Morgunblaðið - 19.05.2020, Page 16

Morgunblaðið - 19.05.2020, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 2020 Þegar lífskjarasamn- ingarnir voru gerðir í apríl 2019 voru komin svört ský á loft, WOW air farið á hausinn, at- vinnuleysi að aukast, útlit fyrir fækkun ferðamanna. Fram undan var sársaukafull aðlögun íslensks at- vinnulífs að hærri kostnaði, viðskipta- bankarnir farnir að minnka útlán og hagvöxtur að hægjast. Í janúar 2020 var fjöldi atvinnu- lausra kominn í 9.618 manns, en var í desember 2018 5.299 manns, sem eru fáir í sögulegu samhengi. Seðla- bankinn var að reyna mikla jafn- vægislist, að lækka vexti smám sam- an, lækka gengið um 17% á vormánuðum 2019 og halda verð- bólgu í 2,5% eða lægra. Þetta tókst hjá Seðlabankanum. Svo kemur CO- VID-faraldurinn, flug og ferða- mennska lagðist af á einni nóttu, eftirspurn snarminnkaði. OECD- lönd öll sjá nú mesta atvinnuleysi í eina öld og mesta samdrátt í hag- vexti að minnsta kosti frá kreppunni miklu 1930. Viðskiptabankarnir, Seðlabankinn og aðrir aðilar spá allir að minnsta kosti um 10% samdrætti í þjóð- arframleiðslu á yfirstandandi ári, er það meðal annars byggt á því að ríkissjóður örvi efnahagslífið, að ekki verði of mikill samdráttur í eft- irspurn eftir íslenskum vörum og að hingað komi a.m.k. 500.000 ferða- menn það sem eftir lifir ársins 2020. Gangi þessar forsendur ekki eftir þá gæti samdráttur ársins orðið allt að 20%. Eftirspurn eftir vörum og þjónustu innanlands hefur þegar dregist saman, eftirspurn eftir út- flutningsvörum hefur einnig dregist saman. Bandaríski fjárfestingabankinn Goldman Sachs spáir því að atvinnu- leysi í USA verði a.m.k. 25% [35% með óskráðu atvinnuleysi], sambæri- legt eða verra en í heimskreppunni 1930, og mun það valda verulegum eftirspurnarvanda ekki bara í USA heldur um allan heim. Þeir óttast að atvinnu- leysi í USA verði veru- legt í lok árs 2021 og að það taki milli 5 og 10 ár fyrir atvinnulífið að jafna sig að fullu. Í nýrri könnun fyrir Samtök atvinnulífsins kom í ljós að 75% þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í könnuninni hafi gert ráðstafanir til að mæta minni eft- irspurn. Tekjur 25% fyrirtækjanna höfðu lækkað meira en 75% í apríl sl. Viðskiptabankarnir stigu á brems- urnar strax á árinu 2018 og minnk- uðu útlán til fyrirtækja og almenn- ings. Þeir hafa notað vaxtalækkanir Seðlabankans til að auka vaxtamun og auka tekjur sínar. Síðustu daga hafa viðskiptabankarnir tilkynnt að þeir séu að leggja í afskriftarsjóði til að mæta væntanlegum töpum á lán- um. Þessar aðgerðir viðskiptabank- anna munu auka samdrátt efnahags- lífsins. Aðgerðir Seðlabankans í byrjun COVID-faraldurs gerðu ráð fyrir að viðskiptabankarnir gætu tekið á sig áföll frá viðskiptavinum sínum allt að 300 ma. [um 10% af útistandandi lánum]. Viðskiptabankarnir virðast ekki tilbúnir að taka á sig nema lít- inn hluta af þessari fjárhæð. Rík- isbankarnir standa sig vel í sinni starfsemi, sem meðal annars þýðir að þeir eru ekki að fara eftir beinum og óbeinum tilmælum Seðlabanka og ríkisstjórnar um útlán, vexti, vaxtamun og viðbrögð við COVID. Hvað ætlar ríkið að gera? Taka fram fyrir hendurnar á ríkisbönk- unum? Góðu fréttirnar eru þær að ýmis erlend aðföng hafa lækkað í verði, svo sem olía. Þessi lækkun ætti að skila því að viðskiptahalli við útlönd á árunum 2020 og 2021 ætti að verða lítill. Aðrar góðar fréttir eru að 17% lækkun gengis íslensku