Morgunblaðið - 22.05.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.05.2020, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 Menn gráta nú sölt- um tárum yfir hruni ferðaþjónustunnar. Það hlýtur óhjákvæmi- lega að valda miklum hjartsláttartruflunum þegar græðgisvæðing- unni skyndilega lýkur. Tveggja lítra kók- flaska í sjoppu við Gull- foss seld á 1.330 kr. Kjötsúpudiskur í vega- sjoppu á Snæfellsnesi fyrir tveimur árum kostaði 3.700 kr. með þremur litlum kjötbitum og hálfri kartöflu. Bændagisting, tvö rúm í herbergi, 20.000 kr. nóttin eða 30-40.000 kr. tveggja manna herbergi nóttin á tveggja stjörnu hóteli. Morgun- verður extra. Við skulum ekki eyða mörgum orðum í Bláa lónið, verðlag- ið þar hefur í gegnum tíðina verið svo hátt uppi í skýjunum að ekki lík- ist það neinu öðru sem við venjulegt fólk höfum augum litið. Og verðskrá- in höfð í evrum. Lítur betur út þannig. Svo er bara grátið. Ferðamannastraumurinn byrjaði að minnka snemma á síðasta ári og þó að gjaldþrot WOW hafi ekki verið stór orsakavaldur í því samhengi hafði það samt áhrif, hugsanlega meiri en margur vill viðurkenna. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Síðast- liðið haust var ferðamannastraum- urinn kominn niður í 40% og hélt áfram að minnka. Ekki var vírusinn þá kominn til landsins! Hafa menn ekkert velt þessu fyrir sér? Af hverju eru ekki sett lög um há- marksálagningarprósentu ofan á verð frá birgi? Er það ekki aðal- orsakavaldur hruns ferðamannaiðn- aðarins á Íslandi; siðlaus græðgin, og svo hinn slæmi og skipulagslausi aðbúnaður sem að ferðamönnum snýr á Íslandi þar sem menn oft á tíðum ösla forina upp á kálfa á ferð sinni um landið. Netið er fljótt að flytja alla þessa nei- kvæðu hluti út um heiminn þveran og endilangan. Það á að umgangast ferðamann- inn með virðingu og sanngirni ef ekki á illa að fara. Við viljum nefnilega að hann komi aftur og stoppi lengur í hvert skipti og yfirgefi landið sáttur, með þakklæti í huga. Orð- sporið er svo mikil- vægt. En það hefur víst ekki verið inni í myndinni. Menn eru nokkuð sammála um að ferðaþjónustan verði aldrei sú sama, hugsanlega 40% af því sem áður var þegar best lætur og þá ekki fyrr en eftir eitt til tvö ár. Verður heimurinn sá sami eftir vírusinn? Ekki segja menn. Það er heldur ekki létt að sjá það fyrir hverjar helstu breytingarnar verða eða hve miklar. Evrópa er okkar heimshluti og efnahagslægð er nokkuð fyrirsjáanleg þar, hve mikil er ekki gott að segja. Heim- urinn verður fátækari eftir hörm- ungarnar. Það tekur sinn tíma að koma hjólunum aftur í gang og þau koma ekki til með að snúast jafn- hratt og áður, það er nokkuð víst. Vandamálin eru einnig ærin á Ís- landi; túristinn horfinn, atvinnuleys- ið í hæstu hæðum og gjaldmiðill þjóðarinnar stöðugt að veikjast, sem þýðir að kjarasamningarnir síðustu eru allir brostnir. Enn og aftur eru það fiskveiðarnar sem halda í okkur lífinu. Hvernig dettur íslenskum stjórn- málamönnum í hug að bjóða þjóðinni upp á þennan handónýta gjaldmiðil, sem er aðeins til heimabrúks? Hvergi erlendis á byggðu bóli er hann tekinn gildur, er algerlega ósýnilegur nema innan landamær- anna. Svo lítilvægur og viðkvæmur að seðlabankastjóri er pungsveittur við að reyna halda krónunni stöðugri með inngripum sem duga ekki betur en svo að krónan íslenska hefur sigið eða hrapað um 20% síðasta ársfjórð- ung. Því í ósköpunum hefur krónan ekki fyrir löngu verið tengd við er- lendan sterkan gjaldmiðil? Óskilj- anlegt. Það er alveg útilokað að skilja hvers vegna menn halda svona fast í vesalings krónuna, svo kemur þetta hrun hennar alltaf verst niður á skuldsettum heimilum. Á tímum sem þessum, þegar allt ber svo skjótt að, er erfitt fyrir eina ríkisstjórn að gera allt rétt og það besta í