Morgunblaðið - 20.05.2020, Side 13

Morgunblaðið - 20.05.2020, Side 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020 Í vetur hafa nátt- úruöflin svo sannar- lega minnt okkur á hvaða kraftar það eru sem raunverulega ráða ríkjum. Veikleikar í raforkukerfinu sem Landsnet hefur í mörg ár bent á voru afhjúp- aðir. Samgöngur stöðvuðust og hefur Öxnadalsheiðin til dæmis verið ófær 12 sinnum í vetur. Þá lágu fjarskipti niðri. Kerfið sjálft fer ekki að lögum Uppi er gríðarlegur vandræða- gangur við uppbyggingu og viðhald raforku- og vegakerfisins í landinu. Sérlega verndað umhverfi hefur skapast þar sem stöku sveitarfélög, hagsmunasamtök og einstaklingar geta leyft sér að troða á hagsmun- um samfélagsheildarinnar, þrátt fyrir að málefnaleg rök liggi fyrir um nauðsynlega uppbyggingu grunninnviða okkar. Þetta eru ára- og áratugalangar tafir. Við búum við svo margflókið kerfi leyfis- umsókna og kæruferla að ekkert nágrannaríki okkar býr við annan eins reglufrumskóg. Hér verða rak- in raunveruleg dæmi sem Landsnet hefur þurft að þreyta í gegnum kerfið mánuðum og árum saman, langt fram úr öllum lögbundnum frestum, áður en hægt er að byrja hina eiginlegu vinnu við fram- kvæmdina. Þá hafa sveitarstjórnir nýtt sér tafaleiðir laganna þrátt fyr- ir að hafa áður samþykkt kerf- isáætlun Landsnets. 1. Auglýsing á tillögu og ákvörð- un um matsáætlun fyrir Hólasands- línu 3 tók fjóra og hálfan mánuð en á að taka fjórar vikur. Yfirferð á frummatsskýrslu sem á að taka tvær vikur tók fjóra mánuði og álit á matsskýrslu sem á að taka fjórar vikur tók sex mánuði. Samanlagt er þarna um að ræða ferli sem lögum samkvæmt á að taka tíu vikur en tók meira en ár og er þá bara rætt um hluta af nauðsynlegu heild- arferli. 2. Tímalína vegna undirbúnings fyrir Kröflulínu 3 segir svip- aða sögu. Kynning og ákvörðun um mats- áætlun sem á að taka fjórar vikur tók næst- um sex mánuði. Úr- skurður ÚUA sem á að taka þrjá mánuði tók tuttugu og einn mánuð. Yfirferð frummats- skýrslu fyrir kynningu sem á að taka tvær vikur tók yfir fimm mán- uði. Álit á matsskýrslu tók næstum fimm mánuði en átti að taka fjórar vikur. Eftir að því lauk tók heila sautján mánuði að ganga frá skipu- lagsmálum. 3. Nú liggur fyrir matsskýrsla fyrir Suðurnesjalínu 2 hjá Skipu- lagsstofnun og hefur legið þar síðan 13. september 2019. Álitið barst sjö mánuðum síðar. Álit Skipulags- stofnunar var eingöngu byggt á lög- um um mat á umhverfismálum en ekki í samræmi við stefnu stjórn- valda um uppbyggingu flutnings- kerfisins þegar sú stefna byggist á raforkulögum. Þessi upptalning er birtingar- mynd kerfis sem ræður ekki við sjálft sig og við verðum að breyta. Ég mun mæta sveitarstjórnar- og innanríkisráðherra í fyrirspurna- tíma í Alþingi. Þar mun ég spyrja ráðherrann hvort hann og þá ríkis- stjórnin sé reiðubúin að einfalda leyfiskerfi framkvæmda á Íslandi, líkt og rakið er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobs- dóttur. Ég mun spyrja ráðherrann fyrst hvaða innviði hann telji nauð- synlega með tilliti til almannahags- muna og hvort ráðherrann telji skynsamlegt að skilgreina þá inn- viði sérstaklega í lögum. Kerfið glórulaust Vegagerðin og Landsnet hafa það lögbundna hlutverk að vinna að þró- un og endurbótum á vegakerfinu og flutningskerfi raforku á sem hag- kvæmastan hátt, eftir því sem al- mannahagsmunir og þarfir sam- félagsins krefjast. Vegagerðinni ber þannig að stuðla að öruggum, sjálf- bærum, greiðum og hagkvæmum samgöngum í áætlunum sínum sem þróist í