Morgunblaðið - 19.05.2020, Side 20

Morgunblaðið - 19.05.2020, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 2020 ✝ Hörður Sig-tryggsson fæddist 5. mars 1948. Hann lést 2. maí 2020. Hörður var sonur hjónanna Sigtryggs Ólafs- sonar frá Brekku í Glerárhverfi, f. 14. nóvember 1922, d. 2. nóvember 2004, og Kristínar Þor- bjargar Stefáns- dóttur frá Miðbæ í Svarfaðardal, f. 11. ágúst 1925, d. 21. maí 2012. Hörður var ókvæntur og barnlaus. Systkini hans eru: Ólafur, f. 23. mars 1945, d. 26. júní 1984. Börn hans eru Sigtryggur, Guðjón Þór og Inga Hafdís. Heimir, f. 16. mars 1952. Börn hans eru Sigurður, Kristín og Linda Ösp. Guðrún Hólm- fríður, f. 1. desem- ber 1959. Maki Stefán Guðmunds- son, dóttir þeirra er Kristín Jó- hanna. Útför Harðar fer fram í kyrr- þey 19. maí 2020. Hann minnti mig oft á að hann væri þorpari og hló. Á Akureyri eru það meðmæli því þeir allir eru fæddir utan Glerár og til- heyrðu Lögmannshlíðarsókn! Sr. Matthías Jochumsson sagði við fyrsta bæjarstjóra bæjarins þeg- ar hann vildi ekki láta ávarpa sig sem borgarstjóra og varla væri hægt að kalla hann bæjarstjóra því Akureyri var ekki nema þorp: Jæja, þá kalla ég þig yfirþorpara. Hörður hló gjarnan að þessu þeg- ar þetta mál bar á góma og ekki hefði hann haft á móti því að bera þennan titil, svo ánægður var hann með sínar heimaslóðir. Ég kynntist honum lítillega fyrir árið 1990 en mun betur eftir að ég flutti sjálfur norður til Ak- ureyrar 2001 og gerðist kennari. Tveim árum seinna tók ég við Hvítasunnukirkjunni sem safn- aðarhirðir. Þá var Hörður dyra- vörður og sýndi ágæta trú- mennsku. Mér er til efs að nokkur kirkja á Íslandi hafi haft betri dyravörð. Fyrir þeim sem komu að dyrunum opnaði Hörður með brosi, hló og bauð viðkom- andi velkominn. Hann virtist allt- af glaður. Stundum hafði hann á orði að nú væri hann dyravörður á æskuslóðum, leiksvæðinu sem honum var svo kært. Ýmislegt hrjáði hann þó sem leiddi til örorku og varð til þess að hann bjó við ótrúlegan skort. Ég hef aldrei skilið hvers vegna fólk með örorku er skilið eftir í skorti og vantandi, en ekki tapaði hann hlátrinum. Sambandið við móður hans gerði hann ánægðan því í hvert sinn sem samkomu lauk í Hvíta- sunnukirkjunni skundaði hann í stutta heimsókn til móður sinnar, kampakátur. Iðulega hitti ég hann á Gler- ártorgi. Þar vann hann þegar verksmiðjur KEA voru þarna en hin síðari ár kom hann iðulega til að hitta kunningja sína og heyra frá þeim sögur. Það virtist alltaf vera nokkuð kátt hjá vinahópn- um því Hörður gladdi þá alla með hlátri og kímni. Ég furða mig á að það að missa fót geti gefið jafn mikinn hlátur og gerðist hjá honum. Vegna syk- ursýki var hægri fótur tekinn af fyrir neðan hné. Þegar hann vaknaði eftir aðgerðina vildi minn fram úr rúminu og hreyfa sig. Þegar hann ætlaði að stíga í fótinn steyptist hann á andlitið. Við bramboltið kom starfsfólk spítalans inn á stofuna. Þar var Hörður að bramboltast á fætur, marinn og með ummerki eftir byltuna en hlæjandi yfir því að hann hafði gleymt því að búið væri að stytta fótinn um eina 35 cm! Nú má segja að líf hans hafi verið stytt um nokkur ár vegna veikinda og er ævi hans öll. Í dag, 19. maí 