stöðunni. Auðvitað á hún eftir að gera sín mistök, engin spurning. Samt er það svo í gegnum tíðina að heimilin verða alltaf harðast úti, sama hvaða fár geisar, fjárnámin hlaðast upp hjá fógeta, alltaf sama sagan. Þess vegna verður að skora á ríkisstjórnina að koma strax með að- gerðir til verndar heimilunum og það með beinum stuðningi. Að setja fé í fyrirtæki sem er búið að missa afkomu sína um ókomna framtíð er að brenna peningum. Auðvitað veltur afkoma Íslend- inga mikið á því hvernig Evrópa fer út úr öllum þessum hörmungum. Við skulum bara vona að ríkisstjórn Ís- lands sé í fyrsta skiptið með hjartað á réttum stað hvað varðar hinar fjöl- mörgu skuldsettu barnafjölskyldur á Íslandi. Höldum í vonina Eftir Jóhann L. Helgason » Auðvitað veltur af- koma Íslendinga mikið á því hvernig Evr- ópa fer út úr öllum þess- um hörmungum. Við skulum bara vona að ríkisstjórn Íslands sé í fyrsta skiptið með hjart- að á réttum stað. Jóhann L. Helgason Höfundur er húsasmíðameistari. Við sem byggjum þetta land okkar spáum líklega ekki oft í það hversu gott landið okkar er og erum oft upptekin af því að tala mikið um rigninguna og köld veður þó svo að síðastliðið sumar hafi verið nokkuð mikið öðruvísi en mörg síðastliðin ár með sól og hita, hvað svo sem það kann að boða okkur, en það var ekki ætlunin að ræða þau mál nú. Ég held að dags daglega spáum við ákaflega lítið í það hversu frá- bært land við eigum og kannski eiga einhverjir erfitt með að koma auga á það en veltum fyrir okkur nokkrum staðreyndum. Hvar í Evrópu getum við drukkið vatnið beint úr kran- anum? Líklega mjög óvíða, hérna hjá okkur getum við alls staðar feng- ið okkur vatn að drekka beint úr krönum heimilanna með einstökum tímabundnum undantekningum. Getum við drukkið vatn úr lækjum Suður-Evrópu, hugsanlega efst í hinum fögru löndum Alpafjallanna? Á landinu okkar, hvar sem við förum um fjöll eða dali landsins, getum við alls staðar óhrædd fengið okkur að drekka úr hreinum fjallalækjum, nánast við hvert fótmál, og það ekk- ert flöskuvatn heldur býðst okkur ís- kalt og hreint fyrsta flokks drykkj- arvatn – við leggjumst jafnvel beint á magann eða drekkum það úr hendi okkar. Þetta getum við gert nánast við hvert fótmál á landinu okkar, blá- kaldur raunveruleikinn, en við meg- um ekki gleyma okkur yfir kalda vatninu okkar. Víðast suður um alla Evrópu þarf að nota olíu eða kol með tilheyrandi mengun og kostnaði til upphitunar alls þess rýmis og vatns sem hita þarf upp. Á landinu okkar eru margir áratugir og fer líklega bráðum að nálg- ast hundrað árin síðan borgin okkar, Reykja- vík, fór að nota hita- veitu sem lögð var í flest hús borgarinnar með miklum sparnaði fyrir íbúa og snemma á síðustu öld voru byggðar sundlaugar fyrir íbúana, allt hitað með náttúru- legu heitu vatni. Ekki má gleyma því að nánast sama hvar umhverfis land- ið, jafnt á þéttbýlisstöðum og nokk- uð víða úti á víðavangi, eru sund- laugar. Við framleiðum mikið af rafmagni með heita vatninu og má geta þess að sú framleiðsla hefur aukist nokkuð í seinni tíð og allt er þetta nánast alveg mengunarlaus framleiðsla meðan nágrannalöndin þurfa mestmegnis að brenna olíu eða kolum við sína raforkuframleiðslu og þá með mikilli mengun, sem setur, að mati virtra vísindamanna, plánetu okkar í mikla hættu. Við eigum eftir að telja upp marga góða kosti landsins okkar, svo sem að það að vera á eyju hér langt frá stærstu landbúnaðarsvæðum ver- aldarinnar veitir okkur mikil hlunn- indi hvað varðar landbúnað í land- inu. Hér erum við laus við margar landlægar pestir sem hrjá land- búnað í nágrannaríkjum okkar og þar með spörum við lyfjakaup í bú- stofna okkar með auknu heilbrigði fyrir búfé okkar og ekki bara fyrir búféð heldur þar af leiðandi heil- brigðari