Morgunblaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Atli Örvarsson tónskáld er þessa dagana að semja tónlist við Holly- wood-mynd af dýrari gerðinni, framhald gamanhasarmyndarinnar The Hitmans’s Bodyguard sem nefnist The Hitman’s Wife’s Body- guard, eða Lífvörður eiginkonu leigumorðingjans. Atli samdi líka tónlistina við fyrri myndina og verður sú sem hann er núna að semja flutt af SinfoniuNord og tekin upp í Hofi á Akureyri. „Við ætlum að taka upp 19.-21. júní þannig að ég er ennþá að semja músíkina,“ segir Atli. Banderas vondi karlinn – Byggirðu tónlistina á þeirri sem þú samdir fyrir fyrri mynd- ina? „Já, algjörlega, ég byggi á þeim stefjum sem voru í fyrri myndinni og m.a.s. þegar klippið kemur til mín er klipparinn búinn að setja inn fullt af tónlist úr fyrri mynd- inni. Þetta eru auðvitað sömu per- sónur og mikið til svipaðar að- stæður þannig að þetta passar bara en það er auðvitað nýr vond- ur karl sem Antonio Banderas leikur og hann fær nýtt stef. Þetta er bland af nýju og eldra efni,“ svarar Atli. Aðrir helstu leikarar í myndinni eru Ryan Reynolds, Samuel L. Jackson, Salma Hayek og Morgan Freeman. Vildi meira rokk og blús Leikstjóri myndarinnar, líkt og þeirrar fyrri, er Patrick Hughes og segir Atli að þegar þeir hafi hist í fyrsta sinn hafi Hughes sagt honum að hann þyldi ekki dæmi- gerða hasarmyndatónlist. Hann vildi gjarnan fá meira rokk og ról og sátu þeir lengi saman og hlustuðu á blús og rokk. „Sumt af þessu er svolítið blús- skotið og karakterinn hans Samu- els Jacksons notar munnhörpu og Fender Rhodes. Það er s.s. sinfón- íuhljómsveit og svo er rokk og ról- blúsband sem spilar hluta af þessu,“ útskýrir Atli. Hann hafi því reynt að hafa tónlistina bræð- ing af sinfóníutónlist, blús og rokki. Tónlistin í fyrri myndinni var tekin að hluta upp í hinu sögu- fræga stúdíói við Abbey Road í London en að þessu sinni verður allt tekið upp á Íslandi enda ýms- ar samkomuhömlur enn í gangi vegna COVID-19-farsóttarinnar. Eurovision og Netflix Atli segir alltaf gott að hafa ein- hvern ramma eða stefnu hvað hvert verkefni varðar; að vita nokkurn veginn hverju leikstjór- inn er að leita að. „Kosturinn við að vinna aftur með sama leik- stjóra, eins og ég er að gera með Patrick núna, er að traust hefur myndast. Ég veit hvernig hann fúnkerar og þekki hans smekk og hvað hann vill. Þetta er ekki fyrsta stefnumótið; maður er far- inn að þekkja inn á manneskjuna,“ útskýrir Atli. Eins og fjallað var um í Morg- unblaðinu fyrir um tveimur mán- uðum var tónlist Atla við Eurovisi- on-kvikmynd gamanleikarans Wills Ferrells tekin upp í Hofi á Akureyri og vakti það bersýnilega athygli í kvikmyndageiranum vestra. „Þá opnuðust augu Netflix fyrir því að hér væri einhver lausn fyrir þá og úr því hefur orðið dá- lítil holskefla af verkefnum og útlit fyrir áframhald á því. Þetta hefur gengið rosalega vel. Ég er búinn að taka upp kvikmyndatónlist hérna frá árinu 2015 og það hefur einfaldlega skapast hér þekking og reynsla sem er farin að skila sér. Þetta hefur alltaf gengið mjög vel en hljómsveitin verður sífellt betri og tæknimennirnir og það sem við erum að gera hérna er komið á heimsmælikvarða. Annars væri ég ekkert að gera þetta held- ur.