2020, hlýtur hann sinn reit í Lögmannshlíðarkirkju- garði. Þó að við heyrum ekki hlát- ur hans lengur þá verður ekki erfitt að minnast þessa góða dyravarðar sem bauð alla vel- komna í kirkjuna á æskuslóðum hans með glaðværð og hlátri. Blessuð sé minning þessa trú- bróður sem með gleði og hlýju bauð alla velkomna. Votta ættingjum samúð og bið þeim friðar á útfarardegi Harðar. Snorri í Betel. Snorri Óskarsson Hörður Sigtryggsson ✝ Klara JóhannaOttósdóttir fæddist í Reykjavík 15. desember 1964. Hún lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans við Hringbraut 28. apríl 2020. For- eldrar hennar voru Ottó H. Karlsson, f. 18. apríl 1946, d. 11. október 2007, og Guðríður Aðalsteinsdóttir, f. 13. febrúar 1946, d. 31. mars 2003. Systkini hennar eru 1) Ólafur Þór Ottósson, f. 14. október 1969, sambýliskona Helga Björg Sigurðardóttir, f. 28. júlí 1971. Börn þeirra eru Katrín Alexandra, f. 5. desem- ber 1989, Ottó Gauti, f. 26. nóv- ember 1997 og Birgitta Rún, f. 26. ágúst 2001. Katrín og eig- inmaður hennar Davíð Haukur Ásgeirsson, f. 22. maí 1990, eiga Helgu Margréti, Aron Mána og Helenu Ruth. 2) Aðal- heiður Björk Ottósdóttir, f. 4. febrúar 1976. 3) Ása Hrund Ott- ósdóttir, f. 10. júní 1980, sambýlis- maður Sigurþór Ragnarsson, f. 5. desember 1980, dóttir þeirra er Júlía Gurrý Sig- urþórsdóttir, f. 2. febrúar 2013. Klara bjó alla tíð í Hafnarfirði. Hún útskrifaðist sem viðskiptafræð- ingur frá Háskólanum í Reykja- vík 15. janúar 2005 og lauk síð- an mastersgráðu frá sama skóla í reikningshaldi og endur- skoðun 13. júní 2009. Hún vann ýmis skrifstofustörf í gegnum árin. Hún hóf störf hjá fyrirtækinu Gísla Jónssyni ehf., sem nú heitir Málningarvörur ehf., í desember 2001 og vann þar til dauðadags, fyrst við greiðslu reikninga, launa- greiðslur og afstemmingar og síðustu árin sem fjármálastjóri. Útför fer fram í kyrrþey. Elsku Klara mín. Með tár í augum og sár í hjarta kveð ég þig í dag. Ég trúi því varla að þú sért farin. Á þess- ari stundu finnst mér lífið svo ósanngjarnt og er höggið mikið fyrir okkur fjölskylduna að missa þig. Systkini þín misstu mömmu sína og pabba allt of snemma og núna þig, stóru syst- ur. Það var mikið áfall í haust þegar þú greindist og svo ég líka í sama mánuði. Veröldin fór gjör- samlega á hvolf en ég var bjart- sýn á framhaldið og viss um að við báðar kæmum heilar út úr þessu. Við höfðum áhyggjur hvor af annarri og töluðum um að þetta væri erfitt og leiðinlegt verkefni sem þyrfti að klára. En því miður þá fór það ekki þannig hjá þér, elsku engill. Þetta gerð- ist allt svo snögglega. Aðeins 4 dögum áður en þú kvaddir varstu aðallega að hugsa um að þú þyrftir að græja launin í vinnunni. Bara vika í mánaðamót og þú vildir passa upp á að strák- arnir fengju rétt útborgað. Það lýsir því svo vel hvað þú varst samviskusöm og að vinnan og strákarnir þar skiptu þig miklu máli. Þú vildir hafa allt pottþétt. Þú varst góð systir og alveg sama hvað okkur vantaði eða báðum þig um þá var svarið allt- af já. Þú vildir alltaf gera allt fyr- ir alla. Þú varst líka góð frænka og vildir fylgjast vel með frænd- systkinum þínum, spurðir alltaf hvað væri í gangi hjá þeim og gátu