Morgunblaðið - 22.05.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 22.05.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Knattspyrnufélagið Valur Aðalfundur Aðalfundur knattspyrnufélagsins Vals verður haldinn í Origo höllinni að Hlíðarenda þriðjudaginn 2. júní, kl. 17:00. Dagsskrá aðalfundar er samkvæmt samþykktum félagsins Stjórn Vals Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Þetta fer allt að lagast,“ segir Ragnhildur Árnadóttir, sem er 100 ára í dag. Hún býr á Hrafnistu í Reykjavík og vegna kórónuveir- unnar hefur hún verið innilokuð á sinni hæð og heimsóknir takmark- aðar. En hún sér fram á bjartari tíð. „Þetta fer að lagast,“ segir hún. „Boðið verður upp á kaffi og rjómatertu í tilefni dagsins,“ heldur afmælisbarnið áfram og segir að sonurinn Oddur Garðarsson flug- virki og tengdadóttirin séu vænt- anleg. „Oddur og Racel, kona hans, fá að koma en ég á ekki von á öðr- um vegna flensunnar.“ Ragnhildur fæddist á Njálsgötu í Reykjavík en síðan flutti fjöl- skyldan upp í Þverholt, þar sem faðir hennar keypti hús. „Þver- holtið þótti vera uppi í sveit,“ rifjar hún upp. Ýmis minningarbrot koma upp í hugann og Ragnhildur segist hafa upplifað margt en lífið hafi gengið sinn gang, rétt eins og hjá öðrum. Hún hafi því enga sérstaka sögu að segja. „En Reykjavík hefur breyst mikið síðan ég ólst upp, var að leika mér, passaði krakka, fór í skóla og vinnu.“ Eftir tveggja ára nám í Ingimars- skóla að loknu barnaskólanámi fór Ragnhildur að vinna í Mjólkursam- sölunni. Eiginmaður hennar, Garð- ar Ólafsson tannlæknir, sem and- aðist 1978, fór í nám til Banda- ríkjanna og bjuggu þau í Portland í fjögur ár. „Þegar við komum til baka var ekki hægt að fá gjaldeyri til að kaupa nauðsynleg tæki í tann- læknastofuna nema hún væri á Sel- fossi eða í Keflavík. Við vorum næstum því flutt út aftur en ákváðum síðan að setjast að í Kefla- vík. Þar var prýðilegt að vera og mér þykir vænt um Keflavík.“ Hjónin ferðuðust mikið á meðan, en Ragnhildur segir lítið um að vera um þessar mundir. „Ég hef lesið mikið, fræðibækur og fleira, en það er lítið hægt að gera annað en lesa svona innilokuð.“ Langlífi er þekkt í fjölskyldunni. „Mömmu vantaði bara þrjá mánuði upp á 100 árin,“ segir Ragnhildur, en foreldrar hennar voru Branddís Guðmundsdóttir, sem varð 99 ára, og Árni Jónsson verkamaður, sem varð 95 ára. Ragnhildur er yngst fjögurra systra og varð ein þeirra 94 ára. „Ég tóri enn og má þakka fyrir það,“ segir Ragnhildur. Tímamót Ragnhildur Árnadóttir fagnar 100 ára afmæli sínu í dag. Ragnhildur Árnadóttir sér fram á bjartari tíð  Heldur upp á 100 ára afmælið innilokuð vegna veirunnar Telur fyrirtæki að minni umhverfis- áhrif verði af eldi í lokuðum kvíum af þessu tagi. Í bráðabirgðaákvæði fiskeldislag- anna kemur fram að úr gildi falla umsóknir um rekstrarleyfi fyrir sjó- kvíaeldi á hafsvæðum sem ekki er búið að meta til burðarþols við gild- istöku ákvæðisins. Burðarþol Eyja- fjarðar hefur ekki verið gefið út. Hafrannsóknastofnun þarf að fá beiðni frá ráðherra til þess og hún hefur ekki verið lögð fram. Hvorugt fyrirtækið var komið með frummats- skýrslu vegna umhverfismats. Staðan er því sú að engin vinna fer nú fram við að undirbúa laxeldi í sjókvíum í Eyjafirði. Kveikjan að umræðunni nú Umræðan sem leiddi til bókunar meirihluta bæjarfulltrúa á Akureyri kemur til af því að landeigendur við austurhluta Eyjafjarðar og ferða- þjónustufyrirtæki hafa sent erindi til sveitarstjórna þar sem varað er við áhrifum sjókvíaeldis á hagsmuni þeirra. Einnig kveikti það umræðu að sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra kynnti í lok mars aðgerðir á sínu málasviði vegna kórónuveiru- faraldursins. Ein af þeim er að flýta afgreiðslu rekstrarleyfa í fiskeldi enda gæti það leitt til mikilla fjár- festinga og fjölgunar starfsfólks. Stjórn SSNE, Samtaka sveitarfé- laga og atvinnuþróunar á Norður- landi eystra, tók málið fyrir á fundi í byrjun mánaðarins og samþykkti bókun þar sem fram kemur það álit að sýna beri mikla varkárni varð- andi lífríki Eyjafjarðar, áhrif á ferðaþjónustu sem og ásýnd fjarð- arins. Telur stjórnin það lykilatriði að samráð verði haft við sveitarfélög og íbúa varðandi uppbyggingu. Tveir