Morgunblaðið - 22.05.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 22.05.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 Kínversk stjórnvöld hafa lagt fram frumvarp um ný þjóðaröryggislög í Hong Kong, sem kveða á um bann við uppreisnaráróðri, landráði og sjálfstæðisumleitunum sjálfstjórnar- héraðsins. Að sögn stjórnvalda er frumvarp- inu ætlað að taka á hryðjuverka- starfsemi í Hong Kong og koma í veg fyrir afskipti erlendra ríkja af innan- ríkismálum. Óttast lýðræðissinnar að lögin verði notuð til að traðka á mannréttindum sem tryggð eru í grunnlögum Hong Kong, sem ríkið erfði frá Bretum, en þar eru íbúum tryggð ýmis réttindi sem íbúar meginlandsins njóta ekki. „Ef þessi breyting tekur gildi mun gamla stefnan um Eitt ríki, tvö kerfi heyra sögunni til. Þetta eru endalok Hong Kong,“ hefur Reuters eftir Dennis Kwok, þingmanni á þingi Hong Kong. Kínversk stjórnvöld hafa ekki áð- ur beitt völdum sínum til þess að inn- leiða öryggislög í grunnlög Hong Kong, en talið er að útspil þeirra nú sé komið til vegna ótta við aukin yfir- ráð stjórnmálaflokka í Hong Kong, sem styðja aukið lýðræði í sjálf- stjórnarhéraðinu. Kosið verður til þings í Hong Kong í september og ef niðurstaðan verður í samræmi við héraðsstjórnarkosningar í fyrra má vænta þess að lýðræðissinnar auki hlut sinn á þinginu til muna. Frumvarpinu hefur verið mót- mælt innan Hong Kong sem og á al- þjóðavettvangi. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig eru Donald Trump Bandaríkjaforseti, en hann hefur heitið því að Bandaríkin muni bregðast við af krafti verði frumvarpið samþykkt. Þá hefur Chris Patten, síðasti ríkisstjóri Breta í Hong Kong, sagt frumvarpið vera „umfangsmikla árás á sjálfstæði borgríkisins“. Kínverjar herða tökin á Hong Kong AFP Þing 13. alþýðuþing kommúnista- flokksins verður sett í dag.  „Endalok Hong Kong“ ef ný örygg- islög eru samþykkt Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Rúmlega fimm milljónir manna hafa nú sýkst af kórónuveirunni, og um það bil 330.000 manns hafa látist af völdum hennar. Tilfellum hefur fjölgað hratt að undanförnu í ríkjum Suður-Ameríku, og eru skráð tilfelli í Brasilíu nú rúmlega 291.000 talsins, sem er hið þriðja mesta í heimi á eft- ir Bandaríkjunum og Rússlandi. Auk Brasilíu hafa stjórnvöld í Perú, Mexíkó og Síle einnig tilkynnt mikla fjölgun tilfella, og sögðu hjúkr- unarkonur í Líma, höfuðborg Perú, við AFP-fréttastofuna í gær að þær óttuðust að álagið yrði heilbrigðis- kerfi borgarinnar ofviða. Í Brasilíu er komin upp hörð deila á milli Jair Bolsonaro, forseta lands- ins, og ríkisstjóra helstu héraða Brasilíu, en þá greinir á um hversu harðar aðgerðir eigi að ráðast í vegna veirunnar. Telur Bolsonaro að skaðinn sem hljótist af hörðum sótt- varnaraðgerðum geti orðið meiri en sá skaði sem kórónuveiran geti valdið, og hefur hann hótað því að skerða fjárveitingar ríkisins, meðal annars til Sao Paulo-héraðs, þess stærsta í landinu. Þá sannfærði Bolsonaro heil- brigðisyfirvöld landsins um að mæla með notkun malaríulyfjanna klórók- ín og hydroxýklórókín til að vinna á veirunni í öllum tilvikum, en heilbrigðisyfirvöld í öðrum ríkjum hafa til þessa ekki viljað mæla með notkun lyfjanna nema í alvarlegum tilfellum. Nelson Teich, heilbrigðis- ráðherra Brasilíu, sagði af sér í síð- ustu viku og er talið að hann hafi greint á við Bolsonaro um hvort mæla ætti með malaríulyfjunum. Krefjast svara frá Kínverjum Alþýðuþing Kína kom saman í gær og ræddi meðal annars viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum. Sagði talsmaður þingsins ljóst að Kínverj- ar myndu gjalda líku líkt ef tillaga m refsiaðgerðir gegn kínverskum stjórnvöldum, sem nú er rædd á Bandaríkjaþingi, yrði að veruleika. Spenna milli Bandaríkjanna og Kína hefur magnast jafnt og þétt vegna kórónuveirufaraldursins, og sagði Donald Trump Bandaríkjafor- seti í fyrradag að Kínverjar bæru ábyrgð á fjölda andláta um allan heim vegna þess hvernig haldið hefði verið á málum í upphafi faraldursins. Repúblíkanar í öldungadeild Bandaríkjaþings lögðu fram í síð- ustu viku frumvarp sem myndi veita Trump heimild til þess að beita Kín- verja refsiaðgerðum ef kínversk stjórnvöld útskýra ekki hvernig far- aldurinn hófst. Zhang Yesui, talsmaður kínverska alþýðuþingsins, sagði í gær að það væri hvorki „ábyrgt né siðlegt að breiða yfir eigin vandamál með því að kenna öðrum um“. Bætti hann við að Kínverjar myndu ekki sætta sig við málshöfðanir vegna kórónuveir- unnar, en Missouri-ríki hefur höfðað skaðabótamál á hendur kínverskum stjórnvöldum. Mikil fjölgun tilfella í S-Ameríku  Yfir fimm milljónir manna hafa smitast af kórónuveirunni  Kínverjar hyggjast svara refsiaðgerðum AFP Mótmæli Bolsonaro er umdeildur í Brasilíu og var mótmælt í gær. Að minnsta kosti 95 manns létust í fyrrinótt þegar fellibylur skall á Indlandi og Bangladess. Skildi óveðrið eftir sig langa slóð eyðileggingar í báðum ríkjum, en fellibylurinn er talinn hinn stærsti á þessum slóðum frá árinu 1999. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 500.000 manns hafi misst heimili sín í Bangladess vegna hamfaranna, og 23 létust þar. Þá létust 72 í Vestur-Bengal-héraði Indlands. AFP Að minnsta kosti 95 látnir eftir fellibyl Donald Trump Bandaríkja- forseti tilkynnti í gær að hann hygðist segja upp „Open Skies“-sam- komulaginu, en það veitir þeim ríkjum sem rit- að hafa undir það rétt til þess að stunda eftir- litsflug innan lofthelgi hinna ríkjanna með skömmum fyrir- vara. Trump segir að Rússar hafi ekki staðið við sinn hluta sam- komulagsins, en því var ætlað að auka gagnsæi og traust milli stór- veldanna. Bandaríkjamenn telja hins vegar að Rússar hafi reynt að meina eftirlitsflugi aðgang að vissum svæðum, þvert á ákvæði samkomulagsins. Sendiherrar Atlantshafsbanda- lagsríkjanna munu funda í Bruss- el í dag til þess að ræða afleið- ingar ákvörðunar Trumps, en Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, skoraði á Trump að skipta um skoðun. Segja sig frá eftir- litssamkomulagi Donald Trump BANDARÍKIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.