þau alltaf leitað til þín ef það vantaði aðstoð með heima- námið. Þú varst ekki bara mág- kona mín heldur góð vinkona líka. Við náðum svo vel saman al- veg frá því við kynntumst fyrst, þegar þú komst í heimsókn upp á Suðurbraut fyrir 24 árum, og mun ég geyma allar okkar minn- ingar um ferðalögin, útlanda- ferðirnar og spjallið um lífið og tilveruna. Það er óbærilegt að hugsa til þess að ég hitti þig ekki aftur, elskan mín, að þú komir ekki aftur í hrygg á laugardög- um eða kíkir í einn kaldan á sól- ardögum. Jólin og gamlárskvöld verða ekki eins án þín. Ég er svo þakklát fyrir að hafa verið með þér síðustu vikurnar þó það hafi verið erfitt líka. Þú varst alltaf svo sjálfstæð og baðst aldrei um aðstoð en þáðir hana undir það síðasta þegar sjúkdómurinn var farinn að ágerast. Ég er líka þakklát fyrir að hafa haldið í höndina þína síðasta kvöldið, kysst þig og sagt þér að ég elsk- aði þig. Ég ætla að trúa því að mamma þín og pabbi hafi tekið á móti þér. Það er örlítil huggun að hugsa til þess að þú sért með þeim núna því þú saknaðir þeirra svo mikið. Takk fyrir allt, elsku engill, og hvíldu í friði. Sakna þín sárt. Þín mágkona og vinkona, Helga. Í dag kveðjum við vinkonu okkar hana Klöru sem andaðist á Landspítalanum 28. apríl síðast- liðinn. Fyrstu kynni okkar af Klöru voru í Öldutúnsskólanum í Hafnarfirði. Það tókst með okk- ur vinátta sem hélst alla tíð. Við vinkonurnar höfum verið saman í saumaklúbb í nær 40 ár og hitt- umst mánaðarlega yfir vetrar- tímann. Við erum kannski ekki margar sem getum státað af því að vera myndarlegar í höndun- um, enda var tilgangur hans að- allega að hittast og eiga góða stund saman. Klara var hins veg- ar einstaklega myndarleg í hönd- unum og lítið mál fyrir hana að henda í eina peysu, kjól eða húfu. Og naut systurdóttir hennar, hún Júlía Gurrý, m.a. góðs af því. Við brölluðum kannski ekki mikið saman fyrir utan sauma- klúbbskvöldin sem haldin voru reglulega. Við upplifðum þó bæði gleði og sorg saman, fórum í nokkrar mjög skemmtilegar sumarbústaðarferðir ásamt því að skella okkur í borgarferð haustið 2018 til Edinborgar. Var þessi fyrsta ferð okkar utan sam- an líklega ein eftirminnilegasta ferð sem nokkur okkar hefur far- ið í. Hún byrjaði kannski ekki al- veg eins og við hefðum viljað þar sem við misstum næstum af flug- inu þar sem búið var að loka hlið- inu þegar við komust þangað. Ekki var ástæðan sú að við hefð- um verið of seinar á flugvöllinn heldur þurftum við að spjalla svo mikið í fríhöfninni. Sumar okkar voru farnar að leggja drög að gistingu í Keflavík því ekki vild- um við fara heim með skottið á milli lappanna. Allt endaði þetta nú vel og skemmtum við okkur stórkostlega. Við ræddum það gjarnan öðru hvoru í sauma- klúbbnum að skella okkur í aðra slíka ferð, en sú ferð hefur þó ekki enn verið farin. Það er ekki hægt að segja að við höfum slakað á í skemmt- analífinu þegar við vorum yngri og fannst Klöru 80’-tímabilið ekki leiðinlegt. Það rifjast upp hjá okkur margar skemmtilegar minningar um þennan tíma, eins og t.d. þegar við vorum mikið að flýta okkur í partí eða á ball og þá var kannski ekki mikill tími til að strauja allt saman sem átti