Feykir


Feykir - 04.09.2019, Blaðsíða 10

Feykir - 04.09.2019, Blaðsíða 10
Sundlaugin í Varmahlíð 80 ára afmælishátíð Sundlaugin í Varmahlíð fagnaði nýlega 80 ára vígsluafmæli og var þess minnst með veglegri veislu sl. fimmtudag, þann 29. ágúst. Samhliða afmælisveislunni var efnt til Grettissunds en í því var fyrst keppt á vígsluhátíð sundlaugarinnar fyrir 80 árum síðan. Sundlaugin í Varmahlíð var vígð þann 27. ágúst 1939 að viðstöddu fjömenni. Laugin var byggð á árunum 1938-1939 og kostaði þá tæpar 30.000 krónur að því er segir í Byggðasögu Skagafjarðar, II. bindi. Varmahlíðarfélagið stóð að byggingunni ásamt fjöl- mörgum sjálfboðaliðum úr sveitinni. Yfirsmiður við laug- ina var Hróbjartur Jónasson frá Hamri og honum til aðstoðar var Ólafur Kristjánsson smiður, kenndur við Ábæ í Austurdal. Var hér um mikið mannvirki að ræða en á þessum árum voru engin tæki tiltæk önnur en skóflan og hakinn og allt efni flutt með hestakerrum. Laugin var 33,35 m löng og 12,5 m breið, mesta dýpt 3,03 m en grynnst 0,83 m. Það voru kennarar og nem- endur Varmahlíðarskóla ásamt starfsfólki íþróttamiðstöðvar- innar í Varmahlíð sem stóðu að afmælishátíðinni. Afmælishá- tíðarnefnd var skipuð þeim Sigurlínu Hrönn Einarsdóttur, íþróttakennara, Trostan Agnars- syni, kennara og Moniku S. Borgarsdóttur, forstöðumanni íþróttamiðstöðvarinnar. Sam- koman hófst með skrúðgöngu nemenda og starfsfólks skólans frá skólahúsnæðinu að íþrótta- miðstöðinni þar sem marserað var við undirleik kennara og nemenda Tónlistarskóla Skaga- fjarðar. Samkomuna setti Hanna Dóra Björnsdóttir, skólastjóri Varmahlíðarskóla, en Trostan Agnarsson kynnti dagskrá. Erindi á samkomunni fluttu þau Hrefna Jóhannesdóttir, oddviti Akrahrepps, sem í máli sínu ræddi m.a. um mikilvægi sundiðkunar og annars íþrótta- starfs fyrir samfélagið og Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem gerði þau lífsgæði sem fólgin eru í jarðhitanum að umtalsefni ásamt því að fjalla um sögu sundkennslu í Skagafirði. Þá flutti Lydía Einarsdóttir, nemandi Varma- hlíðarskóla, sögu sundlaugar- innar í samantekt Sigurðar Haraldssonar á Grófárgili og Elsa María Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í Sundsambandi Íslands, flutti ávarp og færði sundlauginni gjöf í tilefni afmælisins. Nemendur skólans sýndu dans og sungu nokkur lög við undirleik Stefáns R. Gíslasonar og að því loknu var boðið til afmæliskaffis. Dagskránni lauk svo með Grettissundi og var það vel við hæfi þar sem sú keppni var fyrst háð við vígslu laugarinnar árið 1939. Var þá gefinn bikar, Grettisbikarinn, sem veita skyldi sem verðlaun fyrir sundið og hlyti handhafi hans sæmdarheitið Sundkappi Skagafjarðar. Grettissund er 500 m sund með frjálsri aðferð og er öllum Skagfirðingum með heimili í Skagafirði heimil þátttaka. Athyglisvert var að framan af máttu konur taka þátt í keppninni en óheimilt var að sæma þær titlinum. Árið 1996 var svo gefinn verðlaunabikar fyrir sund- kerlingu Skagafjarðar þegar sunddeild Tindastóls setti reglur um þau verðlaun. Tveir karlar og þrjár konur þreyttu sundið að þessu sinni. Sæmdarheitið sundkappi Skagafjarðar hlaut Steinar Óli Sigfússon sem vann Grettis- bikarinn á tímanum 10.23 mín. en Óskar Aron Stefánsson varð í öðru sæti. Sara Jane vann í kvennaflokki á tímanum 7,55 mín. og ber sæmdarheitið sundkona Skagfirðinga. Selma Barðdal varð í öðru sæti og Árný Lilja Árnadóttir í því þriðja. /FE 10 33/2019

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.