Morgunblaðið - 22.05.2020, Síða 16

Morgunblaðið - 22.05.2020, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Vegna frábærra undirtekta framlengjum við afmælistilboðið! Leyndarmál Matarkjallarans, 6 réttir að hætti kokksins á 6.990 kr. Gildir út maí. AFMÆLISTILBOÐ Það er lífsins gang- ur að ein kynslóð tek- ur við af annarri. Allt er breytingum undir- orpið og flest reynum við að undirbúa okkur sem best, hvort sem við erum að yfirgefa þennan heim eða taka hann í arf. Í því rétt- arríki sem við lifum núna hefur löggjafinn nokkurn viðbúnað til að tryggja að allt fari eftir settum reglum þó að kaldhæðnir menn hafi stundum á orði að ríkið sé fyrsti syrgjandinn þegar kemur að uppgjöri arfs. Þannig hefur skapast hefð fyrir því að þegar verðmæti fara á milli kynslóða mætir ríkisvaldið og það mun mæta aftur næst þegar sami arfur gengur milli næstu kynslóða. Ef arfurinn ávaxtast lítið þá mun allt að endingu hverfa til ríkisins. Þannig má segja að það sé erfingi allra erfingja enda aðeins tvennt öruggt í lífinu; skatturinn og dauð- inn. Við getum haft skoðun á því hve sanngjarnt þetta kerfi er en hér hefur myndast sátt um að hafa lagalega umgjörð um erfðamál sem allir Íslendingar þurfa að gangast undir. Nú hefur verið upplýst að eigendur eins stærsta sjávarútvegsfyrirtækis landsins hafa ákveðið að færa eignarhlut sinn í fyrirtækinu til afkomenda sinna. Það er gert fyrir opnum tjöldum og öllum reglum fylgt þannig að ríkiserfinginn fái nú örugglega sinn hlut, sem hann mun líka fá næst og svo aftur koll af kolli eins og áður var rakið. Sann- gjarnt? Já, um það má deila en þeir sem hafa skilað miklu ævi- verki og farnast vel skila meiru frá sér til næstu kynslóða. Sumir geta glaðst yfir því að skuldir erfast ekki. Eins og skýrt hefur komið fram þá er verið að færa hluti í atvinnu- fyrirtæki, með öllum réttindum og skyldum, milli kynslóða. Aðgerðin nær eingöngu til hlutabréfa Sam- herja. Aflamarkskerfið hefur ekk- ert með þetta fyrirkomulag að gera, fyrirtækið sem hér um ræðir hefur þar réttindi og skyldur eins og á svo mörgum öðrum sviðum og mun uppfylla þau áfram. Fyrir þau veiðiréttindi sem fyrirtækið hefur aðgang að verður að greiða veiði- leyfagjald, rétt eins og á við um aðra skatta sem þarf að greiða af starfseminni. Það sem var greitt áður, verður greitt áfram, óháð eignarhaldi. Eina breytingin er að ríkissjóður mun fá mikla fjármuni til sín vegna fyrirframgreidds arfs. Þessi umræða í kjölfar kyn- slóðaskipta Samherja minnir hins vegar á hve umræðan um sjávar- útveginn getur orðið undarleg. Í síðustu grein minni benti ég á að sjávarútvegsfyrirtækin okkar eru síður en svo stór þegar borið er saman við önnur fyrirtæki sem hafa mikil áhrif á afkomu heim- ilanna í landinu. Þegar þess er gætt er stundum undarleg hve há- vær umræðan um sjávarútveginn er. Þar vitnaði ég til Einars Bene- diktssonar úr Íslandsljóði hans og er byrjunin þar yfirskrift þessa pistils. Við eigum að vera stolt af okkar sjávarútvegi og eigum að standa saman að því að gera þar enn betur. Hættum að líta til sjávar- útvegsins með öfundaraugum og gleðjumst yfir farsæld hans og styrk enda mikilvægt fyrir hag allrar þjóðarinnar að sjávarútvegs- fyrirtækin séu vel rekin og haldi áfram að þróast. Hafið þekur ríflega sjö tíundu hluta jarðarinnar og flestar þjóðir sem búa