“ Hvað önnur Netflix-verkefni varðar segir Atli að ekki megi greina frá hver þau eru en Netflix hafi pantað stúdíóið heilmikið í sumar. „Þeir segja okkur ekki einu sinni hvaða verkefni þetta eru,“ segir Atli en það verður í það minnsta nóg að gera fyrir norðan. Vildi auka á fegurðina Breiðskífa Atla, You Are Here, kemur út 3. júlí en Atli hefur ekki gefið plötu út áður með eigin tón- list og þá tónlist sem er ekki sam- in fyrir kvikmyndir eða sjónvarps- þætti. Hann er spurður hverju fólk má eiga von á. Er þetta eitt- hvað allt annað en hann hefur gert hingað til? „Já, já, það er það auð- vitað og þeir sem hafa séð seríuna Defending Jacob á Apple TV Plus hafa heyrt tónlist sem er kannski hvað næst þessari. Maður á alltaf að forðast að nota einhverjar skil- greiningar en þetta er svona post- eða neo-klassísk tónlist, instru- mental, frekar róleg og hæg og intróvert músík. Mikið píanó og strengir, bæði kvartett og sveit, og talsvert af rafhljóðum með. Mig langaði til að reyna að auka á feg- urðina í heiminum,“ svarar Atli. Annar vöðvi Hann segir það hafa verið skemmtilegt ferli að læra að búa til plötu. „Þótt ég hafi verið að semja tónlist í tuttugu og eitthvað ár er allt önnur nálgun að semja plötu. Í fyrsta lagi ertu ekki að semja fyrir eitthvert annað verk- efni og í öðru lagi er nálgunin við að kafa ofan í sinn innri mann og sjálfan sig sem listamann önnur pæling, en þegar maður er kominn af stað í því kemur ekki til greina að hætta. Þetta er annar vöðvi sem maður þarf að þjálfa og mér finnst ég hafa orðið betra tónskáld af því að semja fyrir sjálfan mig.“ Hvers vegna að skapa? Atli segir að erfiðasta spurn- ingin sem hver listamaður þurfi að svara sé hvers vegna hann skapi. „Hvað er ég að segja? Hvaða sögu er ég að segja? Þegar þú ert að gera kvikmyndatónlist er búið að svara þeirri spurningu en um hvað er ég að fara að gera plötu? Og eins og titillinn ber með sér fjallar þetta bæði um að vera þar sem maður er en líka andlega, fyrir okkur öll, að vera aðeins meira til staðar daglega. Að hægja á hug- anum og vera meira til staðar.“ – Leggurðu stund á núvitund? „Já, ég geri það og það eru klár tengsl þarna við hana. Ég held að það heyrist glöggt í þessari tónlist að það er núvitundarhugsun á bak við hana. Þetta er kannski mynd- ræn núvitund, ef þannig mætti að orði komast, því þeir sem ég hef leikið þessa tónlist fyrir tala um að þeir sjái fyrir sér myndir og jafnvel atvik úr eigin lífi. Þannig að þetta er vonandi einhvers kon- ar hugvekja.“ Stuð Ryan Reynolds og Samuel L. Jackson í The Hitman’s Bodyguard, sem Atli samdi tónlistina við og semur nú tónlist við framhald myndarinnar. Ljósmynd/Alex Soutré Fegurð „Mig langaði til að reyna að auka á fegurðina í heiminum,“ segir Atli um fyrstu breiðskífu sína sem gefin verður út 3. júlí næstkomandi. „Ekki fyrsta stefnumótið“  Atli Örvarsson semur tónlist við framhald Hollywood-myndarinnar The Hitman’s Bodyguard  Netflix hefur bókað Hof í sumar fyrir tónlistarupptökur  Fyrsta breiðskífa Atla væntanleg Eldfjallamaður Will Smith og Rachel McAdams í myndbandi við lagið Volc- ano Man, eða Eldfjallamaður, sem kom út fyrir fáeinum dögum og tengist grínmyndinni Eurovision sem segir af íslenskum keppendum í Eurovision.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.