og hollari fæðu fyrir fólkið í landinu. Ég á margt eftir til að fjalla um og benda okkur á, en líklega er, þegar allt kemur til alls, landið okkar og fólkið ekki bara gott heldur frábært! Ég sem þessar línur rita hef verið bundinn við hjólastól í rétt um 12 ár og þarf ekki að skrifa bara um landið okkar góða heldur get ég bætt því við hvað fólkið er frábært í landinu því í allan þennan tíma, 12 ár, hef ég ekki í eitt einasta skipti fundið fyrir kuldalegu eða fráhrindandi viðmóti heldur alltaf fengið hlýlegt og nota- legt viðmót hjá öllum sem ég hef mætt á lífsbraut minni og allir til- búnir að sýna gott viðmót og bjóða fram hjálp sína. Meira að segja eitt sinn er ég var að fara í lyftu kom lítill drengur til mín sem sá að ég var að fara í lyftuna, hann bauð fram hjálp sína. Ég hafði gaman af stráksa og bað hann endilega að hjálpa mér, ég væri svo mikill klaufi að ýta á takka. Dengurinn var fljótur að bregðast við og bjarga mér og spurði mig á hvaða hæð ég vildi fara og var sá stutti fljótur að ýta á réttu takkana, drengurinn var ákaflega stoltur með sig að hafa hjálpað manninum í hjólastólnum og sá ég á eftir honum þar sem hann hljóp glaður til for- eldra sinna eftir þetta afrek sítt! Hjálpsemin var þessum unga dreng í blóð borin, við skulum því vera stolt af því að tilheyra þessu góða fólki og landinu okkar og geta með gleði kallað okkur Íslendinga. Ísland – landið okkar góða Eftir Hjálmar Magnússon »Dags daglega spáum við lítið í það hversu frábært land við eigum og kannski eiga ein- hverjir erfitt með að koma auga á það. Hjálmar Magnússon Höfundur er fv. framkvæmdastjóri. Þegar við fengum ís- lensku krónuna fyrir 100 árum hafði hún sama verðgildi og sú danska. Ein dönsk var ein íslensk. Í dag er staðan sú að ein dönsk króna er 21 íslensk. Ís- lenska krónan hefur þannig fallið gagnvart þeirri dönsku um 95%. En þetta er ekki öll sagan. Öðru nær. Tvö núll voru sniðin af íslensku krónunni 1981, hún uppfærð 100-falt án þess að á bak við það byggju nein ný eða aukin verðmæti. Þetta var í reynd innihaldslaus uppfærsla eða andlitslyfting. Nánast fals. Það sanna og rétta er því að 1920 var ein dönsk króna ein íslensk, en nú, árið 2020, er ein dönsk króna 2.100 íslenskar. Íslenska krónan hef- ur í reynd fallið um 99,95%! Með þessum sama rétta útreikn- ingi er ein evra nú 16.000 krónur og einn bandaríkjadalur 14.500 krónur. Án þessarar „fölsunar“ kostaði lítri af mjólk 20.000 krónur, eitt Myllu- brauð 50.000, meðalleiga á íbúð væri 25.000.000 á mánuði og ódýrustu bíl- arnir væru á 250.000.000. Gott ein- býlishús væri á 20.000.000.000 (20 milljarða). Margir sem ekki hafa kynnt sér málið kunna að halda að þetta sé svæsin lygasaga, ljótur og ósannur óhróður um blessaða íslensku krón- una, en því miður er svo ekki. Þetta er allt satt og rétt! Hví er íslenska krónan svona ótrúlega veikburða, kunna menn að spyrja. Skýringin er einföld. Ís- lenska hagkerfið er örsmátt í sam- anburði við þau hagkerfi sem á bak við aðra gjaldmiðla standa. Smá- vægilegar breytingar geta feykt henni til, upp og niður, en þó allra mest og til lengdar alltaf niður. Stundum hef ég gert þá samlík- ingu að íslenska krónan sé eins og 30 tonna fiskibátur í ölduróti efnahags- legra úthafa en evran til að mynda eins og 50.000 tonna hafskip. Við getum líka velt upp þeirri spurningu hvort Björgvinjarsvæðið í Noregi, Árósasvæðið í Danmörku eða Gautaborgarsvæðið í Svíþjóð gæti haldið úti eigin mynt. Öll þessi byggðasvæði eru svipuð Íslandi að fólksfjölda og efnahagslegu um- fangi. Legði einhver til sjálfstæða mynt fyrir eitthvert þessara svæða væri hann ekki aðeins talinn geðveikur, hann væri það! Hví í ósköpunum erum við þá enn með krónuna? Eitt er það að við elskum og stöndum á bak við allt sem íslenskt er. Við eigum líka til málshátt á okkar tungu sem er nokkuð sérstakur: „Svo má illu venj- ast að gott þyki.