Feykir - 04.09.2019, Qupperneq 9
Nú hverfum við aftur þar sem
frá var horfið í þarsíðasta pistli
og sagði frá kappreiðunum
miklu á Kili þar sem leysinginn
Þórir dúfunef á strokuhryss-
unni Flugu, sem hið forna
höfuðból Flugumýri heitir eftir,
sigraði mikinn og margefldan
hestamann, Örn að nafni,
kallaður landshornamaður, á
hestinum Sini, það voru fyrstu
kappreiðarnar á Íslandi sem
enn lifa í sögnum.
Í þeim mikla sagnabálki Horfnum
góðhestum eftir Ásgeir Jónsson
frá Gottorp er fjöldi frásagna af
keppni manna á hestum, oftast þó
heldur óformlegar og hvorki á
eiginlegum reiðvelli né útmæld-
um. Um stöku keppni er þó getið
þar sem menn settu niður sprett-
færið og afmörkuðu það, t.d. með
svipunni og höfðu jafnvel svo
mikið við að festa á hana rauðan
tóbaksklút svo hæglegar sæist.
Þegar fór svo að síga að lokum
ritverks Ásgeirs, þ.e. að færast
fram yfir aldamótin 1900 og hvað
þá nær ritunartíma verksins, en
það kom út í tveimur bindum,
1946 fyrra bindið og 1948 hið
síðara, segir svo jafnvel frá stöku
formlegum kappreiðum.
Í greininni sem ég var að vitna í
og birtist í 22. tbl. Feykis, 5. júní sl.
sagði og frá að fyrsta eiginlega
tilraun manna til að vekja athygli á
íslenska reiðhestinum, hraða hans
og keppnishörku hafi verið gerð á
Oddeyri á Akureyri þjóðhátíðar-
sumarið 1874 en þá var minnst
þúsund ára byggðar á Íslandi og
skemmtisamkomur haldnar víða
um land af því tilefni. Frá keppninni
á Oddeyrinni er sagt í Kapp-
reiðaannál eftir Einar E. Sæmund-
sen sem birtist í bókinni Fákur –
Þættir um hesta, menn og
kappreiðar, búin til prentunar af
Einari E. Sæmundsen og
Hestamannafélagið Fákur gaf út í
tilefni af aldarfjórðungsafmæli
sínu og kom út í Reykjavík árið
1949.
Stofnun hestamannafélaga
og LH
Í riti sínu greinir Einar E.
Sæmundsen frá mörgum fleiri
atburðum af svipuðum toga og
þeim á Oddeyrinni og er sumt
byggt á frásögum úr Horfnum
góðhestum Ásgeirs en annað á
útgefnum blöðum frá þessum
tíma. Festa komst hins vegar ekki
á þessi mál fyrr en með stofnun
hestamannafélaga í landinu.
Elsta félagið eða það sem fyrst
var stofnað var Hestamanna-
félagið Fákur í Reykjavík en
stofnfundur þess var haldinn 24.
apríl 1922. Megin stefnumið
félagsins í byrjun voru tvenn; í
fyrsta lagi að koma upp skeiðvelli
og efna þar til kappreiða og í öðru
lagi að tryggja félagsmönnum
góða sumarhaga fyrir hesta sína.
Fleiri félög bættust svo fljótlega
við; árið 1928 voru félögin Léttir á
Akureyri og Glaður í Dalasýslu
stofnuð, árið eftir Sleipnir í
Árnessýslu og svo 1933 Hesta-
mannafélögin Faxi í Borgarfirði og
Léttfeti á Sauðárkróki, félögunum
fjölgaði svo jafnt og þétt og
stofnuðu þau í sameiningu Lands-
samband hestamannafélaga (LH)
18. desember 1949. Stofn-félögin
voru Faxi í Borgarfirði, Fákur í
Reykjavík, Dreyri á Akranesi,
Geysir í Rangárvallasýslu, Léttfeti á
Sauðárkróki, Léttir á Akureyri,
Neisti í Austur-Húnavatnssýslu,
Sindri í V-Skaftafellssýslu, Sleipnir
á Selfossi, Smári í Árnessýslu,
Stígandi í Skagafirði og Sörli í
Hafnarfirði. Skömmu síðar gengu
svo Glaður í Dalasýslu og Hörður í
Kjósarsýslu í sambandið.
Inntak starfsemi hestamanna-
félaganna var áþekkt hvarvetna,
þ.e. að vinna að sameiginlegum
hugðar- og hagsmunamálum
hestamanna, hagamálin brunnu
eðlilega heitar á mönnum í
þéttbýlisfélögunum en allsstaðar
var hins vegar þörf á að koma sér
upp aðstöðu til hestaþinga sem á
þessum tíma voru fyrst og fremst
kappreiðar og vallarsvæðin
almennt kölluð skeiðvellir.
Kappreiðar í Bolabás
Til vitnis um metnað manna og
kapp á þessum tíma skal hér rakin
stuttlega áhugaverð frásögn sem
kemur fyrir í riti Einars E.