að fara í, þannig að Klara leysti það vel með því að strauja bara þann hluta skyrtnanna sem sást. Það var mikið hlegið að því þegar far- ið var úr jakkanum og sá hluti sem ekki sást var allur krump- aður. Klara var traust og góð vin- kona. Hún var kannski ekki mjög málgefin en tók til orða þegar hún taldi sig hafa eitthvað að segja. Það var í lagi því við hinar tókum þetta bara á okkur. Við eigum eftir að sakna þess að hafa hana ekki lengur með okkur þegar við hittumst að nýju eftir þennan erfiða vetur þar sem veikindi hennar höfðu mikil áhrif á okkur allar. Við gleðjumst þó yfir þeim tíma sem við áttum með henni og vitum að henni líð- ur mun betur nú. Dimmt er hvert rökkur er dags- bjarminn þrýtur, dapur sá mökkur er lífinu slítur. Þá nóttin er gengin og árdagur ómar, þá ymur hver strengur og morgunninn ljómar. Ó, gætu þeir séð sem að syrgja og missa þá sannleikans gleði sem óhult er vissa, að bönd þau sem tengja’ okkur eilífð ná yfir, að allt sem við fengum og misstum það lifir. En alltaf það vekur hið innsta og hlýja, er alfaðir tekur og gefur hið nýja. Faðir í hendur þér felum við andann, fullvís er lending á strönd fyrir handan. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum) Elsku Heiða, Óli og Ása, við saumaklúbburinn sendum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Elva, Guðfinna, Guðrún, Hulda og Ólöf. Klara Jóhanna Ottósdóttir ✝ Sigurjón Þor-bergsson fæddist 17. janúar 1934. Hann lést 1. apríl 2020. Foreldrar hans voru Þorbergur Pétur Sigurjóns- son og Jónína Gunnarsdóttir. Systkini hans voru Freysteinn, Gunn- ar, Bragi, Einar, Ásmundur, Guðrún, Kristinn og Stefán lifa einir eftir. Eftirlifandi maki Sigurjóns er Þórunn Gunnþórsdóttir, fædd 1. júlí 1950. Þau gengu í hjónaband 1974. Synir þeirra eru Þorbergur Pétur og Jóhannes Elías. Maki Þorbergs er Amy Sigurjónsson. Kona Jóhanns er Mitzi Sigurjóns- son. Börn Þor- bergs eru Eirún Rebekka, Elín Lilja og Eva Vikt- oría. Börn Jóhann- esar Lúkas Jósef og Luis Sig- urjón. Útför Sigurjóns hefur farið fram. Minningarathöfn verður auglýst síðar. Það var haustið 1983 að áhuga- hópur vann að stofnun húsnæðis- samvinnufélags að norrænni fyr- irmynd. Einn í hópnum var Jón frá Pálmholti, formaður Leigj- endasamtakanna. Þegar hann kom á einn undirbúningsfundinn var með honum lágvaxinn og hlý- legur maður og ljós yfirlitum. Hann lét ekki mikið til sín taka í fyrstu en það átti eftir að breyt- ast. Þar var kominn Sigurjón Þorbergsson. Þann 26. nóvember það ár var endanlegur stofnfundur haldinn á Hótel Borg og nú þurfti nafn á fé- lagið. Í stofndrögum var lagt til að félagið héti: Húsnæðissam- vinnufélag Reykjavíkur og ná- grennis. Þá stóð upp Sigurjón Þorbergsson og stakk upp á nafn- inu: Húsnæðissamvinnufélagið Búseti. Nafnið fékk yfirgnæfandi stuðning. Fimm árum síðar upp á dag var fyrsta hús Búseta, að Frosta- fold 20 í Reykjavík, vígt með við- höfn. Það var dregið um staðsetn- ingu íbúða í húsinu með lýðræðislegum hætti, en húsið var 8 hæðir. Meðal kaupenda að búseturétti voru Sigurjón og kona hans, Þórunn Gunnþórs- dóttir. Þau drógu töluna átta. Á þessum stað var ekki hægt að komast nær almættinu. Fyrstu ár Búseta voru