krónunnar virðist ætla að ganga eft- ir án þess að verðbólgan fari af stað. Rétt er að hrósa ríkisstjórninni fyrir útfærslu á opnun landamæra Íslands fyrir ferðamönnum. Þar var hugsað aðeins út fyrir boxið, tekið frumkvæði með fínar lausnir þar sem hægt er að leyfa Íslendingum og erlendum ferðamönnum að koma til Íslands án þess að þurfa að fara í 2 vikna sóttkví. Hvernig væri að búa til svipaða lausnir fyrir ferðir hand- hafa íslenskra vegabréfa til útlanda? Eins og það er vond hagfræði að ríkið eigi viðskiptabankana, þá á það sama við um flugfélög. Það var dýrt að sjá WOW fara af markaðinum og enn verra ef Icelandair fer á haus- inn. Áður en COVID-faraldurinn kom til voru farnar að berast slæm- ar fréttir af Icelandair, mistök í vörnum gegn háu olíuverði, mjög lág framleiðni og það virðast hafa verið gerð mistök í kaupum á MAX- flugvélum. Icelandair þarf að ná samningum við starfsfólk um að laga framleiðnina, við ríkið um styrki, brúarlán til langs tíma og að fá aukið hlutafé frá hluthöfum. Ríkið ætti að gera þjónustusamning við Icelandair og önnur íslensk flugfélög [Play og önnur] til langs tíma þar sem þau væru studd en eigendur og starfsfólk tækju á sig ákveðnar skyldur á móti. Fyrirsjáanleiki er mikilvægur, ekki bara fyrir flug- félögin og ríkið heldur líka ferða- þjónustuna í heild sinni. Samkvæmt nýjustu hagspám verður árið 2020 mjög erfitt, þá gera erlendar hagspár ráð fyrir enn verra árferði en spáð er á Íslandi. Vonandi eru íslensk stjórnvöld ekki bara að gera áætlanir um hvernig við komumst vel frá 8% samdrætti til skamms tíma heldur einnig áætlanir um hvernig við ráð- um við stöðuna fari svo að svart- sýnni spár um þjóðarframleiðslu 2020 og til næstu ára gangi eftir. Eftir Holberg Másson » Þegar lífskjarasamn- ingarnir voru gerðir í apríl 2019 voru komin svört ský á loft, WOW air farið á hausinn, at- vinnuleysi að aukast Holberg Másson Höfundur er framkvæmdastjóri. COVID, leggjast á árarnar, róa saman Hvað er gert fyrir eldri borgara sem eru með veikan maka? Lyf kosta sitt þegar kaup- ið er lágt. Jú, það er gott fyrir einstaklinga sem eiga erfitt upp- dráttar, eru kannski einmana, jafnvel ör- yrkjar eða veikir, að hringja í síma Rauða krossins 1717. Gott framtak! Vonandi að eldri borgarar og öryrkjar noti sér það. Nú er verið að tala um aðgerða- pakka fyrir stærri fyrirtæki, miðl- ungsfyrirtæki og lítil. En hvað með fólkið í landinu? Til dæmis eldri borgara og öryrkja. Getum við farið í bankann og fengið lán eða hækkun á heimild á korti? Getum við sleppt því að borga skatta eða, ef fólk er í vanskilum, borgað seinna meðan veiran gengur yfir? Þessar lausnir eru boðnar fyrirtækjum en ekki fólkinu í landinu. Svo mikið er víst að ekki hækka launin hjá okkur elli- lífeyrisþegum og öryrkjum. Þeir eiga kannski 30.000 krónur eftir til að lifa á út mánuðinn þegar búið er að borga skuldir og húsnæðis- kostnað. Það væri lausn að minnka við sig húsnæði ef eldri borgarar eiga stórar eignir, en þá kemur ann- að til: einungis standa til boða rándýrar nýjar íbúðir, þannig að verðið sem fæst fyrir gömlu eignina dugir ekki fyrir minni eign. Ég las um daginn í Morgun- blaðinu grein eftir Ingu Sæland: Hvenær kem- ur að fólkinu? Hún tal- ar um að fjölskyldur láglaunafólks, aldraðra og öryrkja væru við- urkenndir hópar í sam- félaginu. Hún nefnir líka verðtrygginguna sem gerir það að verkum að maður borgar bara af verðbótum á höfuðstól og