Sæmundsen, sjá hér framar í
greininni, kallast hún einfaldlega
Þingvallakappreiðarnar og þar
segir frá því framtaki Fáks að efna
til kappreiða á Alþingishátíðinni á
Þingvöllum 1930 en þá var þess
minnst að þúsund ár voru liðin frá
því að alþing var þar fyrst sett. Um
þetta framtak segir í téðu riti:
„Mundi eigi á annan hátt betur
vakin athygli á þeim merkilega
þætti í sambúð hests og manns.
Er studdi að því um aldaraðir, að í
sólmánuði sumar hvert lágu allar
leiðir á Þingvöll.“
Stórhuga undirbúningur Fáks-
manna hófst með löngum
fyrirvara sem fólst m.a. í að hvetja
til stofnunar hestamannafélaga í
helstu hrossasveitum, í þeim
tilgangi að fá þaðan þátttakendur
og hvatningu til félagsmanna að
herða sig og bæta undirbúning
eigin hrossa, einkum hvað þjálfun
á vekringum varðaði en skeið-
íþróttin þótti þá í mikilli lægð.
Einnig voru í góðum tíma hafnar
viðræður við afmælisnefndina,
fundinn nothæfur keppnisvöllur,
að mestu frá náttúrunnar hendi,
inni í Bolabás og hann undirbúinn
af stórhug miklum; hreinsaður af
kjarrgróðri, sléttaður eftir þörfum
og þjappaður. Mældur var út 400
m völlur og 25 m breiður og gert
ráð fyrir að 10 til 12 hestar gætu
keppt í senn. Byggður var
dómpallur og hús fyrir veðbank-
ann auk þess sett upp stúka fyrir
fyrirmenni. Jafnframt beittu menn
sér fyrir lagningu vegar af megin
hátíðarsvæðinu inn að kapp-
reiðasvæðinu og girt girðing til að
beina áhorfendum að formlegum
inngangi inn á sjálft kappreiða-
svæðið.
Þrátt fyrir þetta allt fór
framkvæmdin nokkuð út um
þúfur á hátt sem segja má svo
„grátlega íslenskan“, eins og svo
margir kannast við sem staðið
hafa í eða fylgst með mótahaldi
hestamanna eða almennu úti-
hátíðahaldi hérlendis í gegnum
áratugina. Þrátt fyrir mikinn stór-
hug Fáksmanna hvað verðlaunafé
varðaði (heildarupphæð þess
nam 3700 kr. sem er á núvirði
rúmlega ein milljón króna) varð
minna um skráningar hrossa utan
Fáks en við var búist, hrossin
skiluðu sér að auki seint og illa til
keppninnar en margir skráðir
hestar sáust aldrei á mótsstað.
Ekkert varð því úr lokaæfingu.
Kvöldið fyrir keppnina, en hún fór
fram kl. 10 árdegis annan dag
hátíða haldanna (föstudaginn 27.
júní), var kuldi og krepjuhríð þó úr
rættist morguninn eftir. Þegar
keppnin átti svo að hefjast tók ekki
betra við, örtröð myndaðist um þá
fáu kassabíla til fólksflutinga sem
til staðar voru, þúsundir manna
gengu því inn Sleðaásshraun til að
komast á keppnisstaðinn, þ.m.t.
flestir starfsmenn kappreiðanna.
Riðluðust menn yfir girðinguna
þar sem að var komið og
merkjasala Fáks (ígildi aðgöngu-
miða) sem ásamt með veð-
bankanum átti að standa undir
kostnaðinum fór úr böndunum þó
fjöldi skáta væri á svæðinu í þessu
skyni að selja merki. Ýmsir svöruðu
jafnvel með þjósti að þeim bæri
engin merki að kaupa þar eð þeir
væru þjóðhátíðargestir! Veð-
bankanum þurfi svo að loka eftir
tvo fyrstu sprettina því afgreiðslan
öll stíflaðist vegna ásóknar í
veðmiða en tímaramminn sem
kappreiðunum var ætlaður á
dagskránni var afar knappur,
kappreiðarnar varð því að drífa
áfram. Hvað völlinn sjálfan varðaði
kom í ljós er að keppninni dró að
hann var laus til vansa á þeim
köflum er hann var sem
sendnastur, hafði verið sléttaður
og/eða kjarrgróður burthreins-
aður, en einungis frekar lítill valti
var á staðnum en hann var
notaður til að þjappa völlinn
dögum saman. Voru því gerðar
ráðstafanir til að fá öflugan valtara
frá Reykjavík en vöruflutninga-
bíllinn með valtarann sat fastur í
umferðarþvargi þegar svo var
komið að bílar máttu ekki aka
niður Almannagjá.
Þó svo sannarlega gæfi á
bátinn eins og hér er rakið eru
kappreiðarnar í Bolabás á sjálfri
Alþingishátiðinni á Þingvöllum árið
1930 merkur atburður og vitna
um kjark og stórhug þeirra manna
er að stóðu.
Í næstu greinum verður vefur
keppnissögunnar ofinn áfram.
Kristinn Hugason
Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins
Meiri frásögur af keppni á hestum
HESTAR OG MENN
Myndatexti: Sigurður Ólafsson, skeiðkóngur og söngvari, lætur gamminn geysa á fyrsta landsmótinu á Þingvöllum árið 1950. Þá var lögð skeiðbraut á Leirunum neðan
Hvannagjár. MYND: ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
33/2019 9