Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
339.000 kr.
Tilboðsverð
BREKKA 34 - 9 fm
518.000 kr.
Tilboðsverð
STAPI - 14,98 fm
389.000 kr.
Tilboðsverð
NAUST - 14,44 fm
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Rekstrarniðurstaða samstæðu
Reykjavíkurborgar var jákvæð um
13,3 milljarða króna á árinu 2019 sam-
kvæmt ársreikningi borgarinnar sem
staðfestur var í borgarstjórn á þriðju-
dag. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins setja fyrirvara við samþykkt
ársreikningsins vegna Félagsbústaða.
Íbúðir í eigu Félagsbústaða eru metn-
ar í samræmi við markaðsvirði og hef-
ur bókfært virði þeirra hækkað um 57
milljarða frá árinu 2012, þar af um
rúma fjóra milljarða milli áranna 2018
og 2019. Í samtali við Morgunblaðið
segir Eyþór Arnalds, oddviti sjálf-
stæðismanna í borginni, að óeðlilegt
sé að meta eignirnar með þessum
hætti. „Við höfum bent á að Félags-
bústaðir eru ekki reknir í hagnaðar-
skyni heldur eiga þeir að vera fé-
lagslegt úrræði. Því setjum við
spurningarmerki við að borgin geri
upp með þessum hætti,“ segir Eyþór.
Hagnað af þessu tagi sé ekki hægt að
innleysa enda standi ekki til að selja
eignir Félagsbústaða heldur fari
þeim þvert á móti fjölgandi.
Sætta sig ekki við
góða niðurstöðu
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgar-
fulltrúi Pírata, segir að áhyggjur
minnihlutans af reikningsstöðlum Fé-
lagsbústaða hafi verið teknar mjög al-
varlega. Vísar hún í sérstakt minnis-
blað endurskoðunarnefndar borgar-
innar, sem útbúið var eftir að fulltrúi
Sjálfstæðisflokks sagði sig úr nefnd-
inni. Þar komst nefndin að þeirri
niðurstöðu að óumdeilt væri sam-
kvæmt alþjóðlegum reiknings-
stöðlum, á borð við IFTS, að heimilt
væri að meta eignirnar á hvort heldur
markaðsverði eða kostnaðarverði. Þá
hefði óháð mat ráðgjafa KPMG leitt í
ljós að ekki væri aðeins heimilt að
meta virði með þessum hætti, heldur
væri það einnig „viðeigandi“ og gæfi
„gleggri mynd af stöðu félagsins“.
Dóra segir borgarfulltrúa minni-
hlutans, með Vigdísi Hauksdóttur í
broddi fylkingar, vera í ákveðinni
vegferð gegn eftirlitsstofnunum með
það fyrir augum að skapa ringulreið
og grafa undan lýðræðinu. „Stað-
reyndirnar henta einfaldlega ekki í
þessu tilfelli og því er ansi langt geng-
ið í því að villa um fyrir almenningi og
ala á tortryggni.“
Ólík sýn á skuldir
Á sama tíma og borgarsjóður var
rekinn með rúmlega 13 milljarða
hagnaði jukust skuldir hans um 21
milljarð. Eyþór segir áhyggjuefni að
ekki hafi tekist að lækka skuldir í góð-
æri síðustu ára. „Þetta eru ekki bara
miklar fjárfestingar heldur hækka
laun og rekstarkostnaður um 8-9%,“
segir Eyþór og bætir við að nýir
kjarasamningar geri ráð fyrir allt að
30% hækkun launa. Segir hann tíma-
bært að endurskoða ýmsar fjárfest-
ingar borgarinnar, á borð við borgar-
línu. Þessu er Dóra ósammála.
Mikilvægt sé að halda því til haga að
skuldsetning sé ekki notuð til að
greiða niður hallarekstur, enda skili
borgarsjóður hagnaði, heldur til að
ráðast í fjárfestingar. „Sumir myndu
segja að stjórnmálafólk sem vantar
metnað finni sér skjól í því að leggja
stanslausa áherslu á að borga niður
skuldir.“
Setja fyrirvara við mat í ársreikningi
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík Staða Félagsbústaða vænkast vegna hækkaðs fasteignamats.