samræmi við stækkun byggðar, aukin umsvif atvinnulífs og umhverfisleg markmið. Það eru raunveruleg dæmi um að fram- kvæmdir sem eiga að færa sam- göngur heilu landshlutanna inn í nú- tímann hafi tafist árum og jafnvel áratugum saman. Ekki má gleyma því að kerfið er mannanna verk sem enginn ræður orðið við og kerfið sjálft hefur ekki lengur það að markmiði að gæta hagsmuna íbú- anna – samfélagsins alls. Kerfið er glórulaust á köflum og kæruleið- irnar í engu samræmi við það sem gerist í nágrannalöndum okkar, eins og sést á meðfylgjandi töflu1). Einföldum leiðirnar Í annan stað mun ég leggja þá fyrirspurn fyrir ráðherrann hvaða skilning hann leggur í ákvæði 3. mgr. 28. gr. vegalaga um heimild til að krefja sveitarfélög um kostnaðarmun vegna lagningar þjóðvega og hvort ráðherrann sé reiðubúinn að beita þessu ákvæði. Ástæðan fyrir þessari fyrirspurn er sú að uppbygging innviða getur verið kostnaðar- og áhættusöm. Þá áhættu tekur eigandi innviðanna, í langflestum tilfellum ríkið, og því verður að líta svo á að sé nýting lög- þvinguð, t.a.m. með eignarnámi sem krefst málefnalegs rökstuðnings á sjónarmiðum almannahagsmuna, er eðlilegt að hæfilegt endurgjald komi fyrir. Þessi ákvæði eru í lögum til að tryggja framgang innviðauppbygg- ingar með hliðsjón af almannahags- munum og almannaöryggissjónar- miðum sem réttlæta þetta inngrip í eignarrétt landeiganda og skipu- lagsvald sveitarfélaga. Ég mun því spyrja ráðherrann í þriðja lagi hvort ekki sé rétt að einfalda um- sagnar- og leyfiskerfið til samræmis við það sem gert er í nágrannalönd- um okkar þannig að málsmeðferð- artíminn fram að útgáfu fram- kvæmdaleyfis verði styttur til muna og að ekki sé hægt að kæra máls- meðferð á fyrri stigum. Þá er mik- ilvægt að ráðherra svari því hvort hann telji ekki nauðsynlegt, með hliðsjón af uppbyggingu vegakerf- isins, að ákveðnar framkvæmdir sem varða almannaheill og/eða ör- yggi landsmanna á vegum verði undanþegnar mati á umhverfisáhrif- um þannig að ábyrgð og ákvörðun um framkvæmdir færist alfarið á hendur ríkisins. Tökum sem dæmi Reykjanes- brautina, þar sem nú er unnið að því að ljúka tvöföldun brautarinnar sem er um 50 km löng að Hafnarfirði. Lokaáfanganum, 5 km kafla frá Hvassahrauni að Krísuvíkur- afleggjara, hefur verið breytt í sam- ræmi við nýtt aðalskipulag Hafn- arfjarðar innan iðnaðarsvæðis og þarf breytingin að fara í kerfislega þungt, langt og rándýrt umhverf- ismat þrátt fyrir augljósan kost við breytinguna. Líkt og ég hef rakið hér að fram- an er ljóst að kerfið er ekki í neinu samræmi við almennan vilja í sam- félaginu. Það er því nauðsynlegt að endurskoðun laganna horfi til ein- földunar svo að fámennir hópar geti ekki stöðvað eða tafið framkvæmdir sem varða afkomu og lífsgæði íbúa á heilum landsvæðum árum og ára- tugum saman. 1) Umhverfis og auðlindaráðuneytið. (2019). Samanburður á löggjöf nokkurra ná- grannaþjóða um mat á umhverfisáhrif- um: Rannsókn gerð til undirbúnings heildarendurskoðunar laga um mat á um- hverfisáhrifum. Eftir Ásmund Friðriksson » Vegagerðin og Landsnet hafa það lögbundna hlutverk að vinna að þróun og endurbótum á vegakerf- inu og flutningskerfi raforku á sem hag- kvæmastan hátt, eftir því sem almannahags- munir og þarfir sam- félagsins krefjast. Ásmundur Friðriksson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Tafaleiðir framkvæmda og stjórnun í þágu fjöldans Hvaða ákvarðanir, athafnir og athafnaleysi í matsferlinu er hægt að kæra sérstaklega? Danmörk ■ Ákvörðun um matsskyldu að