Morgunblaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020 20. maí 1976 „Þetta var klassaleikur og sig- urinn mjög svo sanngjarn,“ segir Ásgeir Sig- urvinsson við Morgunblaðið eftir 1:0-sigur Ís- lands á Norð- mönnum í vin- áttulandsleik í knattspyrnu í Ósló. Ásgeir skorar sigur- markið með skoti upp í sam- skeytin af löngu færi. 20. maí 1980 Morgunblaðið segir frá árangri akureyrska kraftlyft- ingamannsins Arthúrs Boga- sonar sem setur Evrópumet í réttstöðulyftu á móti á Akur- eyri. Arthúr keppir í -125 kg flokki og lyftir 335 kílóum. 20. maí 1987 Morgunblaðið segir frá Ís- landsmeti sem Helga Halldórs- dóttir setti í 400 metra hlaupi þegar hún sigraði með yfir- burðum á frjálsíþróttamóti í Sacramento. Helga, sem aðal- lega keppir í 400 metra grindahlaupi, hleypur á 53,92 sekúndum og bætir Íslands- met Oddnýjar Árnadóttur um 42/100 úr sekúndu. 20. maí 1989 Ragnheiður Runólfsdóttir, sundkona frá Akranesi, er kjörin besti íþróttamaður Smáþjóðaleikanna á Kýpur. Hún vinnur til sex gull- verðlauna á leikunum, fær ein silfurverðlaun og setur sam- tals sjö Íslandsmet. Í frjáls- íþróttakeppni leikanna vinnur Oddný Árnadóttir einu gull- verðlaun Íslands þegar hún sigrar í 400 metra hlaupi. 20. maí 2001 Magdeburg, undir stjórn Al- freðs Gíslasonar, er þýskur meistari í handknattleik og Ólafur Stefánsson er í lyk- ilhlutverki í liðinu. Magde- burg vinnur Flensburg á heimavelli, 30:23, í hrein- um úrslitaleik í lokaumferð deildarinnar. Ólafur skorar níu mörk í leiknum og er í kjöl- farið valinn leikmaður ársins hjá Magdeburg en hann var langmarkahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu með 302 mörk í deildinni, bikarkeppn- inni og EHF-bikarnum. 20. maí 2008 Arnór Atlason er danskur meistari í handknattleik með FCK eftir jafntefli, 31:31, gegn Snorra Steini Guðjónssyni, Ás- geiri Erni Hallgrímssyni og fé- lögum í GOG, í öðrum úrslita- leik liðanna um titilinn. FCK hafði unnið fyrsta leikinn 36:29. Arnór skorar fjögur mörk fyrir FCK í leiknum en Mikkel Hansen skorar 15 mörk fyrir silfurlið GOG og Snorri Steinn átta. 20. maí 2015 Spjótkastarinn Helgi Sveins- son stórbætir heimsmetið í fötlunarflokki F42 þegar hann kastar 54,62 metra á JJ-móti Ár- manns í Laug- ardal. Fyrra metið átti Kín- verjinn Yanlong Fu en það var 52,79 metrar og sett á Ólymp- íumóti fatlaðra í London árið 2012. Á ÞESSUM DEGI BÚLGARÍA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Stuðningsmenn liðsins hafa verið ótrúlegir undanfarna mánuði og eru búnir að bjarga félaginu algjörlega,“ sagði Hólmar Örn Eyjólfsson lands- liðsmaður í knattspyrnu við Morg- unblaðið í gær en félag hans, Levski Sofia, rambar á barmi gjaldþrots eftir að eigandinn flúði land. Búlgarski auðjöfurinn Vasil Boj- kov, sem er talinn ríkasti maður Búlgaríu, hefur margoft verið orð- aður við margskonar ólöglega starf- semi. Hann gerðist aðaleigandi Levski Sofia, sögufrægasta félags Búlgaríu, á síðasta ári. Bojkov dvel- ur nú í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum en búlgörsk yfirvöld vilja fá hann framseldan til að rétta yfir honum. Bojkov hefur svarað þeim fullum hálsi og m.a. boðist til að gefa for- sætisráðherra landsins, Boyko