Morgunblaðið - 22.05.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.05.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Audi A3 Sportback e-Tron Hybrid. Modelár 2018. Ek. 28 þús km. Sport typa með sport stólum og Pa- norama glerþaki. Bensín / Rafmagn. Audi Sound System ofl. Á gömlu gengi aðeins kr. 3.980.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Raðauglýsingar Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Athugun Skipulagsstofnunar Urðunarstaður í Stekkjarvík, aukin urðun, landmótun og rekstur brennsluofns Norðurá bs. hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um urðunarstaðinn í Stekkjavík, aukna urðun, landmótun og rekstur brennsluofns, Blönduósbæ. Kynning á frummatsskýrslu:Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 22. maí.— 7. júlí á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofu Blönduósbæjar, Þjóðarbókhlöðunni og Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is. Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. júlí 2020 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is. Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíði, útskurður, tálgun, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Leiðb. úthlutar tíma en aðeins 6 geta verið í einu. Hafið samband í síma 411-2600. Spritta sig þegar komið er inn og þegar farið er út. Bústaðakirkja Ekkert félagsstarf verður á þessu vori í ljósi að- stæðna, við munum ekki taka neina sénsa. Ekki verður messað á upp- stigningadag í Bústaðakirkju en helgistund verður streymt á heima- síðu og facebooksíðu kirkjunnar. Við sjáumst hress í haust, vonandi eigið þið gott sumar. Kærleikskveðja, Hólmfríður djákni Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Höfum opnað smá rifu á félagsmiðstöðina. Ákveðnar takmarkanir eru í gildi. Misjafnt eftir svæðum hve margir komast inn í einu. Áfram þarf að huga vel að handþvotti og sprittun bæði þegar komið er inn og þegar farið er út. Í suma viðburði þarf að skrá sig í síma 411-2790. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Hlökkum til að sjá þig. Korpúlfar Opið í Borgum 8:00 til 15:30 og kaffi á könnunni. Virðum 20 manna regluna og 2 metra. Förum rólega af stað og munum kynna fljótlega sumarstarfið. Gönguhópar leggja af stað frá Borgum og Grafarvogskirkju kl. 10 mánudaga. En miðvikudaga og föstudaga kl. 10 frá Borgum, boðið verður upp á nýjar gönguleiðir í sumar. Spritta þarf hendur þegar komið er inn og út í Borgir. Allir velkomnir. Seltjarnarnes Kaffispjall í krók kl. 10.30. Leikfimi með Evu. Ath. bre- yttur tími. Fyrir íbúa utan Skólabrautar kl. 13.00 og fyrir íbúa Skólabraut ar kl. 14.00. Nk. mánudag förum við yfir í hefðbundna dagskrá með leir og gleri kl. 9. og 13. Billjard í Selinu kl. 10.00 og kaffikrókurinn kl. 11.00. Jóga fyrir alla í salnum á Skólabraut kl. 11. og nú opnum við einnig handavinnuna fyrir alla. Vatnsleikf. kl. 18. Vantar þig fagmann? FINNA.is ✝ AðalsteinnVestmann fæddist 12. ágúst 1932 á Akureyri. Hann lést 9. maí 2020 á Sjúkrahús- inu á Akureyri. Foreldrar Aðal- steins voru Þor- valdur Vestmann Jónsson, banka- gjaldkeri á Akur- eyri, f. 1896 í Kan- ada, d. 1940, og Margrét Aðalsteinsdóttir Vestmann hús- freyja, f. 1898 á Skeiði í Svarf- aðardal, d. 1982. Systkini Aðalsteins: Þórlaug Vestmann, f. 1920, d. 1993, Elsa Aðalheiður Vestmann, f. 1928, d. 2008, Jóna Hlíf Vestmann, f. 1936, d. 2012 og Friðrik Rúdý Vestmann, f. 1939. 