Morgunblaðið - 19.05.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 19.05.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 2020 Ársfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands Ársfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 3. júní 2020 kl. 16:00 í útibúi Landsbankans Austurstræti 11. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum sjóðsins. Upplýsingar um fundinn og ársreikning má nálgast á heimasíðu sjóðsins www.landsbankinn.is/ltfi . Stjórn Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta fór auðvitað alveg gríðar- lega vel af stað í faraldrinum enda fjölmargir fastir heima. Við fundum síðan fyrir samdrætti þegar takmörkunum var aflétt,“ segir Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastóri Hagkaupa, um netsölu hjá versluninni síðustu vikur. Að sögn hans náði netsala fyrir- tækisins hámarki um páskana en hefur frá þeim tíma dalað tals- vert. „Það voru auðvitað hundruð manna í einangrun eða sóttkví. Þegar sá kúfur minnkaði og höft- unum var létt eftir páskana var alveg ljóst að landinn vildi fara út í búð í stað þess að fá sent heim,“ segir Sigurður en tekur þó fram að netverslun Hagkaupa sé áfram opin. Fram til þessa hafi verk- efnið jafnframt gengið vel „Við fórum af stað með þetta þegar veiran kom hingað fyrst og þegar best lét voru þetta hundruð send- inga á viku. Nú hefur þetta náð jafnvægi og sendingar hlaupa á tugum vikulega,“ segir Sigurður. Að sögn hans var ákveðið að fara af stað með mjög einfalda út- gáfu af netverslun. Þannig var lítið umstang í kringum netverslunina, sem jafnframt auðveldaði opnun hennar. Þar geta viðskiptavinir nálgast allar helstu nauðsynjavör- ur. Síðar er þó ráðgert að net- verslunin verði stærri og öflugri. „Það er mjög einfalt að halda utan um þetta og hún verður fyrst um sinn í óbreyttri mynd. Framtíð- arplanið er síðan að smíða stærri netverslun og bjóða upp á breiðara úrval. Þá er ég til dæmis að tala um fatnað og snyrtivörur, að mat- vörum undanskildum,“ segir Sig- urður. Spurður hvort hann eigi von á því að netverslun styrkist næstu misseri kveður Sigurður nei við. Hann eigi fremur von á því að landsmenn fari sjálfir í verslanir. „Ég held að það hafi náðst ákveðið jafnvægi í þessu síðustu vikur þar sem salan hefur verið nær óbreytt. Nú þegar sólin er síðan farin að skína og ástandið að nálgast eðli- legt horf hefur verið alveg brjálað að gera hjá okkur. Reiðhjólasala hjá okkur hefur tvöfaldast auk þess sem grillsalan er að taka miklu fyrr við sér en venjulega. Það er því alveg ljóst að lands- menn voru farnir að vilja komast út,“ segir Sigurður. Netsala dregist saman síðustu vikur  Starfsmenn Hagkaupa fluttu hundruð sendinga vikulega þegar best lét  Reiðhjólasala tvöfaldast og grillsala tekur miklu fyrr við sér  Brjálað að gera í verslunum eftir að takmörkunum var aflétt Morgunblaðið/Arnþór Hagkaup Netsala hjá verslunum Hagkaupa hefur dregist saman síðustu vikur. Að sögn framkvæmdastjóra fyrir- tækisins hefur stöðugur straumur fólks verið í verslanir eftir að takmörkunum var aflétt. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Minnisvarði um Stjörnu-Odda Helgason verður afhjúpaður á Grenjaðarstað á sólstöðum, 20. júní næstkomandi. Er tíminn viðeigandi því Oddi var talinn merkur vís- indamaður miðalda og reiknaði með- al annars út hvenær sólstöður yrðu á sumri og vetri. Stjörnu-Oddi er söguleg persóna sem lítið er vitað um, meðal annars er ekki vitað hvenær hann fæddist. Það sem vitað er um hann sjálfan er skráð í Íslendingaþætti sem heitir Stjörnu-Odda draumur. Þar kemur fram að hann var í vist í Múla í Reykjardal [nú Aðaldal]. Hann var talinn fróður mjög og gekk út um nætur til að skoða stjörnur, bæði í Múla og í Flatey þegar hann dvaldi þar. Merkur boðskapur Eitt merkasta framlag Íslendinga á miðöldum til viðfangsefna raunvís- inda er svokölluð Odda tala sem er eignuðu norðlenska vinnumanninum Stjörnu-Odda, skrifar Þorsteinn Vil- hjálmsson, fyrrverandi prófessor í eðlisfræði og vísindasögu, í svari á Vísindavefnum. Þorsteinn segir við Morgunblaðið