Bor- issov, sinn hlut í Levski, enda hafi forsætisráðherrann á ólöglegan hátt lagt undir sig þau fyrirtæki sem séu lífæð félagsins. Borissov mun sjálfur vera stuðningsmaður Levski en hef- ur hafnað „tilboði“ Bojkovs, sem m.a. átti þjóðarlottóið í Búlgaríu en Borissov og ríkisstjórn hans hafa nú yfirtekið reksturinn á lottóinu. „Þetta tilboð er móðgun og nið- urlægjandi, og það er fáránlegt að senda svona lagað frá sér,“ sagði talsmaður forsætisráðherrans sam- kvæmt frétt Balkan Insight. Málshöfðun í mörgum liðum Búlgarskur saksóknari höfðaði mál á hendur Bojkov snemma á þessu ári fyrir skipulagða glæpa- starfsemi, fjárkúgun, hótanir, skatt- svik og tilraun til að múta opinber- um aðila. Bojkov segir að allur málatilbúnaður búlgarska ríksins á hendur sér sé uppspuni. Yfirvöld séu að reyna að sölsa undir sig allan sinn rekstur. Í yfirlýsingu sem hann sendi fréttastofu Bloomberg sagði Bojkov að hann og fyrirtæki sín hefðu staðið skil á öllum sínum sköttum til búlgarska ríkisins og enginn væri sekur fyrr en sekt hans hefði verið sönnuð í dómsal. Hreint með ólíkindum „Stuðningsmennirnir hafa staðið fyrir alls konar söfnunum, keypt miða á „sýndarleiki“ sem fóru ekki fram vegna kórónuveirunnar, og maður er búinn að heyra ítrekað á undanförnum mánuðum að í næstu viku verði félagið gjaldþrota. En stuðningsmennirnir ná alltaf að safna saman nægilega miklum pen- ingum til að halda þessu gangandi, sem er hreint með ólíkindum,“ sagði Hólmar. Þurfa 800 þúsund evrur Í bréfi sem Daniel Strezov, for- maður eins af stuðningsmanna- félögum Levski, sendi frá sér í vik- unni segir að stuðningsmennirnir hafi tekið málin í sínar hendur og frá 12. febrúar hafi þeir útvegað félag- inu meira en eina milljón evra með alls kyns ráðum, fimmfaldað sölu ársmiða, hreinlega tæmt verslun fé- lagsins og keypt 10 þúsund miða á leik sem fór ekki fram. Nú sé staðan þannig að félagið þurfi 800 þúsund evrur í viðbót til að geta lokið þessu keppnistímabili en kórónuveiran og frestanir leikja hafi lokað á síðustu tekjumöguleika félagsins. Losnaði úr sóttkví í gær „Þetta er allt saman frekar óheppilegt. Klúbburinn var á mjög góðri leið áður en þetta mál fór allt af stað. Ástandið hefur ekki haft mikil áhrif á okkur leikmennina hingað til, en nú er ég nýkominn aft- ur til Búlgaríu eftir tveggja mánaða hlé svo ég veit ekki alveg hvernig staðan er á því núna,“ sagði Hólmar, sem í gær lauk tveggja vikna sóttkví í Búlgaríu eftir komuna frá Íslandi og má byrja að æfa með liðinu í dag. Leikmenn Levski hófu æfingar á mánudaginn í litlum hópum en deildakeppnin í landinu á að halda áfram 5. júní og stefnt er að því að ljúka keppnistímabilinu fyrir miðj- an júlí. Hólmar, sem verður þrítugur í sumar, er að ljúka sínu þriðja tíma- bili með Levski en hann gerði fjög- urra ára samning þegar hann kom þangað frá Maccabi Haifa í Ísrael og á því eitt ár eftir af honum. Hann sagði að vegna ríkjandi ástands væri erfitt að átta sig á stöðunni. Fjölskyldan heima á Íslandi „Það verður bara að koma í ljós þegar nýir eigendur taka við hvern- ig þeir vilja standa að framhaldinu hjá félaginu. Það gætu vel orðið miklar breytingar á rekstrinum þannig að óvissan