Morgunblaðið - 19.05.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 2020
Aðalfundur Haga hf. 9. júní 2020
Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn þriðjudaginn
9. júní 2020 og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica,
Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1) Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
2) Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu
endurskoðanda, lagður fram til samþykktar.
3) Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2019/20.
4) Tillaga að lækkun hlutafjár og breytingu á samþykktum.
• Grein 2.1 um hlutafé félagsins verði breytt þar sem
hlutafé verði lækkað úr kr. 1.213.333.841 að nafnverði
í kr. 1.180.624.568 að nafnverði og eigin hlutir, að
nafnverði kr. 32.709.273, þannig ógiltir.
5) Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda.
6) Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu og skýrsla starfskjaranefndar.
7) Kosning tilnefningarnefndar.
8) Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda.
9) Ákvörðun um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum.
10) Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru
upp borin.
Ítarlegri upplýsingar um tillögur stjórnar, ársreikning og önnur gögn, ásamt
upplýsingum um póstatkvæðagreiðslu, rétt hluthafa til að bera fram tillögur
og framboð til stjórnar er að finna á vefsíðu félagsins,
http://www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/adalfundur/
Stjórn félagsins vill einnig árétta að forsvarsmenn hluthafa sem
sækja fundinn, þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða,
einstaklinga og annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á
fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.
Stjórn Haga hf.
Brynjar Níelsson alþingismaðurhefur bersýnilega fengið nóg
af fyrirspurnum sumra kollega
sinna og hefur nú sent fyrirspurnir
á öll ráðuneytin þar sem hann spyr
sömu þriggja spurninganna:
1. Hversu marg-ir starfsmenn
ráðuneytisins
koma að því að
undirbúa skrifleg
svör við fyrir-
spurnum þing-
manna og hver er
áætlaður heildar-
fjöldi vinnustunda
sem í það hefur farið árlega síðast-
liðin fimm ár?
2. Hver er heildarkostnaðurráðuneytisins við skrifleg
svör við fyrirspurnum frá þing-
flokki Pírata á yfirstandandi lög-
gjafarþingi og hversu margar
vinnustundir starfsmanna hafa far-
ið í að svara þeim?
3. Hvað eru fyrirspurnir tilskriflegs svars frá hverjum
þingmanni í þingflokki Pírata hátt
hlutfall slíkra fyrirspurna til ráð-
herra?
Eins og mál hafa þróast á þingieru þetta áhugaverðar spurn-
ingar og löngu tímabærar.
Þingmenn Pírata, í mismiklummæli þó, virðast telja sig lítið
annað erindi eiga á löggjafar-
samkomuna en að spyrja út í alla
mögulega og ómögulega hluti, iðu-
lega það sem hægt er að fletta upp
í opinberum gögnum.
Full ástæða er til að taka á þess-um ósið, þó ekki væri nema til
að freista þess að færa umræðuna
á Alþingi á ögn hærra plan. Sparn-
aður væri svo kærkominn bónus.
Brynjar Níelsson
Þarfar spurningar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Stefán Yngvason hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri lækninga
á Reykjalund frá 1. júní næst-
komandi. Hann hefur undanfarna
mánuði verið formaður starfs-
stjórnar Reykjalundar og starf-
andi framkvæmdastjóri lækninga.
Stefán er sérfræðingur í
endurhæfingarlækningum og hef-
ur starfað við þær frá árinu
1988. Hann var m.a. við stjórn-
völinn við uppbyggingu endur-
hæfingar á Kristnesi og var yfir-
læknir á Grensásdeild Land-
spítalans.
Stefán yfir lækning-
um á Reykjalundi
Blómstrandi gullsnotra fannst ný-
lega í Vaðlaskógi í Eyjafirði. Hún er
allnokkuð notuð í görðum og við
ræktun hérlendis en hefur ekki áður
verið skráð sem slæðingur hér á
landi. Greint er frá þessu á vef Nátt-
úrufræðistofnunar og þar segir að
meðal annarra nafna yfir tegundina
séu fagursóley, gullanimóna, gull-
sóley og gul skógarsóley.
Það var starfsmaður Náttúru-
fræðistofnunar Íslands á Akureyri
sem kom auga á blómstrandi plöntur
í Vaðlareitnum. Við greiningu kom í
ljós að um tvær ólíkar tegundir var
að ræða, sem báðar eru slæðingar.
Annars vegar skógarsóley, sem er
algeng tegund víða um Norðurlönd
og sannkallaður vorboði þar. Hin
tegundin var gullsnotra.
Þessi afmarkaði fundur gullsnotru
dugar tæplega til að skrá hana sem
ílendan slæðing á landinu, segir á
vef Náttúrufræðistofnunar. Til að
teljast ílendur slæðingur þarf fjölær
plantna að hafa spírað og þroskast
frá fræi í að minnsta kosti tvær kyn-
slóðir eða fjölgað sér kynlaust í að
minnsta kosti 30 ár. Fylgst verður
með afdrifum gullsnotrunnar.
Ljósmynd/NÍ-Starri Heiðmarsson
Blómstrandi Slæðingarnir skógarsóley og gullsnotra í Vaðlareitnum.
Gullsnotra í blóma
Ekki áður skráð sem slæðingur
Fannst í Vaðlareit í Eyjafirði