því er varðar lögmæti ákvörðunar (d. retlige spørgsmål). ■ Ákvörðun um leyfi (1. mgr. 49. gr. VVM). Finnland ■ Ákvörðun um matsskyldu (frkvaðili) (1. mgr. 37. gr. fimáu). ■ Ákvörðun um leyfi. Noregur ■ Akvörðun um leyfi til frkv. og samþykkt deiliskipulags (n. reguleringsplan). Svíþjóð ■ Ákvörðun um leyfi (MB16). Skotland ■ Ákvörðun um leyfi (e. planning permission) (47. gr. skipulagslaga142). Ísland* ■ Ákvörðun um matsskyldu. ■ Ákvörðun um að umhverfisáhrif fleiri frkv. skuli meta sameiginlega. ■ Ákvörðun um leyfi. ■ Brot á þátttökurétti almennings. ■ Ákvörðun um endurskoðun matsskýrslu. ■ Synjun matsáætlunar eða breytingar á henni (frkvaðili). ■ Ákvörðun um að frummatsskýrsla uppfylli ekki lagakröfur eða sé ekki í samræmi við matsáætlun (frkvaðili). *14. gr. ísmáu, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kórónuveiran hefur haft alvarleg áhrif á flestar þjóðir, ekki síst í Evrópu. Áhrifin eru misjafnlega alvar- leg. Þótt sum lönd hafi mátt þola hærri dánartíðni vegna veir- unnar en önnur hefur ekkert land sloppið við efnahagsleg áföll vegna lokana fyrir- tækja og annarra ráð- stafana sem stjórnvöld hafa talið sig þurfa að grípa til í baráttunni við að koma böndum á skæðan far- aldur. Mörgu er ósvarað um Covid-19 og faraldurinn og vísindamenn keppast við að finna bóluefni gegn veirunni. En eitt er víst: Efnahags- legu áhrifin eru hrikaleg, en leggj- ast líkt og veiran með misjöfnum þunga á þjóðir Evrópu. Og annað er líklegt: Efnahagsbatinn verður ójafn eftir löndum, ekki síst meðal evruríkja. Á meðan eitt ríki mun endurheimta efnahagslegan styrk á tiltölulega skömmum tíma mun annað ríki þurfa að glíma við stöðnun eða jafnvel samdrátt í mörg ár. Evrulöndin glímdu við erfiðleika áður en faraldurinn skall á. Á fjórða ársfjórðungi liðins árs stóð efnahagslífið í stað – hagvöxtur 0,1% og því dróst landsframleiðsla á mann saman. Fyrsti fjórðungur þessa árs, áður en efnahags- kreppan skall á af fullum þunga, var enn verri. Lands- framleiðsla minnkaði um 3,8% í evrulönd- um. Ólíkur efnahags- legur veruleiki Þær þrengingar sem riðið hafa yfir í kjölfar kórónufarald- ursins hafa afhjúpað með skýrum hætti hve efnahagsleg staða evrulandanna er mis- jöfn. Í einfaldleika sín- um má segja að löndin í norðri njóti velmegunar umfram þau í suðri. Í norðri stendur atvinnulífið á fjölbreyttum stoðum, menntakerfið er sterkt, ríkisfjármál í föstum skorðum, skuldir viðráðanlegar og atvinnustig hátt. Í suðri er þessu öfugt farið. Skuldir ríkissjóða eru ósjálfbærar, atvinnuleysi (ekki síst meðal ungs fólks) landlægt og vöxtur landsframleiðslu lítill sem enginn. Ójafnvægið milli evrulanda er efnahagslegt og pólitískt áhyggju- efni. Þau lönd sem verst stóðu fyr- ir faraldurinn eiga erfiðara með að ná sér aftur á strik; Ítalía og Spánn sérstaklega. Miklar skuldir hins opinbera draga úr mögu- leikum stjórnvalda til að grípa til aðgerða til að örva efnahaginn. Löndin ráða ekki yfir verkfærum á sviði peningamála – ríkisfjármálin eru í spennitreyju. Staða Þjóðverja er allt önnur. Skuldir hins opinbera eru 60% af landsframleiðslu og ríkissjóður hef- ur verið rekinn með afgangi. Bol- magn þýska ríkisins til að grípa til örvunar efnahagslífsins er allt ann- að og meira en þjóða Suður- Evrópu, raunar flestra annarra þjóða innan evrulands. Reglum pakkað ofan í skúffu Líkt og í fjármálakreppunni fyr- ir liðlega áratug reynir mjög á samstarfið innan Evrópusambands- ins. Ströngum reglum um rík- isstyrki hefur verið pakkað ofan í skúffu