við haf reka sinn sjávar- útveg á ófullkominn og ósjálfbær- an hátt. Ofveiði, mengun og sóun er oft fylgifiskur þeirra stefnu en hér á landi höfum við forskrift sem getur gagnast vel öðrum þjóðum. Við höfum því öfundsverð tækifæri til þess að stefna út á við með okk- ar fiskveiðistjórnunarkerfi og okk- ar reynslu af því að reka sjávar- útveg með hagkvæmum hætti. Það er nægt pláss fyrir alla og þeir sem kvarta undan því að komast ekki í útgerð í hinum stóra heimi geta það. Öllum þeim sem hingað til hafa viljað breyta einhverju gefst tækifæri núna til að breyta heiminum. Hver er með? Þjóð með eymd í arf Eftir Svan Guðmundsson » Við eigum að vera stolt af okkar sjávar- útvegi. Hættum að líta til hans með öfundar- augum og gleðjumt yfir færsæld hans og styrk. Svanur Guðmundsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og framkvæmdastjóri Bláa hagkerf- isins. svanur@arcticeconomy.com Þó að ein kona geti eignast eitt barn á 9 mánuðum geta 9 kon- ur ekki eignast eitt barn á einum mánuði. Svona virkar raun- veruleikinn ekki. Öll þróun tekur sinn tíma, sama hversu mikla orku við setjum í þróunina. Þróun bóluefnis fyrir kórónuvírus er vandasamt verkefni. Slíkt bóluefni hefur aldrei verið þróað fyrir þessa tegund vírusa og óvíst er hvort það takist frekar en fyrir HIV-vírusinn. Ef það tekst mun þróunin alltaf taka langan tíma, enda er að mörgu að huga þegar heilbrigt fólk er „sýkt“ með bólu- efni. Bæði þarf að tryggja að lækningin sé ekki hættulegri en sjúkdómurinn og verndin sem bólusetningin veitir sé nægjanleg til að áhættan borgi sig. Óhætt er að segja að fyrstu væntingar yf- irvalda um skjóta úrlausn á kór- ónufaraldrinum fyrir lok maí hafi verið óskhyggja. Nú sjá flestir að langt er í bóluefni og gefur já- kvæðasta framtíðarsýn Lyfjastofn- unar Evrópu til kynna að ár sé í slíkt, ef það þá yfir höfuð finnst. Skaðinn af öfgafullum aðgerðum gegn kór- ónuveikinni er því margfaldur miðað við það sem menn héldu þegar þær hófust. Þótt útlitið virðist svart er ljós í myrkr- inu. Í byrjun apríl sýndu mælingar De- code að 1% lands- manna væri með virk smit. Varfærið mætti því áætla að um 2-5% Íslendinga hafi smitast fram að þessu. Sjálfur hefur sóttvarnalæknir sagt að allt að 5% kunni að hafa smitast. Ef svo er, þá er dánartíðni kór- ónuveikinnar orðin það lág að hún er sambærileg og fyrir flensu. Þessu ber saman við svæði erlend- is þar sem mótefnaprófanir erlend- is hafa sýnt hvað lægsta dánar- tíðni. Á sumum svæðum erlendis hafa mótefnamælingar hins vegar sýnt nokkuð hærri dánartíðni vegna staðbundinna aðstæðna, en þær aðstæður eru greinilega ekki á Íslandi. Þetta eru afar góðar fréttir því engin ástæða er til að bíða í von og óvon eftir bóluefni fyrir svo skaðlítinn sjúkdóm. Lág dánartíðni er ekki það eina sem svipar með kórónuveiki og flensu. Vísbendingar eru þegar komnar fram um að árstíðasveiflur séu í kórónusmitum líkt og þekkt er fyrir flensu. Á sama tíma og hægt hefur á smitum á norðurhveli jarðar hefur orðið stökk í smitum í nokkrum löndum á suðurhveli (Síle, Argentínu og Suður-Afríku) samhliða því að vetur hefur gengið í garð. Önnur mikilvæg kórónuveiki- uppgötvun er að við ofursmits- viðburði, sem verða einkum þegar kalt er úti og mikið af smitandi svifdropum er í inniloftinu, hefur það sýnt sig að bæði smithættan er mun