verðbæt- ur á vexti. Höfuðstóllinn lækkar aldrei svo þú borgar margfalt meira en upphaf lánsins og í öll þau skipti sem þú borgar virðist lánið vera hærra og minnkar ekkert. Verð- trygginguna burt – þá kannski sér maður höfuðstólinn lækka af lán- unum. Hlustið á þingmenn Flokks fólks- ins, Ingu Sæland og Guðmund Inga. COVID-19 og eldri borgarar Eftir Ragnheiði Hrefnu Gunn- arsdóttur Ragnheiður Hrefna Gunnarsdóttir » Þessar lausnir eru boðnar fyrirtækjum en ekki fólkinu í landinu. Höfundur er fyrrverandi sjúkraliði og nú eldri borgari. rhrefna@visir.is Erfitt er að finna boðleg efni fyrir al- menna greinahöf- unda, sem og lesendur þeirra, nú í kófinu. Þó vekur athygli að bókmenntirnar virð- ast enn vera þjóðráð Íslendinga á þreng- ingatímum, hvort sem það eru hér í blaði glaðleg viðtöl um bók- lestur, skrif um skáld eða vísna- hornið. Sláandi var um daginn er grein- arhöfundur nokkur ræddi hér þá kenningu sína að Jónas Hall- grímsson, merkisberi ljóðskálda- hefðar þjóðarinnar, hefði haft kók- aínduft í huga er hann orti Alsnjóa! Varð það að umtali úti í bæ og þótti sitt hverjum. En pínlegast þótti væntanlega sumum að við skyldum enn vera að hengja hatt okkar svo mjög á þetta tveggja alda gamla skáld þegar við höfum fengið nokkra jafnoka hans síðan er vísa nú betur til seinni tíma. (Af látnum skáldum get ég þar nefnt Grím Thomsen og Sigurð Pálsson heitinn!) (Við þökkum Guðna Björgólfs- syni, fyrrv. skólastjóra og kennara, fyrir greinina. Mættum við fá meira að heyra!) Það var enda vegna slíkrar upp- lýsingaþarfar til almennings að ég var í fyrra útnefndur sem Lárvið- arskáld Íslands, að breskri (og nú einnig bandarískri) fyrirmynd, en vegna samkomubannsins í kófinu eru nú góð ráð dýr um slíkar kynn- ingar: T.d. er ég að vinna á elliheimili einu í borginni við umönnun og þar er nú ekki lengur hægt, vegna kófs- ins, að koma fram í hátíðarsalnum okkar til menningarlegrar morg- unstundar fyrir íbúana. (Og sam- starfsfólkinu á minni deild er nú víst orðið hugstæðara að líta til sumarfrísins og ferða- laga þá en til deild- argleðskapar úti í bæ!) Er kórónuveiran fór að valda lokunum á elli- heimilinu, stuttu eftir að nóróveiran hafði áð- ur gert það sama, þótt- ist ég þá góður að geta snúið ástandinu upp í brandara, en hann var svona: „Einhver spurði: Hver kom með kór- ónuveiruna með sér hingað inn í húsið? Önnur svaraði: Ég veit það ekki, en í fyrradag kom hingað kona í heimsókn sem kvaðst heita Nóra kóróna!“ Þetta þótti nú innblásið skop! Ég segi nú pass að sinni, en ljúft er þó að segja frá því í kófinu að systir mín kæra, sem býr nú í út- löndunum torsóttu, hringdi í mig nýverið til að óska mér til hamingju með afmælið og sagði mér í leiðinni að hún væri loksins búin að lesa um síðustu heimsókn sína í einni ljóða- bókinni minni. Þar orti ég um hana í ljóði sem heitir: Silfurhringur á sjö- tugsaldri, svohljóðandi: Systkini mín færa mér nú áritaðan silfur-munnþurrkuhring bernskunnar; horfinna sæludaga í Kópavogi; áður en við dreifðumst út um veröldina. Rikki bróðir fægir hann nú upp í topp og Anna gleðst sem geymdi hann mér. Kórónan og kvæðaþjóðin Eftir Tryggva V. Líndal Tryggvi V. Líndal » Greinarhöfundur nokkur ræddi hér þá kenningu sína að Jónas Hallgrímsson, merk- isberi ljóðskáldahefðar þjóðarinnar, hefði haft kókaínduft í huga er hann orti Alsnjóa! Höfundur er skáld og menningar- mannfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.