er mikil sem stendur. En í félaginu er mikið af góðu fólki sem gerir allt til þess að Levski komi sem best út úr þessu,“ sagði Hólmar en hann kom einn til Búlgaríu fyrir tveimur vikum. Eig- inkona hans Jóna Vestfjörð Hann- esdóttir og börnin Sylvía og hinn tveggja mánaða gamli Eyjólfur Hannes urðu eftir á Íslandi. „Já, okkur þótt betra að þau væru heima á meðan þessi óvissa er í gangi. Ég er líka væntanlega á leið í þétt leikjaprógramm, við spilum marga leiki á stuttum tíma þegar fótboltinn fer aftur í gang og yrði væntanlega mikið á hótelum og því fjarri fjölskyldunni hvort sem er,“ sagði Hólmar Örn Eyjólfsson. Meira en 50 stórir titlar og liðið í öðru sæti Levski er annað sigursælasta fé- lag Búlgaríu og sagt það langvinsæl- asta í landinu með yfir eina milljón stuðningsmanna. Levski hefur orðið 26 sinnum meistari og 25 sinnum bikarmeistari frá því það var stofn- að af skólastrákum í höfuðborginni Sofiu árið 1914. Félagið hefur þó ekki náð að vinna meistaratitilinn frá 2009 en Ludogorets hefur haft yfirburðastöðu í landinu allan síð- asta áratug. Þegar tólf umferðum er ólokið er Ludogorets með 55 stig en Levski, CSKA Sofia og Lokomotiv Plovdiv eru öll með 46 stig. Þá eru Hólmar og félagar komnir í undanúrslit bikarkeppninnar eftir að hafa slegið Ludogorets út í átta liða úrslitunum í mars, áður en keppni var frestað vegna kórónu- veirunnar. Þeir mæta þar Lokomo- tiv Plovdiv en bikarkeppnin á að halda áfram í byrjun júlí. Stuðningsmenn reyna að halda félaginu á floti  Forseti Levski Sofia flúði land  Stuðningsmennirnir ótrúlegir, segir Hólmar Ljósmynd/Levski Levski Hólmar Örn Eyjólfsson sækir að sóknarmanni Ludogorets í bikarleik liðanna í marsmánuði. Levski lagði þar toppliðið að velli og er því í undanúrslitum bikarkeppninnar ásamt því að vera í öðru sæti deildarinnar. Steinunn Hansdóttir, landsliðskona í handbolta, hefur gert tveggja ára samning við danska félagið Vend- syssel. Kemur hún til félagsins frá Gudme. Steinunn er vinstri horna- maður. Landsliðsmarkvörðurinn El- ín Jóna Þorsteinsdóttir leikur með liðinu. Steinunn hefur lengi leikið í Danmörku og var hún áður hjá Hor- sens og Skanderborg. Lék hún síðast með Selfossi hér á landi. Vendsyssel leikur í efstu deild Danmerkur á næstu leiktíð, en liðið var í efsta sæti 1. deildarinnar þegar tímabilinu var aflýst og fór því upp um deild. Landsliðskonur í úrvalsdeildinni Ljósmynd/Robert Spasovski Vendsyssel Steinunn Hansdóttir skorar í leik með landsliði Íslands. Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlín fara í tíu liða úrslita- keppni um þýska meistaratitilinn í körfuknattleik í næsta mánuði. Úrslitakeppnin fer fram í München, en yfirvöld í Bæjaralandi hafa sam- þykkt áætlanir deildarinnar. Keppni var frestað 8. mars vegna kórónuveirunnar. Félögin sam- þykktu tillögu deildarinnar um að fella niður síðustu ellefu umferðir deildakeppninnar og í staðinn færu tíu efstu liðin í stað átta í úrslita- keppnina. Alba Berlín var í fjórða sæti þegar keppni var stöðvuð. Martin á leið í úrslitakeppni Ljósmynd/Euroleague Úrslitakeppni Martin Hermannsson hefur nóg að gera í júnímánuði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.