að merkur boðskapur sé í þessu riti, sem er frá miðri tólftu öld, og allt það sem þar komi fram sé í aðalatriðum rétt, miðað við að- stæður á þeim tíma. Í ritinu eru þrír kaflar um sólar- ganginn. Sá fyrsti er um tímasetn- ingar á sólhvörfum og hvernig þau breytast á hlaupári. Annar kafli er merkilegastur að sögn Þorsteins, enda líklega tengdur sjálfstæðum athugunum Stjörnu-Odda. Hann snýst um það hvernig sólin hækkar frá vetrar- til sumarsólstaða. Þetta er fróðleikur sem hægt er að nota við úthafssiglingar. Þriðji kaflinn fjallar um dögun og dagsetur og má einnig nota í sama tilgangi. Nýttist við úthafssiglingar Þorsteinn segir að þekkingin sem þarna er skráð hafi verið mikilvæg á þessum tíma. Minnir hann á að eng- inn áttaviti hafi þá verið til í Evrópu. Sjómenn sem voru að fara á milli eyja í Norður-Atlantshafi, meðal annars milli Noregs og Íslands, hafi getað notað stöðu sólarinnar til að sigla eftir. Morgunblaðið/Ómar Víkingar Íslendingur heldur í Vínlandssiglingu sína árið 2000. Sæfarar og landkönnuðir víkingaaldar og íbúar eyjanna á Norður-Atlantshafi höfðu ekki tæki til að sigla eftir en þekking á gangi sólar kom í góðar þarfir. Minnast Stjörnu-Odda, vísindamanns á miðöldum  Reiknaði út sólstöður og dagsetur  Fróðleikur til siglinga Lilja Hrund Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is Þrátt fyrir að sundlaugar landsins hafi verið opnaðar að nýju í gær er Ylströndin við Nauthólsvík enn lok- uð, áhugafólki um sjósund til mikils ama. Herdís Anna Þorvaldsdóttir, formaður SJÓR - Sjósunds- og sjó- baðsfélags Reykjavíkur, segir að sjó- sundskappar séu margir hverjir orðnir óþreyjufullir eftir því að að- staðan við Ylströndina verði opnuð á nýjan leik. „Það hafa margir sjó- sundsiðkendur haft samband að leita upplýsinga og lýst undrun,“ segir Herdís. Hún segir félagið hafa fengið þær upplýsingar að til standi að opna bún- ingsaðstöðu í næstu viku en ekki sé enn fyrirséð með heita pottinn, mögu- lega vegna þess að það er ekki klór í honum, samt sé Guðlaug, heiti pott- urinn á Akranesi, opin og þar sé held- ur ekki klór. Umframeftirspurn allt árið „Síðan er þetta mögulega spurning um aðgangsstýringu og það er það sem við höfum helst verið að gagn- rýna í gegnum tíðina. Okkur finnst ekkert eðlilegt að það sé frítt á sumr- in í aðstöðuna en að við sem notum sjóinn okkur til heilsubótar borgum á veturna, sem er ekki í samræmi við rekstur annarra sundstaða Reykja- víkur. Tíminn sem opið er hefur verið skertur undanfarinn vetur en það er samt umframeftirspurn allt árið. Með því að auka tekjur væri hægt að lengja tímann sem opið er og dreifa álaginu. Við erum öll af vilja gerð að fara varlega af stað og auðvitað get- um við beðið lengur, en það er ým- islegt sem við teljum að hægt væri að gera til að finna lausn,“ segir Herdís. Hún segist binda vonir við það að búningsaðstaða og sturtur verði opn- aðar að nýju á sama tíma og líkams- ræktarstöðvar verði opnaðar, 25. maí nk. Herdís segist skilja að íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur, sem sér um rekstur Ylstrandarinnar, vilji fara varlega af stað. „Við skiljum að það sé vilji til að fara hægt af stað og vitum að fólk myndi fara eftir fyrirmælum og virða aðgangsstýringu þarna alveg eins og í sundlaugum og annars stað- ar í samfélaginu ef því væri gefið tækifæri til þess,“ segir Herdís. Ylströndin áfram lokuð eftir opnun sundlauga Áhugahópur hefur í samvinnu við sveitarfélögin Þingeyjar- sveit og Norðurþing látið gera minnisvarða um Stjörnu-Odda og verður hann afhjúpaður á Grenjaðarstað á sólstöðum 20. júní. Þá verður einnig efnt til málþings. Múli þar sem Stjörnu- Oddi var er skammt frá Grenj- aðarstað. Steinsmiðja Akureyrar smíð- ar og reisir minnisvarðann, sem Örn Smári Gíslason myndlist- armaður hefur hannað. Hann verður úr steini. Áhuga- mannahópurinn, sem meðal annars er skipaður stjörnu- áhugamönnum, hefur safnað fyrir kostnaðinum. Meðal ann- ars hafa skólar á Akureyri lagt honum lið. Afhjúpaður á sólstöðum MINNISVARÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.