Morgunblaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020 www.flugger.is Viðarvörnina fyrir pallinn færðu hjá Flügger „OG MESTUR TÍMI OKKAR FER Í HRINGSÓL.” „HVAÐ BJÓSTU EIGINLEGA VIÐ AÐ FINNA Í UXAHALASÚPU?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að gefa hjarta sitt af fúsum og frjálsum vilja. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann RUSLA- GÁMURINN Á HRÓS SKILIÐ! ÞETTA VAR EÐALMÁLTÍÐ MAAAL SVO FJÖL- BREYTTUR MATSEÐILL OG ÁHUGAVERÐAR SAMSETNINGAR VIÐ VERÐUM AÐ PRÓFA AFTUR MEGUM VIÐ SJÁ MATSEÐILINN? VIÐ ERUM EKKI MEÐ MATSEÐIL! Foreldrar Jóhanns Bjarna eru Kristín Magnúsdóttir, f. 27.2. 1950, lífefnafræðingur og frumkvöðull, og Kolbeinn Bjarnason, f. 14.7. 1958, flautuleikari og tónskáld. Eiginkona Kolbeins er Guðrún Óskarsdóttir, f. 5.10. 1962, semballeikari. Jóhann Bjarni var skírður í höf- uðið á Jóhanni Eyfells myndlistar- manni, f. 1923, d. 2019, en Jóhann Eyfells var giftur afasystur Jóhanns Bjarna, Kristínu Eyfells, myndlist- armanni og kaupkonu í kjólaversl- uninni Fix, f. 1917, d. 2002. „Sem barn dvaldi ég töluvert á heimili þeirra hjóna í Flórída og leit alla tíð á þau sem ömmu mína og afa.“ Ömmur Jóhanns Bjarna hafa alla tíð verið honum sérstaklega nánar, bæði Þórunn Júlíusdóttir, f. 1928, d. 2019, fiskverkakona og pósthús- starfsmaður, og Adda Bára Sigfús- dóttir, f. 1926, veðurfræðingur og stjórnmálamaður. „Ég bjó á heimili ömmu Öddu Báru í Laugarnesinu sem barn og fram á unglingsárin, og hafði sambúðin við ömmu mikil og mótandi áhrif á mig.“ Jóhann Bjarni Kolbeinsson María Jenný Jónasdóttir húsfreyja á Siglufirði Halldór Kristinsson héraðslæknir á Siglufirði Magnús Halldórsson útvarpsvirkjameistari í Reykjavík Þórunn Júlíusdóttir fiskverkakona og póstmaður í Reykjavík Kristín Magnúsdóttir lífefnafræðingur og frumkvöðull í Rvík Sigríður Helgadóttir húsmóðir á Grund Júlíus R. Guðlaugsson trésmiður og sjómaður á Grund í Garði Ari Eldjárn skemmtikraftur Kristín Eyfells myndlistarmaður og kaupkona í Bandaríkjunum Þórarinn Eldjárn rithöfundur Róbert Magnússon rafmagnsverkfræðingur í Texas Einar Már Guðmundsson rirhöfundur Sigrún Sigurhjartardóttir húsfr. á Tjörn í Svarfaðardal Anna Pálmadóttir skrifstofum. í Reykjavík Kristján Eldjárn forseti Íslands Soffía Sigurhjartardóttir húsfreyja í Rvík Sigurður Flosason tónlistarmaður Hulda Sigfúsdóttir bókasafnsfræðingur í Rvík Benedikt Gíslason frá Hofteigi bóndi og rith. á Hofteigi, síðar í Rvík Sigfús Sigurhjartarson ritstj. og alþingismaður í Rvík Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur og stjórnmálamaður, bús. í Rvík Bjarni Benediktsson frá Hofteigi rithöfundur í Reykjavík Sigríður Stefánsdóttir húsfreyja í Reykjavík Geirþrúður Bjarnadóttir húsfreyja á Hofteigi á Jökuldal, síðar í Rvík Úr frændgarði Jóhanns Bjarna Kolbeinssonaer Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og tónskáld í Reykjavík Nú er veður til að sinna vorverk-unum. Pétur Stefánsson lítur yfir afrek dagsins: Blettaði grindverk og penslaði pall, plokkaði rusl úr beði. Nú er ég rogginn og rígmontinn kall sem ræður sér vart fyrir gleði. Ég var að blaða í gömlum papp- írum og rakst þá á þessa limru Kristjáns Karlssonar: Ó, skömmóttust skáld vors lands, ég skil yður déskotans órétti beitta, ýmist rúna eða reytta. Auk reiði sitjandi manns. Og nú rifjast upp fyrir mér þessi limra Kristjáns: „Nú væri skömminni skárra,“ sagði Skúli, „að segja blárra. En að segja að blátt sé blátt sem er blátt væri bull og næði til fárra.“ Nú berast fréttir af því, að þakið sé ónýtt á dómkirkjunni í Skálholti og að bókasafn Þorsteins Þorsteins- sonar Dalasýslumanns, sem þar er geymt, liggi undir skemmdum ef ekkert verður að gert. Þetta gefur tilefni til að rifja upp vísu Guð- mundar Böðvarssonar sem hann orti þegar Þorsteinn féll frá, en hann var þjóðkunnur bókasafnari: Fallega Þorsteinn flugið tók fór um himna kliður. Lykla-Pétur lífsins bók læsti í skyndi niður. Í „100 kosningavísum“ eftir Brand bílstjóra, sem út komu árið 1949, stendur um Þorstein: Þorsteinn Dalaþengill hár þurrkar sveittan skalla óttast hvergi illar spár. „Aldrei skal ek falla.“ Á Boðnarmiði kveður Anton Helgi Jónsson: Ef berangur breiðir úr sér í birkis og skógar stað menn grunar hvað gróðri eyði en greinir samt á um það. Svo lengi sem féð telst fleira en fólkið er Bjartur sæll að heiðum sé hætt við ofbeit er hjartveikiskvein og væll. Í næðingnum norpa hjarðir sem nöguðu oní rót en kjöt fyrir réttir reddast því rollurnar éta grjót. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Dalasýslumanni og blátt er blátt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.