af þeim fulltrúum sem sam- þykktu þessa bókun, þar á meðal formaður SSNE, Hilda Jana Gísla- dóttur, samþykktu síðan tillögu í bæjarstjórn Akureyrar sem gengur mun lengra, þar sem lagt er til að fjörðurinn verði friðaður fyrir eldi. Skiptar skoðanir sveitarfélaga Gunnar Gíslason, oddviti sjálf- stæðismanna í bæjarstjórn Akur- eyrar, flutti tillöguna. Hún var sam- þykkt með atkvæðum allra fulltrúa minnihlutans auk fulltrúa Samfylk- ingarinnar sem eru í meirihlutasam- starfi með Framsókn og L-lista. Gunnar nefnir umhverfissjónar- mið fyrir afstöðu sinni, meðal annars hættu á að lax sem sleppur úr kvíum fari upp í ár í nágrannahéruðum og að eldi skapi aukna hættu á að laxa- lús leggist á bleikjustofna. Hann nefnir einnig sjónmengun. Fjörður- inn sé þröngur og kvíar geti truflað ferðir stórra skipa inn fjörðinn, með- al annars skemmtiferðaskipa. „Við viljum frekar láta náttúruna njóta vafans og vernda ásýnd fjarðarins, en að taka áhættu sem við vitum ekki hver er og fórna þannig meiri hags- munum fyrir minni,“ segir Gunnar. Andri Teitsson, bæjarfulltrúi L- listans, segist frekar vera í hópi efa- semdarmanna en fylgjenda sjókvía- eldis, en honum finnist óþarfi að slá það alveg út af borðinu. Hann studdi tillögu fulltrúa L-lista og Fram- sóknarflokks um að gert yrði strand- svæðaskipulag af öllum firðinum og engin leyfi veitt fyrr en að því loknu. Tillagan var samþykkt vegna hjá- setu sjö fulltrúanna sem áður höfðu samþykkt friðun. Þau sjókvíaverkefni sem unnið var að voru öll fyrir ströndum annarra sveitarfélaga, meðal annars Dal- víkurbæjar. Bæjarstjórnin þar hefur ekki samþykkt stefnu í þessum mál- um en hvatt til framhalds á umræðu sem farið hefur fram á vegum lands- hlutasamtakanna á síðustu árum. Ólafsfirðingar höfðu vonir um að fá innspýtingu í samfélagið með starfsstöð þar. Elías Pétursson, bæj- arstjóri Fjallabyggðar, telur bókun bæjarstjórnar Akureyrar nokkuð bratta. Bæjarstjórn Fjallabyggðar hafi viljað horfa til þessarar greinar, eins og annarra við fjölgun atvinnu- tækifæra. Bæjarstjórn vill friða fjörðinn  Meirihluti bæjarfulltrúa á Akureyri vill ekki sjókvíaeldi í Eyjafirði  Telja hagsmuni umhverfis og ferðaþjónustu mikilvægari  Búið var að stöðva allt leyfisferli  Horft til Ólafsfjarðar sem starfsstöðvar Sjókvíar í Eyjafirði » Á árinu 2004 var ákveðið að banna eldi laxfiska í nágrenni við stærri laxveiðiár. Á Norður- landi stóð Eyjafjörður eftir sem raunhæft eldissvæði. » Í könnun sem gerð var með- al íbúa fyrir rúmu ári kom í ljós að þriðjungur íbúa var á móti sjókvíum, rúmlega fjórðungur var fylgjandi en flestum stóð á sama. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eyjafjörður Áform voru um sjókvíaeldi í Eyjafirði. Mörg þeirra voru í nágrenni Hríseyjar. Tröllaskagi í baksýn. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Meirihluti fulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt að leggja til við sjávarútvegsráðherra að Eyjafjörður verði friðaður fyrir sjókvíaeldi. Meirihlutinn klofnaði við afgreiðslu tillögunnar því tveir fulltrúar hans samþykktu tillöguna ásamt öllum fulltrúum minnihlutans en fjórir fulltrúar úr meirihlutanum sátu hjá og lögðu til mildari leið. Skoðanir eru skiptar í Eyjafirði um sjókvíaeldi. Til dæmis var unnið að því í Fjallabyggð að koma upp að- stöðu til rekstrar fiskeldis frá höfn- inni í Ólafsfirði. Nokkurt fiskeldi var í Eyjafirði fyrir nokkrum árum en því hefur öllu verið hætt. Tvö fyrirtæki hafa undirbúið stóreldi í sjókvíum og voru komin áleiðis í rannsóknum og matsferli þegar ferlið var stöðvað með breytingum á fiskeldislögum á síðasta ári. Umsóknarferlið var stöðvað Arnarlax kynnti á árinu 2017 áform um 10 þúsund tonna eldi í sjókvíum utarlega í Eyjafirði. Áformin eiga sér lengri sögu því Fjarðarlax, sem síðar sameinaðist Arnarlaxi, hafði nokkrum árum fyrr hafið matsferli miðað við 8 þúsund tonna eldi. Þau áform sem lengst voru komin voru borin fram af norska fyrir- tækinu AkvaFuture, sem hugðist koma upp lokuðum sjókvíum innar- lega í Eyjafirði, á grundvelli nýrrar tækni sem fyrirtækið hefur hannað og notað við eldi í Noregi. Ætlunin var að framleiða 20 þúsund tonn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.