“ Ég kannast ekki við sama málshátt á þeim erlendu tungumálum sem ég þekki. Hann segir nokkuð um okkur, eðlisfar okkar og blóðþráa, sem reyndar hefur haldið íslensku mann- lífi gangandi í harðræði undangeng- inna alda. Þrái og skynsemi fara þó sjaldn- ast saman. Við hljótum smám saman að læra þrennt: 1. Krónan er bara mælikvarði á fjármuni; tekjur og gjöld, eignir og skuldir, sem er kenndur við Ísland til aðgreiningar frá öðrum krónu- gjaldmiðlum (í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Tékklandi). Að öðru leyti er ekkert íslenskt við hana. Það má líkja krónu við metra, pund eða kíló. Þetta er bara mælieining. 2. Þessi mælieining, eða veikburða grunnur hennar, hefur valdið lands- mönnum meiri vanlíðan, vandræð- um, óvissu og tjóni en nokkuð annað; eldgos, fár og plágur meðtalin. Síð- asta stóra áfallið var hrunið, sem nísti í gegnum merg og bein landsmanna. 3. Stjórnvöld hafa endurtekið notað eða öllu heldur misnotað krónuna til að færa verðmæti og fjármuni frá launþegum og al- menningi yfir á útflutn- ingsatvinnuvegina, einkum sjávarútveg- inn, en eðli þessara til- færslna er í raun eigna- upptaka; nauðungartilfærsla á tekjum og eignum milli þjóðfélags- hópa. Af hverju er þetta rakið allt hér? Akkúrat þessa dagana er enn ein eignaupptakan og fjármuna- tilfærslan að eiga sér stað, nú í boði Seðlabanka. Um áramótin var einn bandaríkja- dalur 121 króna. Nú er hann kominn í 147. Hann hefur hækkað/krónan fallið um 21%. Svipað gildir um evru. Hún var 135 krónur og er komin í 160. Á síðustu mánuðum hefur krónan þannig fallið um 20%, sem mun hækka verðlag á Íslandi um 10% að meðaltali. Margar verðhækkanir áttu sér stað nú í seinni hluta apríl eða 1. maí. 5%, 7%, 10% hækkanir hafa verið í gangi, segja kaupmenn mér, og þetta er langt frá því að vera búið. Fyrr en varir verður allur innfluttur varningur kominn upp um 15-20%. Framleiðslutakmarkanir og flutn- ingsvandi gætu aukið kostnað enn frekar. Þessi þróun mun svo aftur hækka vísitölur og tengdar skuldbindingar og fara - beint eða óbeint - inn í al- mennan kostnað og verðlag. Lífs- kjarasamningurinn mun riðlast, gæti fallið. Hrein óheillaþróun! Ber Seðlabanki ábyrgð? Hlutverk Seðlabanka er, skv. nýj- um lögum, grein 1: „Markmið Seðla- bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármála- starfsemi.“ Auðvitað ber hann þá ábyrgð. Og hvernig hefur Seðlabanki brugðist? Seðlabanki hefur að mati undirritaðs brugðist heiftarlega með því að láta krónuna falla með þessum stórfellda hætti þegar stöðugleiki og öryggi skipta meira máli en oftast áður vegna kórónuveirunnar. Hvað gat Seðlabanki gert? Er krónan ekki á frjálsum markaði? Seðlabanki býr yfir öflugasta gjald- eyrisvarasjóði allra tíma, þökk sé góðæri síðustu ára og ferðaþjónustu. Síðast þegar ég vissi nam hann tæp- lega 1.000 milljörðum króna. Seðlabanki hefði átt að beita þess- um mikla gjaldeyrisstyrk sínum og öðrum tiltækum vopnum til að styðja við krónuna og styrkja hana, m.a. með öflugu inngripi í gjaldeyr- ismarkaðinn og markvissum kaup- um á krónunni. Þetta vanrækti Seðlabanki, þess vegna er rétt að þær verðhækkanir sem dynja á okkur séu - alla vega að miklu leyti – skrifaðar á hans reikn- ing. Ekki góð byrjun hjá nýjum seðlabankastjóra. Eftir Ole Anton Bieltvedt » 5%, 7%, 10% hækk- anir hafa verið í gangi, og þetta er langt frá því að vera búið. Fyrr en varir verður allur inn- fluttur varningur kom- inn upp um 15-20%. Ole Anton Bieltvedt Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu- maður og stjórnmálarýnir. Þokkalegt einbýlishús á fimmtán milljarða

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.