13,3 milljarða hagnaður af rekstri borgarinnar í fyrra 4,8 milljarðar koma til vegna hækkaðs fast-
eignamats Óeðlilegt mat, segir oddviti sjálfstæðismanna Óumdeild aðferð, segir fulltrúi meirihlutans
Leiði Jóns Sigurðssonar forseta og konu hans, Ingibjarg-
ar Einarsdóttur, í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu er
illa hirt og legsteinn og minnisvarði í slæmu ástandi.
„Ég gekk þar fram hjá nýlega og sá mér til mikillar
undrunar og vonbrigða að ekki aðeins er leiðið illa hirt
heldur er bæði minnisvarðinn og legsteinninn í afar slæmu
ástandi, sem er okkur öllum til mikils vansa,“ segir Árni
Tómas Ragnarsson læknir í bréfi til Morgunblaðsins.
Hann tekur sterkar til orða í samtali við blaðamann og
segir þetta ástand leiðis helstu frelsishetju Íslendinga til
skammar. Fæðingardagur Jóns var, eins og kunnugt er,
valinn sem þjóðhátíðardagur Íslendinga við stofnun lýð-
veldisins. Þess vegna hefur það verið hefð í áratugi að
leggja blómsveig að leiði þeirra hjóna í Hólavallakirkju-
garði að morgni 17. júní. Árni Tómas segir ömurlegt að
þangað sé marserað ár eftir ár með leiði og minnisvarða í
þessu ástandi.
Einhverjum verði falin umhirðan til framtíðar
Árni Tómas telur löngu tímabært að hreinsa lágmynd-
ina á minnisvarðanum og gera við steininn og sömuleiðis
legsteininn. Hann segist ekki vita hver beri ábyrgð á um-
hirðu leiðisins. Leggur hann til að Kirkjugörðunum eða
einhverjum opinberum aðila verði falið að annast umhirðu
þess og viðhald í framtíðinni þannig að Jóni og þeim
hjónum báðum verði sýndur viðeigandi sómi og virðing
um langa framtíð.
Jón lést 7. desember 1879 eftir langvinn veikindi. Ingi-
björg eiginkona hans lést níu dögum seinna. helgi@mbl.is
Leiði og minnisvarði Jóns
forseta í slæmu ástandi
Hvatt til að hið fyrsta verði gerð bragarbót þar á
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Minnisvarði Stein þennan reistu landar honum árið 1881. Óhreinindi eru á lágmynd Jóns og hluta steinsins.
Legsteinn Hreinsa þarf legstein þeirra hjóna og leiði.
Maðurinn sem slasaðist í bruna í
húsi við Hafnarstræti á Akureyri
síðastliðið þriðjudagskvöld er látinn.
Hann var 67 ára gamall og lést síðari
hluta miðvikudags á gjörgæsludeild
Landspítala.
Rannsóknarmenn úr tæknideild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
og fulltrúar Brunamálastofnunar
fóru á vettvang og hófu rannsókn
þar á miðvikudag, ásamt lögreglu-
mönnum frá embætti lögreglustjór-
ans á Norðurlandi eystra. Lauk
rannsókn á vettvangi í gær. Ekkert
hefur verið gefið upp um ástæður
brunans en lögreglan tók rafmagns-
tæki og fleiri hluti til frekari skoð-
unar.
Eldurinn kom upp í Hafnarstræti
37, sem er eitt af elstu húsum Akur-
eyrar, um kvöldmatarleytið á þriðju-
dag. Reykkafarar náðu manninum
út og var hann meðvitundarlaus.
Hann var fyrst fluttur á sjúkrahúsið
á Akureyri og síðan með sjúkraflugi
til Reykjavíkur síðar um kvöldið og
lagður inn á gjörgæsludeild Land-
spítalans. Þar lést hann síðdegis í
fyrradag, eins og fyrr segir.
Húsið er talið ónýtt eftir brunann
og aðgerðir slökkviliðs til að slökkva
eldinn. Þurfti meðal annars að rífa
þakið af húsinu. Talin var hætta á að
eldurinn bærist í nærliggjandi hús
og voru þau rýmd.
Maðurinn lést
eftir eldsvoða
Eldsupptök enn til rannsóknar
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hafnarstræti Lögreglumenn að
ljúka athugun á vettvangi.