Morgunblaðið - 20.05.2020, Side 20

Morgunblaðið - 20.05.2020, Side 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 50 ára Stefán ólst upp í Reykjavík en býr á Akureyri. Hann er kerfisfræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík og er út- gáfustjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Five Degrees. Maki: Ásta Þorsteinsdóttir, f. 1970, sjúkraþjálfari og framkvæmdastjóri Efl- ingar sjúkraþjálfunar. Börn: Þorsteinn Ingi, f. 1995, Andri Þór, f. 1999, og Þórunn Helga, f. 2006. Foreldrar: Þórunn Rafnar, f. 1941, d. 1997, skrifstofumaður, og Hallgrímur Jónsson, f. 1940, fyrrverandi sparisjóðs- stjóri. Eiginkona Hallgríms er Valgerður Einarsdóttir, f. 1949. Þau eru búsett í Garðabæ. Stefán Sigurður Hallgrímsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Áhugaverðir einstaklingar koma inn í líf ykkar á næstunni. Treystu á sjálfa/n þig og varastu að hlusta of mikið á aðra. 20. apríl - 20. maí  Naut Samstarfsmenn þínir munu koma auga á hæfileika þína og vilja njóta þeirra. Það er í góðu lagi að vera latur/löt í ein- hvern tíma. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er kominn tími til að slaka á og hafðu engar áhyggjur því heimurinn ferst ekki rétt á meðan. Ef þér hefur tekist að virkja heimilisfólk til verka veistu að þú ert að gera ýmislegt rétt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert í náðinni hjá samstarfs- mönnunum og ættir að nota tækifærið til þess að koma hugmyndum þínum á fram- færi. Gerðu þér glaðan dag. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Fegurðin er allt í kringum okkur, ákveddu að sjá bara það góða í fólki. Hugs- anlegt er að makinn geri eitthvað sem gleður þig óendanlega mikið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hjálp frá öðrum kemur sér vel á heimilinu á einhvern hátt. Finndu hvernig fyrirgefning breytir öllu hjá þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það getur oft reynst erfitt að halda í horfinu svo ekki sé nú talað um að pota hlutunum áfram. Leggðu spilin á borðið og láttu fólk vita hvað þú vilt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú veltir fyrir þér hvort þú get- ir treyst vissri manneskju. Þú sættir þig við ýmislegt sem þú ættir í raun ekki að gera. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Finndu einhvern til að ljá þér eyra svo þú getir létt af þér áhyggjunum. Þú stefnir á heilbrigða sál í hraustum lík- ama. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er margt sem fyrir liggur hjá þér þessa dagana. Einfaldaðu líf þitt með því að losa þig við það sem þú þarft ekki lengur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er alltaf fróðlegt að kynnast fólki frá framandi slóðum. Einhver reynir að selja þér hugmynd sem heldur hvorki vatni né vindi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Til að samband gangi verða báðir aðilar að leggja sitt af mörkum. Reyndu að forðast að kaupa einhvern óþarfa því þú kannt að sjá eftir því síðar. maður á fréttastofu RÚV þar sem hann hefur unnið sleitulaust síðan, að undanskildum námsárunum í Sví- þjóð. „Starfið á fréttastofunni er ótrúlega fjölbreytt, og það eru í raun forréttindi að fá að vinna þetta starf, þótt það geti verið gríðarlega krefj- andi. Það besta við starfið eru þó samstarfsmennirnir, sem eru ótrú- ist svo yfir á Morgunblaðið í byrjun árs 2006 þar sem vann sem menning- arblaðamaður til ársins 2009. Þá tók hann við sem kynningar- og mark- aðsstjóri RIFF, Alþjóðlegrar kvik- myndahátíðar í Reykjavík, og sinnti því starfi fyrir hátíðina sem fór fram árið 2010. Í byrjun árs 2011 hóf Jóhann Bjarni svo störf sem frétta- J óhann Bjarni Kolbeinsson fæddist 20. maí árið 1980 í Reykjavík og ólst upp í Laugarneshverfinu og í Kópavogi fyrstu árin. Árið 1986 fluttist hann til Nova Scotia í Kanada ásamt foreldrum sínum, og gekk þar í barnaskóla í tvö ár. Hann fluttist svo heim til Íslands árið 1988, hóf þá nám í Laugarnesskóla og síðar í Laugalækjarskóla. Fjölskylda Jó- hanns Bjarna keypti húsið á Skóla- vörðustíg 4B árið 1990. „Það má því segja að ég hafi slitið barnsskónum í miðbæ Reykjavíkur, þar sem ég bjó að fullu frá 1996 til 2012, fyrst í hús- inu við Skólavörðustíg, en síðar við Óðinsgötu, Laugaveg og loks við Grettisgötu,“ segir