14. september 1960 giftist Aðalsteinn eftirlifandi eigin- konu sinni, Birnu S. Ingólfs- dóttur Vestmann, f. 1938 á Grímsstöðum á Fjöllum. For- eldar Birnu voru Ingólfur Krist- jánsson, f. 1889, d. 1954 og Katr- ín María Magnúsdóttir, f. 1895, d. 1978. Börn Aðalsteins og Birnu eru: Inga Katrín Vestmann, f. 1958, m. Kristján Þ. Kristinsson, börn þeirra: Bjarki Þór Albertsson Vestmann, Vera Kristín Krist- jánsdóttir (m. Kári Jóhannes- son, börn þeirra eru Kristján Logi, Róbert Bragi og Karen Emilía), Kristinn Þráinn Kristjánsson (m. Þórey Kara), Þor- valdur Vestmann, f. 1963, m. Þórdís Þórólfsdóttir, börn hennar eru Eva Dís (barn Daníel Snær) og Bjarki Þór (barn Aríana Ísis), Margrét Vestmann, f. 1967, barnsfaðir Aðalbjörn R. Svanlaugsson, börn þeirra: Aðalsteinn Vestmann, Anita Vestmann (m. Viðar Einarsson, barn þeirra Amanda Vestmann), Almar Vestmann og Axel Vest- mann, Vera Vestmann, f. 1976, d. 1978 og Valur Vestmann, f. 1978, m. Vera W. Vestmann, börn þeirra: Símon og Jóhann- es. Aðalsteinn lauk námi frá Handíða- og myndlistaskóla Ís- lands 1951 og var einnig um tíma í Finnlandi að kynna sér myndlist. Hann starfaði sem myndmenntakennari við Barna- skóla Akureyrar í fjöldamörg ár og sem húsamálari, auk þess sem hann sinnti sinni eigin myndlist og hélt einkasýningar, sem og tók þátt í samsýningum. Útförin fer fram í kyrrþey 22. maí 2020 frá Akureyrarkirkju. „Nei halló, vinskapur!“ Svona heilsaði pabbi mér þessi síðustu ár þegar hann var orðinn einn heima, mamma komin á dvalarheimili og ég datt inn í spjall: „Viltu kaffi? Það er til nóg af brauði,“ en hann passaði að eiga alltaf birgðir af alls konar bakkelsi handa gestum. „Verst hvað heyrnin er orðin lé- leg,“ en það var í lagi því mikið blaður er óþarft, það var svo nota- legt að sitja í þögn og njóta nær- veru hans. Alli Vestmann var kennari ára- tugum saman, hann kenndi teikn- ingu frá því um tvítugt og þangað til hann var orðinn sjötugur, og það ekki á neinum annars flokks stað, nei hann var við þá virðulegu menntastofnun Barnaskóla Ís- lands. Allir krakkar í bænum virt- ust þekkja hann, því ótrúlega mörg heilsuðu honum á förnum vegi, sem gladdi hann greinilega, því honum þótti vænt um þau öll. Það var líka þannig að öll börn sem komu í heimsókn fengu blað og blýant til að teikna og lita, sum fengu jafnvel striga og akrýlliti til þess að búa til málverk handa mömmu. Hann var líka málarameistari, ég lærði fagið hjá honum og við unnum saman í fjölda ára, ég er þakklátur fyrir þessi ár með pabba og brosi innra með mér yfir ýmsu sem rifjast upp nú um stundir. Pabbi var dagfarsprúður maður sem trúði á það góða í öllum og aldrei heyrði ég hann tala illa um nokkra manneskju eða hallmæla neinum. Hann missti föður sinn þegar hann var átta ára og ég held að hann hafi saknað hans alla tíð þótt það hafi ekki verið rætt mikið. Þegar æskuárin bar á góma kom fram að þau hefðu oft verið erfið og róðurinn þungur hjá ömmu, ekkju með fimm börn árið 1940. En fyrst og fremst var hann samt listamaður af lífi og sál sem vissi ekkert betra en að sitja og mála myndirnar sem hafa glatt svo marga og hann undi sér við fram á síðasta dag, en handstyrk og sköp- unargleðinni hélt hann alla tíð sem betur fer. Ég tók eftir því að hann hætti að nota vatnsliti þessi síðustu ár, þegar hann hafði loksins tíma til að sinna málverkinu eða sulla eins og hann kallaði það, því vatnsliti hafði hann notað þegar tími var knapp- ur og hann gat klárað vatnslita- mynd á mun skemmri tíma en með annarri tækni, nú þurfti þess ekki. Við systkinin eigum eftir að sakna þín en munum sennilega öll að þegar þér þótti komið nóg í bili af spjalli þá sagðir þú: „Jæja,“ og fórst inn á vinnustofu til að halda áfram að sulla, því allt hefur sinn tíma, það er gott að tala um daginn og veginn en málverkið togar og þar er endalaus uppspretta ánægju. Nú er þetta sem sagt orðið gott og tími til að halda áfram. Fyrir hönd okkar systkinanna segi ég: Takk fyrir okkur, vin- skapur. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varstu ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða megi algóður Guð þína sálu nú geyma. Gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Þorvaldur Vestmann (Brói). Elsku afi. Stórt skarð er höggvið í veröldina eftir að þú kvaddir svona skyndilega. Að þú sért farinn er óskaplega óraunveruleg tilfinn- ing og erfitt að meðtaka, en það er samt sem áður nóg að líta í kring- um sig og skoða allan þann fjölda af myndum og teikningum sem þú skilur eftir þig og hafa þá alltaf ákveðinn hluta af þér nálægan. Stærsta og sterkasta