meiri og að fólk sýkist mun alvarlegar. Sama er þekkt fyrir flensu, þar sem komið hefur í ljós að smit slíkra ördropa svifagna veldur alvarlegri sýkingu. (https:// www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/ PMC3372341/) Loftraki er einn stærsti áhrifa- þáttur í skaðsemi flensu á veturna. Kalt vetrarloft verður mjög þurrt þegar það er hitað upp innandyra. Í þurru lofti endast vírusar lengur og smitdropaagnir verða minni þannig að þær svífa lengur í loft- inu og smita því lengur. Einnig er varnarkerfi líkamans gegn smiti mun veikara í þurru lofti og smit minni dropa berast dýpra í önd- unarfærin og virðast hættulegri. Hlýtt sumarloft ber margfalt meiri raka en kalt vetrarloft. Það lokar þannig á smitleiðir og eflir nátt- úrulegar varnir líkamans. Einnig hjálpar til að með hækkandi sól batnar D-vítamínstaða líkamans, sem hefur sýnt sig að gagnast gegn kórónuveikinni. Þessi liðs- auki gerir sumarið að besta tím- anum til að eiga við þessa óværu. Í ljósi þess gríðarlega skaða sem öll hindrun á komu erlendra ferða- manna mun hafa á möguleika Ís- lendinga til að takast á við þá erf- iðu tíma sem fram undan eru er afar mikilvægt að gengið sé sem vasklegast fram við að opna landið sem fyrst meðan sumarið er með okkur í liði. Þó að einhver við- bótarsmit berist hingað með sum- um þeirra eru sterkar líkur á að slíkt verði ekki til vandræða, því ef það er rétt hjá sóttvarnalækni að allt að 5% Íslendinga hafi smitast fram að þessu þýðir það að 90% allra smita á Íslandi urðu til og hurfu af sjálfu sér án þess að nokkur tæki eftir. Ef smit verða mildari með hækkandi sól mun þetta hlutfall skaðlausra smita hækka enn meira á næstu mán- uðum. Þær rándýru prófanir sem yfir- völd ætla að gera á hverjum ferða- manni eru vanhugsaðar. Í fyrsta lagi geta slíkar prófanir aldrei tryggt að smit berist ekki hingað til lands. Enn verra er þó að með því að halda vírussmiti niðri yfir sumartímann meðan auðvelt er að eiga við sjúkdóminn er verið að flytja vandann yfir á næsta haust þegar smithætta vex og smit verða lífshættulegri. Aukið ónæmi yfir sumarið mun draga úr hættunni sem skapast næsta haust. Þegar yfirvöld tilkynntu fyrst opnun landsins vakti það strax at- hygli í fjölmiðlum um allan heim og erlendar kannanir sýndu strax að fjöldi fólks myndi koma hingað ef því stæði það til boða. Opnun landsins gefur því efnahagslífi raunverulega von. Önnur ríki eins og Grikkland fylgdu í kjölfarið og sögðust ætla að opna líka hjá sér. Samkeppnin verður því grimm og því getur of mikið hik nú skemmt ávinninginn. Farsælast er því að opna landið alveg án allra óþarfra og íþyngj- andi takmarkana. Sumarið er besti tíminn til að undirbúa okkur undir harðan vetur. Eftir Jóhannes Loftsson Jóhannes Loftsson » Best er að eiga við kórónuvírusinn á sumrin og því ætti opnun landsins í sumar að vera án íþyngjandi takmarkana. Höfundur er verkfræðingur. jloftsson@gmail.com Sumarið er tíminn Móttaka að- sendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfu- daga. Þeir sem vilja senda Morgun- blaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgun- blaðsins og höfunda. Morgun- blaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felli- gluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf not- andinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.