Feykir - 04.09.2019, Page 10
Sundlaugin í Varmahlíð
80 ára afmælishátíð
Sundlaugin í Varmahlíð
fagnaði nýlega 80 ára
vígsluafmæli og var þess
minnst með veglegri veislu sl.
fimmtudag, þann 29. ágúst.
Samhliða afmælisveislunni
var efnt til Grettissunds en í
því var fyrst keppt á
vígsluhátíð sundlaugarinnar
fyrir 80 árum síðan.
Sundlaugin í Varmahlíð var
vígð þann 27. ágúst 1939 að
viðstöddu fjömenni. Laugin
var byggð á árunum 1938-1939
og kostaði þá tæpar 30.000
krónur að því er segir í
Byggðasögu Skagafjarðar, II.
bindi. Varmahlíðarfélagið stóð
að byggingunni ásamt fjöl-
mörgum sjálfboðaliðum úr
sveitinni. Yfirsmiður við laug-
ina var Hróbjartur Jónasson frá
Hamri og honum til aðstoðar
var Ólafur Kristjánsson smiður,
kenndur við Ábæ í Austurdal.
Var hér um mikið mannvirki
að ræða en á þessum árum
voru engin tæki tiltæk önnur
en skóflan og hakinn og allt
efni flutt með hestakerrum.
Laugin var 33,35 m löng og
12,5 m breið, mesta dýpt 3,03
m en grynnst 0,83 m.
Það voru kennarar og nem-
endur Varmahlíðarskóla ásamt
starfsfólki íþróttamiðstöðvar-
innar í Varmahlíð sem stóðu að
afmælishátíðinni. Afmælishá-
tíðarnefnd var skipuð þeim
Sigurlínu Hrönn Einarsdóttur,
íþróttakennara, Trostan Agnars-
syni, kennara og Moniku S.
Borgarsdóttur, forstöðumanni
íþróttamiðstöðvarinnar. Sam-
koman hófst með skrúðgöngu
nemenda og starfsfólks skólans
frá skólahúsnæðinu að íþrótta-
miðstöðinni þar sem marserað
var við undirleik kennara og
nemenda Tónlistarskóla Skaga-
fjarðar. Samkomuna setti
Hanna Dóra Björnsdóttir,
skólastjóri Varmahlíðarskóla,
en Trostan Agnarsson kynnti
dagskrá.
Erindi á samkomunni fluttu
þau Hrefna Jóhannesdóttir,
oddviti Akrahrepps, sem í máli
sínu ræddi m.a. um mikilvægi
sundiðkunar og annars íþrótta-
starfs fyrir samfélagið og Sigfús
Ingi Sigfússon, sveitarstjóri
Sveitarfélagsins Skagafjarðar,
sem gerði þau lífsgæði sem
fólgin eru í jarðhitanum að
umtalsefni ásamt því að fjalla
um sögu sundkennslu í
Skagafirði. Þá flutti Lydía
Einarsdóttir, nemandi Varma-
hlíðarskóla, sögu sundlaugar-
innar í samantekt Sigurðar
Haraldssonar á Grófárgili og
Elsa María Guðmundsdóttir,
stjórnarmaður í Sundsambandi
Íslands, flutti ávarp og færði
sundlauginni gjöf í tilefni
afmælisins.
Nemendur skólans sýndu
dans og sungu nokkur lög við
undirleik Stefáns R. Gíslasonar
og að því loknu var boðið til
afmæliskaffis.
Dagskránni lauk svo með
Grettissundi og var það vel við
hæfi þar sem sú keppni var
fyrst háð við vígslu laugarinnar
árið 1939. Var þá gefinn bikar,
Grettisbikarinn, sem veita
skyldi sem verðlaun fyrir
sundið og hlyti handhafi hans
sæmdarheitið Sundkappi
Skagafjarðar. Grettissund er
500 m sund með frjálsri aðferð
og er öllum Skagfirðingum
með heimili í Skagafirði heimil
þátttaka. Athyglisvert var að
framan af máttu konur taka
þátt í keppninni en óheimilt var
að sæma þær titlinum. Árið
1996 var svo gefinn
verðlaunabikar fyrir sund-
kerlingu Skagafjarðar þegar
sunddeild Tindastóls setti
reglur um þau verðlaun.
Tveir karlar og þrjár konur
þreyttu sundið að þessu sinni.
Sæmdarheitið sundkappi
Skagafjarðar hlaut Steinar Óli
Sigfússon sem vann Grettis-
bikarinn á tímanum 10.23 mín.
en Óskar Aron Stefánsson varð
í öðru sæti. Sara Jane vann í
kvennaflokki á tímanum 7,55
mín. og ber sæmdarheitið
sundkona Skagfirðinga. Selma
Barðdal varð í öðru sæti og
Árný Lilja Árnadóttir í því
þriðja. /FE
10 33/2019