enginn dans á rósum. Baráttan fyrir því að fá þetta búsetuform viður- kennt með löggjöf tók 7 ár. Fljót- lega eftir stofnun félagsins var skipuð laganefnd til að vinna að þessu verkefni. Þá munaði heldur betur um Sigurjón og útsjónar- semi hans. Þegar við höfðum sett saman fyrsta texta að lögum fengum við þann góða mann Ragnar Aðalsteinsson til að semja frumvarp að lögum um húsnæðissamvinnufélög og það var síðan þáverandi félagsmála- ráðherra, Alexander Stefánsson, sem tók málið upp í ríkisstjórn. Þar hvorki gekk né rak og end- anlega var það í ráðherratíð Jó- hönnu Sigurðardóttur sem lög um búsetuformið voru samþykkt. Þá var komið árið 1991. Á þessum baráttuárum Búseta var stuðningur Sigurjóns við mál- staðinn ómetanlegur. Svo þurfti að prenta og fjölrita ýmis gögn og blöð. Þá var ekki lakara að eiga að fyrirtæki Sigurjóns, Letur, eitt sérstæðasta fyrirtæki landsins og vagga ungskáldanna. Saga Let- urs verður ekki rakin hér en verð- ur vonandi skráð sem merkur kapítuli í rótarmenningu okkar. Það er dýrmætt fyrir minn- ingabankann að eiga þar minn- ingar um ótal gjöfular stundir með heiðursmanninum, Sigurjóni Þorbergssyni. Alltaf fór maður ríkari frá því borði. Þar var ekki hávaðinn eða fyrirferðin. Lítillæt- ið dyggðin. Kæra Þórunn, Þorbergur og Jóhannes og fjölskyldur. Innileg samúð. Reynir Ingibjartsson. Sigurjón Þorbergsson bókaút- gefandi er allur. Ég kynntist Sigurjóni fyrst í kringum 1988, hjá mormónasöfn- uðinum í Reykjavík, en í þá daga sá ég mér leik á að spila á þver- flautu með mormónatrúboðunum er léku á gítar og píanó. Var þá Sigurjón þegar orðinn með virk- ustu félagsmönnunum þar og gast mér vel að honum. Varð þetta til að ég lét prenta fyrstu ljóðabók mína hjá honum. Var það árið 1989 (og hafði þá megnið af ljóðunum þegar birst í Lesbók Morgunblaðsins). Hann rak bókaútgáfuna Letur og var þá gjarnan kallaður Sigurjón í Letri. Var mælt að ljóðskáld hæfu gjarnan útgáfuferil sinn hjá hon- um. Við fylgdumst hvor með öðrum í gegnum tíðina og kallaði hann mig með tímanum stórskáld! Í bókinni birti ég kvæði sem var innblásið af lestri Mormóns- bókar og hafði birst áður í tímariti safnaðarins þar. Heitir kvæðið Mannakorn. Þykir mér nú við hæfi að kveðja Sigurjón með því, en þar segir svo í einu erindinu: Staðfastur vertu sem dalur. Vertu ei skoðunum falur. Láttu ei læki þig tæra né jarðskjálfta vantrúar hræra. Tryggvi V. Líndal. Sigurjón Þorbergsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GYÐA GUNNLAUGSDÓTTIR, Sléttuvegi 11, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 5. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjartadeild LSH við Hringbraut fyrir einstaka umönnun. Hörður G. Pétursson Pétur Rúnar Harðarson Björg H. Hávarðardóttir Bryndís Harðardóttir Bragi Björnsson Kristjana Gyða Pétursdóttir Davíð Sveinsson Gyða Steinarsdóttir Tryggvi Svansson Hörður Pétur Steinarsson og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR K. THORS húsfreyja, lést miðvikudaginn 13. maí á hjúkrunar- heimilinu Mörk. Útförin verður auglýst síðar. Ágústa Stefánsdóttir Margrét Þ. Stefánsdóttir Jón Magnússon Inga L. Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.