari Davíð Haukssyni, og tveimur börnum á bænum Haugi í Miðfirði. „Við eldum mjög mikið á þessu heimili og þá sérstaklega úr lambakjöti og ærkjöti. Okkur finnst ótrúlega gaman að sulla einhverju saman og förum eiginlega aldrei eftir uppskriftum. Oftast heppnast sullið, en alls ekki alltaf, þá er nú gott að eiga skyr í ísskápnum. Hér kemur uppskrift af teriyaki-ærfille sem var gert með sullaðferðinni en nanbrauðs uppskriftin og súkkulaðimúsar uppskriftin eru úr uppskriftabók sem ég fékk í Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað,“ segir Gréta. Tilvitnun vikunnar Ég kann vel við að vera kona, jafnvel í heimi karla, því þegar upp er staðið geta karlar ekki klæðst kjólum en við getum gengið í buxum / Whitney Houston AÐALRÉTTUR Teriaky ærfille 1½ dl teriyaki sósa 2 dl soja sósa 2 msk matarolía sítrónusafi úr sirka hálfri sítrónu 1 tsk chilli flögur 1 tsk oreganó 1 tsk basilika smá mulinn svartur pipar 3 pressaðir hvítlauksgeirar 1-2 stykki ærfille Meðlæti: 1 askja sveppir 1 laukur soðin hrísgrjón Aðferð: Blandið öllu saman í skál og setjið fille ofan í. Ef blandan nær ekki yfir allt kjötið, þá er um að gera að snúa því seinna. Látið marinerast í minnsta kosti tvo tíma, því lengur því betra. Skerið niður sveppina og laukinn og steikið á pönnu með slatta af smjöri og salti. Setjið í eldfast mót. Bætið smjöri á pönnuna og steikið fille á miklum hita í smá stund á hvorri hlið þannig að hliðarnar verði brúnar. Leggið það síðan ofan á steiktu sveppina og laukinn, látið safann af pönnunni fylgja með og setjið í ofn í 10-25 mínútur á 200°C með blæstri. Borið fram með soðnum hrísgrjónum og nan brauði. Nanbrauð: 250 g hveiti ½ tsk salt 10 g ger 125 ml vatn 30 g grísk jógúrt eða ab mjólk 1 tsk cummin ½ tsk engifer ½ tsk kóriander Aðferð: Allt hnoðað saman í skál og látið hefast undir rökum klút í 30 mín. Skiptið deiginu niður í litla bita og fletjið út eða togið það aðeins til. Deigið á að vera blautt. Hitið smjör, olíu og þrjá hvítlauksgeira á pönnu. Fjarlægið hvítlauksgeirana og steikið brauðið þangað til það er fallega brúnt á báðum hliðum. Bætið smjöri og matarolíu á pönnuna eftir því sem þarf. Sett á disk og borið fram með miklu smjöri. EFTIRRÉTTUR Súkkulaðimús 120 g súkkulaði 3 eggjahvítur 1 stk matarlímsblað 3 eggjarauður 60 g smjör Aðferð: Bræðið smjör og súkku- laði saman. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Stífþeytið eggjahvíturnar. Bætið einni eggjarauðu út í súkkulaðibráðina og hrærið vel. Matarlímið sett þar ofan í þegar allar þrjár eggjarauðurnar eru komnar í. Hrært vel saman. Þessu er síðan bætt varlega við stífþeyttu eggjahvíturnar. Sett í fjórar desertskálar eða glös. Borið fram með þeyttum rjóma og jarðarberjum. Verði ykkur að góðu! „Aðeins en ekki nægilega mikið.“ Karítas Sigurbjörg Björnsdóttir „Nei, ég geri það nú ekki. Fylgist bara ekki með neinum íþróttum.“ Kristín Sigurrós Einarsdóttir „Já, ég fylgist aðeins með kvennaknattspyrnunni, helst þá kvennalandsliðinu. Einnig er gaman að fylgjast með mfl. Tindastóls en þær eru að standa sig mjög vel.“ Sigfus Ólafur Gudmundsson ( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR) frida@feykir.is Gréta á Haugi matreiðir Gréta á Haugi. MYND: ÚR EINKASAFNI 33/2019 11 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Efni í voð ég er og verð. Á minn þátt í bókagerð. Albert hefur hund í mér. Heyvinnu ég nátengt er.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.