minningin frá því ég man eftir mér er afi inni í vinnuherbergi með penslana á lofti, málningarlykt og nýjar og nýjar myndir sem bættust við í safnið hver á fætur annarri. Það var sama hvar þú varst í ferlinu; alltaf þegar eitthvert okk- ar barnabarnanna kom varstu snöggur að færa allt til og lofa okk- ur að teikna við vinnuborðið þitt. Það gleður mig að hugsa til þess að Amanda mín hafi verið byrjuð að fá að koma inn í vinnuherbergið hans langafa og leika sér með blöð og liti. Takk fyrir allt, afi minn. Við sjáumst í sumarlandinu. Þín Aníta. Aðalsteinn Vestmann Í dag kveð ég elsku Stínu mína sem ég hef þekkt frá því ég var tólf ára gömul. Við kynntumst er hún flutti aðeins tuttugu og tveggja ára gömul ásamt Tryggva sínum og tveimur eldri börnum, þeim Helgu og Magnúsi, til Reyðarfjarðar. Þá var reyndar stutt í fæðingu Þór- halls, sem fæddist á Egilsstöðum stuttu eftir komu þeirra austur. Unga fólkið vantaði einhvern til að gæta barnanna og varð það úr að við kynntumst og urðum strax perluvinkonur. Stína var mikil hannyrðakona og í fyrsta sinn sem ég kom til hennar að gæta barnanna mætti ég með prjónana mína með mér. Henni fannst mik- ið til þess koma að ég tólf ára gömul væri farin að prjóna. Upp frá þessu eyddum við mörgum stundum saman við prjónaskap og margt annað skemmtilegt. Ég lærði mikið af henni í gegnum tíð- Kristín Ólöf Björgvinsdóttir ✝ Kristín ÓlöfBjörgvins- dóttir fæddist 5. nóvember 1938. Hún lést 5. maí 2020. Útför Kristínar fór fram 19. maí 2020. ina. Hún lagði alltaf mikla áherslu á vandvirkni í prjóna- skapnum. Mér er mjög minnisstætt þegar hún sagði við mig: Anna mín, þú verður að rekja upp því annars munt þú alltaf sjá þessa mis- fellu. Minningarnar eru margar og góð- ar. Við tókum sam- an slátur í mörg ár og var þá oft glatt á hjalla. Þykir mér vænt um að hugsa til þeirra góðu samveru- stunda. Vinátta okkar hefur hald- ist í gegnum árin og alltaf verið mér mjög kær. Kallið kom skyndilega því stutt er síðan við sátum saman á sólríkum degi á svölunum og drukkum saman kaffi. Ég er þakklát fyrir þessa góðu síðustu stund okkar vinkvennanna sam- an. Sú minning mun ávallt vera mér kær. Ég veit að Tryggvi þinn hefur verið farinn að bíða eftir þér og hefur hann eflaust tekið fagnandi á móti Stínu sinni. Elsku Stína mín, takk fyrir allt. Votta börnum þínum og fjöl- skyldum þeirra innilega samúð mína. Þín vinkona, Anna Þórey Sigurðardóttir. Mig langar að reyna að minnast frænda míns Björns Emilssonar (Bía), sem ég hitt allt of sjaldan. Að vísu vissum við hvor af öðrum, hann að sinna sínu en ég til sjós og seinna meir sjúkraliði. Síðast hitti ég hann á Hrafnistu en þá yngdist hann upp við að sjá myndir af för minni til Grænlands (Quaogor- toq) til að hitta Eddu frænku. Úti á flugvelli átti ég að hafa augun með hávaxinni ljóshærðri konu sem svo reyndist móðir Björn Emilsson ✝ Björn Emilssonfæddist 15. apríl 1936. Hann lést 5. maí 2020. Útför Björns fór fram í kyrrþey 15. maí 2020. Stefáns Hrafns sem stundar hreindýra- rækt. Áður en að því kom birtist hóp- ur af fólki frá Grænlandi sem hafði unnið við sýn- ingu á grænlenskri menningu. Hópur- inn kom rakleiðis til mín og heilsaði mér með miklum virkt- um, líkt og væri ég í framboði. Þetta hélt áfram eftir að út var komið enda hálfaumur í hendinni. Að vísu talaði Edda um að ég líktist pabba hennar en það gat alveg verið hluti af ástæðunni hver svo sem hún var. Eitthvað hlýtur maðurinn að hafa skilið eftir sig svo um munaði! Ég virðist þurfa að fara út aftur – svei mér þá. Valdimar Elíasson. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningar- grein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eft- ir birtingu á útfarardegi verð- ur greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningar- greinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í minningar- greinunum. Undirskrift | Minningar- greinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í inn- sendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.