Morgunblaðið - 20.05.2020, Síða 28
Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir
hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár fyr-
ir handrit sitt að bókinni Blokkin á heimsenda sem kom
út í gær. Reykjavíkurborg veitir verðlaunin og voru þau
afhent í fyrsta sinn í fyrra. Verðlaunin eru veitt fyrir
óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og er ætl-
að að hvetja til metnaðarfullra skrifa fyr-
ir börn og ungmenni og halda á loft
merkjum eins okkar ástsælasta
barnabókahöfundar. Verðlaunaféð
er ein milljón króna. Hátt á fimmta
tug handrita barst í samkeppnina
í ár og segir m.a. í umsögn dóm-
nefndar um verðlaunahandritið að
sagan sé grípandi með gaman-
sömum tóni og segi frá fjöl-
skyldu sem sé vön nútíma-
þægindum en þurfi að segja
skilið við sitt hefðbundna líf
til að komast í gegnum erf-
iða tíma.
Arndís og Hulda hljóta
Barnabókaverðlaun Guðrúnar
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Keilir SI, áður Kristbjörg ÞH 44, er í
slipp á Húsavík, þar sem verið er að
gera upp bátinn og endursmíða.
Þegar eigandinn Gunnar Júlíusson á
Siglufirði tók mastrið niður fann
hann gullpening vel vafinn inn í
pappír sem á var skrifuð sjóferða-
bæn fyrir áhöfnina og bátinn. „For-
eldrar mínir komu þessu fyrir, þegar
báturinn var smíðaður í Stykkis-
hólmi 1975, og mamma skrifaði bæn-
ina, skriftin leynir sér ekki,“ segir
Pétur Olgeirsson, fyrrverandi skip-
stjóri.
Olgeir Sigurgeirsson útgerðar-
maður, Olli í Skálabrekku, átti ásamt
þremur sonum sínum, Sigurði,
Hreiðari og Jóni, fyrirtækið Korra
hf., sem lét smíða 50 tonna bátinn.
Pétur segir að sérlega gott samband
hafi myndast á milli foreldra sinna
og bræðra, sem áttu bátinn, og eig-
enda Skipavíkur, sem smíðuðu hann.
„Pabbi leit upp til þeirra á allan hátt,
var mjög ánægður með samstarfið,“
segir hann og bætir við að hann viti
ekki um annað sambærilegt dæmi
um pening og sjóferðabæn áhöfn og
skipi til heilla. „Ég veit ekki hver átti
uppástunguna um gullpeninginn og
bænina, sennilega foreldrar mínir
saman, en við vissum um peninginn,
ekki bænina.“
Hélt upp á töluna 44
Sigurgeir, Geiri Péturs, skipstjóri
í Argentínu, tekur undir með föður
sínum í færslu á Facebook. „Ég
kannast vel við skrift elsku ömmu
heitinnar Rögnu í Skálabrekku í
þessari bæn.“ Hann getur þess jafn-
framt að báturinn hafi verið undir
stjórn fimm Skálabrekkubræðra og
verið mikið aflafley.
Elsti sonurinn, Sigurður Valdi-
mar, var fyrst með bátinn. Pétur var
á móti honum á rækjuveiðum eitt
sumar. „Þetta var alltaf fallegur bát-
ur og er enn enda pössuðu ömmur
mínar upp á það að bátarnir væru
snyrtilegir,“ rifjar hann upp. Í því
sambandi bendir hann á að báturinn
hafi heitið eftir ömmum sínum.
Móðuramman hafi heitið Kristjana
og föðuramman Björg.
Hreiðar, sá næstelsti, tók við
Kristbjörgu 1980 og var með skipið
þar til það var selt 1992. Hafþór, son-
ur hans, var á bátnum með föður sín-
um 1983, 1986 og 1987 og er sam-
mála frændum sínum um
vitneskjuna um peninginn. „Útgerð-
in var mjög farsæl,“ segir hann um
Kristbjörgu. Báturinn hafi verið á
netum, línu, dragnót og rækju og
farið á síld. „Kristbjörg var sann-
kallað fjölveiðiskip, þó að báturinn
hafi ekki verið stór,“ heldur Hafþór
áfram, en hann heldur úti skipa-
myndasíðu (www.skipamyndir.com)
þar sem eru myndir af bátnum undir
þeim nöfnum sem hann hefur borið.
„Gott var að vera á honum.“
Talan 44 var í hávegum höfð hjá
Olla. „Það snerist allt um 44 hjá
pabba gamla,“ segir Pétur og vísar
meðal annars til bílnúmera, síma-
númera, númera á bátum og banka-
reikningum. „Númerið hefur fylgt
okkur afkomendum alla tíð.“ Þegar
gullpeningurinn og bænin fundust
höfðu þau verið undir mastrinu í 44
ár. „Mikil tilviljun það og veit ég að
afi gamli brosir breitt á himnum uppi
yfir þessu,“ skrifar Geiri Péturs.
Brosað á himnum
Ljósmynd/Hreiðar Olgeirsson
Kristbjörg ÞH 44 Skipið tilbúið til heimsiglingar frá Stykkishólmi 1975.
Gullpeningur og sjóferðabæn fundust undir mastri eftir 44 ár
Ljósmynd/Lea Hrund Hafþórsdóttir
45 árum síðar Hafþór Hreiðarsson við Keili í slippnum á Húsavík.
Ljósmynd/Áki Hauksson
Undir mastrinu Bænin „Guð og
gæfan fylgi þér Kristbjörg kom þú
ætíð með skipshöfn þína heila í
höfn“ og gullpeningurinn í skipinu.
FÆST Í NÆSTU
BÓKAVERSLUN
OG Á EDDA.IS
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 141. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Kristófer Acox, körfuknattleiksmaður úr KR, er á leið í
tvær aðgerðir í sumar, aðra vegna nýrnaveiki og hina
vegna ökklameiðsla. Hann kveðst hins vegar tilbúinn í
slaginn næsta vetur og reiðubúinn að taka við leiðtoga-
hlutverki í liðinu ef eldri leikmenn liðsins hætta allir
eins og útlit er fyrir. »23
Fer í tvær aðgerðir í sumar en er
klár í leiðtogahlutverk hjá KR
ÍÞRÓTTIR MENNING