Morgunblaðið - 20.05.2020, Page 25

Morgunblaðið - 20.05.2020, Page 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI VINSÆLASTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI KOMIN AFTUR Í BÍÓ TIL AÐ KOMA OKKUR Í HLÁTURGÍRINN ! GÓÐ GRÍNMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA MEÐ ÍSLENSKU TALI. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það var uppselt á tónleikana mína með Sinfóníunni sem halda átti í seinustu viku en aflýsa þurfti út af kórónuveirufaraldrinum. Þótt það verði einhverjir áheyrendur á tón- leikum kvöldsins verður salurinn auðvitað ekki fullur þar sem virða þarf samkomutakmarkanir. Á móti kemur að ég fæ tækifæri til að syngja fyrir alla landsmenn heima í stofu,“ segir Hallveig Rúnarsdóttir sópran sem syngur á tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar Íslands (SÍ) í kvöld kl. 20. Tónleikarnir verða sendir út beint á Rás 1 og í Ríkis- sjónvarpinu auk þess sem horfa má á það í beinni útsendingu á vef hljómsveitarinnar, sinfonia.is. Upphaflega stóð til að Hallveig kæmi fram með SÍ 14. maí og var löngu orðið uppselt á þá tónleika. „Efnisskrá kvöldins er að hluta til sú sama og vera átti í síðustu viku, en breyta þurfti öðru þar sem hljómsveitin er umfangsminni,“ seg- ir Hallveig og vísar til þess að vegna samkomutakmarkana séu að- eins 46 hljóðfæraleikarar á sviðinu í Eldborg í stað fullskipaðrar hljóm- sveitar. „Til að virða tilmæli sótt- varnalæknis er síðan lögboðið tveggja metra bil á milli allra hljóð- færaleikaranna, sem hefur áhrif á hljóminn, sem er skemmtilegt.“ Aría með tveimur sólistum Á tónleikum kvöldsins syngur Hallveig aríurnar „Dove sono“ úr Brúðkaupi Fígarós, „L’amerò, sarò constante“ úr Il rè pastore og „Non mi dir“ úr Don Giovanni eftir W.A. Mozart auk einsöngslaganna „Draumalandið“ og „Gígjan“ eftir Sigfús Einarsson, „Hvert örstutt spor“ eftir Jón Nordal og „Á Sprengisandi“ eftir Sigvalda Kalda- lóns. Jafnframt leikur hljómsveitin 1. kafla úr sinfóníu nr. 29 eftir Moz- art og Méditation úr óperunni Thaïs eftir Jules Massenet þar sem Sig- rún Eðvaldsdóttir leikur einleik. Hljómsveitarstjóri er Bjarni Frí- mann Bjarnason. Aðspurð segir Hallveig aríurnar þrjár mjög ólíkar. „Greifynjan í Brúðkaupi Fígarós syngur „Dove sono“ þar sem hún spyr sig hvert allar fallegu stund- irnar með eiginmanninum hafi horf- ið nú þegar hann sé farinn að leita á önnur mið. Í raun má segja að þetta sé saknaðarljóð,“ segir Hallveig og tekur fram að allt önnur stemning ríki í „L’amerò, sarò constante“ sem lýsa megi sem hreinræktuðu ást- arljóði sem Aminta syngur. „Óper- an Il rè pastore er mjög sjaldan flutt, en þessi aría castrato- hlutverksins Aminta er frægasta hluti hennar og oftast flutt sem konsertaría,“ segir Hallveig og bendir á að eitt af því sem geri aríuna jafn skemmtilega og raun ber vitni sé hversu fyrirferðarmikil fiðluröddin sé í stykkinu. „Fiðlan er í fallegu samspili við sópranröddina. Hvað það varðar er þessi aría óvenjuleg sökum þess að í verkinu eru í raun tveir sólistar,“ segir Hall- veig, en fiðluröddina leikur Nicola Lolli konsertmeistari. Fólk tónleikaþyrst í haust „Arían „Non mi dir“ sem Donna Anna syngur seint í óperunni Don Giovanni er ætluð Don Ottavio, ást- manni hennar, þar sem hún reynir að útskýra líðan sína,“ segir Hall- veig og rifjar upp að snemma í verkinu verði Donna Anna fyrir árás af hendi titilpersónunnar sem hafi mikil áhrif. „Þessi aría er ekki oft flutt á tónleikum vegna þess hversu ofboðslega erfið hún er. Sem dæmi er hún aldrei höfð með í ar- íusafnbókum vegna þess hversu snúin hún þykir,“ segir Hallveig sem þekkir aríuna mjög vel þar sem hún söng hlutverk Donnu Önnu árið 2016 í uppfærslu Íslensku óp- erunnar á Don Giovanni. Spurð hvernig sé að komast aftur á svið eftir að samkomutakmörk- unum var aflétt segir Hallveig það ánægjulegt. „Ég sat ekki auðum höndum í samkomubanninu heldur sinnti kennslu auk þess sem ég tók þátt í tónleikadagskránni Heima í Hörpu. Þá söng ég fyrir alveg tóm- um sal í Eldborg og sneri meira að segja baki í áheyrendabekkina, sem var mjög sérstakt,“ segir Hallveig og tekur fram að hún reikni með að nóg verði að gera í haust. „Allir tón- leikarnir sem átti að halda í vor hafa færst til hausts og bætast við þá tónleika sem fyrir voru þannig að það verður mikið stuð og nóg úr að velja,“ segir Hallveig og reiknar með að fólk verði tónleikaþyrst. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Lögboðið bil Hallveig Rúnarsdóttir á æfingu þar sem lögboðið tveggja metra bil er milli allra hljóðfæraleikara. „Sat ekki auðum höndum“  „Fæ tækifæri til að syngja fyrir alla landsmenn heima í stofu,“ segir Hallveig Rúnarsdóttir sem syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg í kvöld kl. 20 Feneyjatvíæringnum í myndlist hefur verið frestað um ár; næsti tvíæringur hefst því 23. apríl vorið 2022 en ekki á næsta ári. Tilkynnt hefur verið að Sigurður Guð- jónsson verði fulltrúi Íslands á þessari elstu og umfangsmestu myndlistarhátíð sem reglulega er haldin. Ástæða frestunarinnar er sú að til skiptis eru settir upp tvíæringar í arkitektúr og myndlist á Giar- dini-sýningasvæðinu í Feneyjum. Arkitektúrtvíæringurinn sem átti að vera nú í ár, og Ísland tekur ekki þátt í, verður ekki fyrr en 2021 og því ýtist myndlistin aftur. Myndlistartvíæringurin verður því á sama tíma og önnur viðamikil og umtöluð myndlistarhátíð, Docu- menta í Kassel í Þýskalandi, sem haldin er á fimm ára fresti. Morgunblaðið/Einar Falur Forvitnilegt Frá tvíæringnum í fyrra. Feneyjatvíæringi frestað til 2022 Franski stjörnu- leikarinn Michel Piccoli er látinn, 94 ára að aldri. Piccoli var marg- verðlaunaður og lék í kvikmynd- um nær allra helstu frönsku leikstjóranna síð- an um miðja síð- ustu öld, samhliða því að vera vin- sæll sviðsleikari. Þá lék hann í einum sjö kvikmyndum eftir Luis Buñuel. Gagnrýnendur telja leik Piccolis í Contempt eftir Jean-Luc Godard með hans helstu afrekum en hann starfaði til að mynda með Louis Malle, Jean Renoir, Claude Chabrol, Costa-Gavras, Alain Resnais og Agnès Varda. Stjörnuleikarinn Piccoli látinn Michel Piccoli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.