og aðildarríkin dæla út pen- ingum til að styðja við fyrirtæki og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot. Samkvæmt The Economist hafa ríkissjóðir evruríkjanna pumpað um tveimur trilljónum evra til fyr- irtækja. Þýski ríkissjóðurinn er með yfir helming fjárhæðarinnar. Vefritið Politico bendir á að hlut- deild Þýskalands í hagkerfi evru- landa sé um 28%. Ríki í suðurhluta Evrópu hafa ekki sömu burði til að styðja við atvinnulífið og þannig hefur gjáin breikkað milli norðurs og suðurs. Viðspyrnan í Þýskalandi er öflug, ólíkt því sem gerist í suð- urhluta evrulands. Afleiðingin er sú að bilið milli Norður- og Suður-Evrópu breikk- ar. Efnahagslegt ójafnvægi, sem var innan evrusvæðisins fyrir kór- ónuveiruna, er að aukast. Pólitísk- ar og félagslegar afleiðingar eru ófyrirséðar. Klofningur eykst Skortur á samhæfðum við- brögðum Evrópusambandsins við efnahagslegum hörmungum veiru- faraldursins er líklegur til að auka klofning meðal evrulandanna. Fram til þessa hefur hvert land glímt við kreppuna í gegnum eigin ríkisfjármál en Seðlabanki Evrópu hefur reynt að koma til aðstoðar með kaupum á ríkisskuldabréfum. Þýski stjórnlagadómstóllinn hefur hins vegar gert alvarlegar at- hugasemdir við stórfelld kaup bankans. Um leið bannaði dóm- stóllinn seðlabanka Þýskalands að taka þátt í kaupum ríkisskulda- bréfa evrulanda nema lagðar væru fram sönnur fyrir því að meðalhófs væri gætt við kaupin. Evrópudómstóllinn telur úrskurð stjórnlagadómstólsins marklausan og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, er á sama máli. Þannig dýpkar pólitísk og stjórnlagaleg kreppa Evrópusambandsins, á sama tíma og glímt er við alvar- legar efnahagslegar afleiðingar veirufaraldursins. Aðildarríkin virðast ófær um að sameinast um hvað þurfi að gera. Evrulöndin eru ekki ein um að glíma við alvarlegan efnahags- samdrátt og hækkandi skuldir. Fá lönd sleppa við efnahagslegar af- leiðingar faraldursins. En sameig- inlegur gjaldmiðill – evran – án sameiginlegra ríkisfjármála er orð- inn líkt og myllusteinn um háls þeirra þjóða sem verst hafa orðið úti í efnahagsþrengingum. Mynt- bandalagið stefnir í aðra skulda- kreppu ríkissjóða aðildarríkjanna. Engin pólitísk samstaða hefur náðst um um að „dreifa“ byrðunum á milli norður- og suðurhluta. Fyrir okkur Íslendinga er það ekki gleðiefni að horfa upp á gjána milli norðurs og suðurs breikka. Pólitísk og stjórnskipuleg kreppa Evrópusambandsins og efnahags- legt misgengi í evrulandi getur haft neikvæðar afleiðingar fyrir ís- lenskan efnahag. Við Íslendingar, líkt og aðrar þjóðir, eigum eftir að draga lær- dóm af baráttunni við skæða veiru og með hvaða hætti skynsamlegt er að bregðast við efnahagslegum áföllum vegna veirufaraldurs sem lamar daglegt líf. Sumt vitum við þegar. Öflugt og skilvirkt heil- brigðiskerfi er forsenda þess að hægt sé að bregðast við heilbrigð- isvá. Við höfum fengið staðfestingu á því hversu mikilvægt það er að fylgja aðhaldssamri stefnu í op- inberum fjármálum á tímum góð- æris, þannig að ríki og sveitarfélög séu í stakk búin til að takast á við efnahagslegan erfiðleika. Og við höfum enn einu sinni verið áminnt um hversu dýrmælt fullveldi í pen- ingamálum er. Eftir Óla Björn Kárason » Afleiðingin er sú að bilið milli Norður- og Suður-Evrópu breikkar. Efnahagslegt ójafnvægi, sem var innan evrusvæðisins fyrir Covid-19, er að aukast. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Evruland í tilvistarkreppu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.