Jóhann Bjarni. Jóhann Bjarni varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 2001 og lauk BA-prófi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands 2006. Árið 2012 flutti Jóhann Bjarni til Svíþjóðar og hóf nám í viðskiptafræði og stjórnun við Háskólann í Uppsölum. Þaðan lauk hann MA-prófi 2014. Meðfram skóla sinnti Jóhann Bjarni ýmsum störfum. Meðfram menntaskóla vann hann meðal ann- ars á Viðeyjarferjunni og sem leið- sögumaður í Lundeyjarferðum og um borð í skemmtiferðaskipinu Ár- nesi. Þá vann hann í prentsmiðju Morgunblaðsins meðfram háskóla- námi. Í Menntaskólanum í Reykjavík hóf Jóhann Bjarni feril sinn sem plötu- snúður, en hann spilaði meðal annars á böllum og svokölluðum Te-Bó-- kvöldum í skólanum. Um svipað leyti, árið 1998, spilaði hann í fyrsta skipti á skemmtistað en það var Wunder- bar í Lækjargötu. Á næstu tíu árum spilaði hann undir nafninu DJ JBK m.a. á skemmtistöðunum Hús Mál- arans, Sólon Islandus, Astró, Prikið, Vegamót og Café Oliver. Þá spilaði hann í ófáum brúðkaupum, á árshá- tíðum og veislum hvers konar á ár- unum frá 2002 til 2012. „Í dag spila ég bara í einstaka einkasam- kvæmum, en hef þó spilað opinber- lega á tónlistarhátíðinni Bræðslunni á hverju ári undanfarin fjögur ár.“ Jóhann Bjarni hóf fjölmiðlaferil sinn árið 2005, þegar hann hóf störf sem blaðamaður á mbl.is. Hann flutt- legir fagmenn, en um leið á meðal minna bestu vina. Í raun eru þeir eins og fjölskylda mín.“ Jóhann Bjarni hefur verið til- nefndur til blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands í tvígang og hlotið þau einu sinni. Hann hlaut verðlaunin fyrir rannsóknarblaða- mennsku ársins árið 2012, fyrir af- hjúpun sína um iðnaðarsalt í mat- vælum annars vegar og kadmíum í áburði hins vegar. Þá var hann til- nefndur fyrir umfjöllun ársins 2017, fyrir fréttir af hryllilegum aðbúnaði fjölmargra barna sem bjuggu á Kópavogshælinu á árunum 1952 til 1993. Að námi í Svíþjóð loknu flutti Jóhann Bjarni á æskuslóðir í Laugarneshverfinu, þar sem hann býr enn ásamt fjölskyldu sinni, en hann er nú í fæðingarorlofi. „Orlofið ætla ég meðal annars að nýta til ferðalaga innanlands með fjölskyld- unni en við nýtum hvert tækifæri sem gefst til þess að fara austur á land þar sem tengdaforeldrar mínir búa.“ Jóhann Bjarni hugðist halda stórt samkvæmi í tilefni stórafmælisins og hafði leigt Þróttarheimilið til verks- ins. Sökum samkomubannsins var samkvæmið blásið af, en hann segir ekki loku fyrir það skotið að það verði haldið síðar. Jóhann Bjarni hyggst í staðinn verja kvöldinu með sínum allra nánustu vinum. Fjölskylda Sambýliskona Jóhanns Bjarna er Eyrún Björk Jóhannsdóttir, f. 5.7. 1981, flugfreyja og stjórnmálafræð- ingur. Foreldrar hennar eru Jóhann Gísli Jóhannsson, f. 1960, og Ólöf Ólafsdóttir, f. 1956, stórbændur á Breiðavaði á Fljótsdalshéraði. Börn Jóhanns Bjarna og Eyrúnar Bjarkar eru Benedikt Ari, f. 21.10. 2010, Lóa Kristín, f. 14.11. 2014, og Þórunn Margrét, f. 19.10. 2019. Systir Jóhanns Bjarna sammæðra er Sunna Kristín Hannesdóttir, f. 1989, læknir. Systir Jóhanns Bjarna samfeðra er Sólrún Kolbeinsdóttir, f. 1993, doktorsnemi í Stokkhólmi, og bróðir hans samfeðra er Sölvi Kol- beinsson, f. 1996, saxófónleikari í Berlín. Jóhann Bjarni Kolbeinsson fréttamaður – 40 ára Ljósmynd/Kristinn Þeyr Magnússon Við Lómagnúp Jóhann Bjarni er núna í fæðingarorlofi og ætlar að nýta tímann meðal annars til ferðalaga innanlands með fjölskyldu sinni. Snýr skífum ennþá stöku sinnum Fjölskyldan Á ferðalagi fyrir aust- an, stödd í Hallormsstaðarskógi. Skjáskot/RÚV Fréttamaðurinn Jóhann Bjarni. 30 ára Helgi er Reyk- víkingur, ólst upp í Ár- bænum en býr í Norð- lingaholti. Hann lauk burtfararprófi frá FÍH í gítarleik og starfar sem tónlistarmaður og tónlistarkennari við Tónlistarskóla Árbæjar og FÍH. Helgi hef- ur undanfarið spilað m.a. með Dúndur- fréttum og Riggviðburðum og er að vinna að plötu með Matta Matt. Maki: Ingibjörg Erla Þórhallsdóttir, f. 1992, hagfræðingur og kennir við Verzl- unarskóla Íslands. Foreldrar: Jón Helgason, f. 1959, vél- fræðingur og verktaki, og Sigrún Magnúsdóttir, f. 1957, vinnur við bókhald hjá Ferli verkfræðistofu. Þau eru búsett í Reykjavík. Helgi Reynir Jónsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.