Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 26

Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 22. maí 1995 Ísland vinnur mjög öruggan sigur á Austurríki, 74:58, í fyrsta leik sínum í C-riðli Evr- ópukeppni karla í körfubolta í Sviss eftir að hafa náð 26 stiga forskoti í seinni hálfleik. Her- bert Arnarson skorar 16 stig fyrir Ísland, Guðmundur Bragason 15 og Valur Ingi- mundarson 14. 22. maí 1996 Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik sigrar Lúx- emborg, 96:63, í fyrsta leik í und- anriðli Evrópu- keppninnar í Laugardals- höllinni. Ísland var aðeins einu stigi yfir í hálf- leik. Teitur Örlygsson fer á kostum í leiknum og skorar 31 stig fyrir Ísland en Marel Guð- laugsson gerir 12. 22. maí 1997 Ísland vinnur stórsigur á Júgó- slavíu, 27:18, í þriðja leik sínum í heimsmeistarakeppni karla í handknattleik í Kumamoto í Japan. Valdimar Grímsson skorar 11 mörk fyrir íslenska liðið, sem leikur frábærlega í seinni hálfleiknum eftir jafn- ræði í þeim fyrri. Ísland er þá komið með 5 stig eftir fyrstu þrjá leikina. 22. maí 1998 Örn Ævar Hjartarson kylfingur úr GS setur vallarmet á New Course- vellinum í St. Andrews í Skotlandi þeg- ar hann leikur annan hringinn á St. Andrews Links Trophy- mótinu á aðeins 60 höggum, ellefu höggum undir pari vall- arins. Hann bætir vallarmetið um þrjú högg. Árangur hans vekur gríðarlega athygli í breskum fjölmiðlum. 22. maí 2002 Noregur og Ísland skilja jöfn, 1:1, í vináttulandsleik karla í knattspyrnu í Bodö. Jóhannes Karl Guðjónsson skorar mark Íslands beint úr aukaspyrnu af um 40 metra færi strax á 6. mínútu en Ole Gunnar Sol- skjær jafnar fyrir Norðmenn í seinni hálfleiknum. Átta leik- menn úr norskum félagsliðum tóku þátt í leiknum með ís- lenska landsliðinu en marga fastamenn vantaði. 22. maí 2016 Hrafnhildur Lúthersdóttir vinn- ur silfurverðlaun í 50 metra bringusundi á Evrópumeist- aramótinu í sundi í London og kórónar glæsilegan ár- angur sinn á mótinu. Hún hafði áður fengið silfur í 100 metra bringusundi og brons í 200 metra bringusundi á mótinu, en árangur hennar er sá besti sem Íslendingur hefur náð á Evrópumóti í sundi. Á ÞESSUM DEGI Þú vilt vinna hvern einasta leik og ef það gerist er fátt sem getur kom- ið í veg fyrir að þú lyftir bikar í lok leiktíðar og það er klárlega mark- miðið hjá FH.“ Þarf að horfa inn á við FH tefldi fram hálfgerðu atvinnu- mannaliði þegar Jónatan sneri aftur til félagsins árið 2018. „Við vorum með marga erlenda leikmenn þegar ég kom aftur. Það verður ekki þannig í sumar og það má kannski segja líka að hugs- unarhátturinn hafi aðeins breyst innan félagsins. Það spilar líka inn í að það er einfaldlega erfitt að fá nýja leikmenn, hvort sem þeir eru erlendir eða ekki, í ástandinu sem nú ríkir bæði hér sem og annars staðar í heiminum vegna kór- ónuveirufaraldursins. FH, líkt og önnur lið hér á landi, þarf þess vegna að horfa inn á við núna og reyna að búa til góða leik- menn í gegnum yngriflokkastarfið. Þetta er gott tækifæri fyrir þá til þess að sýna sig og sanna en ég er líka á þeirri skoðun að menn þurfi að vera nægilega góðir til þess að fá sénsinn. Það eru flottir strákar að koma upp og það verður virkilega spennandi að sjá hvernig þeir munu pluma sig því það verður spilað þétt og yngri leikmenn munu fá tæki- færi.“ Ekkert grín í Hollandi Jónatan var einungis 16 ára gam- all þegar hann hélt út í atvinnu- mennsku og samdi við AZ en hann sér ekki eftir þeirri ákvörðun, þar sem hann hafi verið tilbúinn að standa á eigin fótum á þessum tíma. „Þú getur aldrei ákveðið fyrir fram hvað er rétt og hvað er rangt í þessum efnum. Það er gríðarlega persónubundið hvernig mönnum reiðir af þegar þeir fara svona ungir út. Ég var sjálfur tilbúinn að standa aðeins á eigin fótum ef svo má segja og læra að bjarga mér. Atvinnu- mennskan er ekkert grín og það segir ekkert alla söguna að vera bara góður í fótbolta. Það hentar sumum betur að vera áfram í þægindarammanum og þróa leik sinn hér á landi. Ég var byrj- aður að æfa með meistaraflokknum þegar ég fór út en ég vissi samt að ég væri aldrei að fara að fá einhvern spiltíma þar. Ég var í 2. flokki á þessum tíma og mér fannst rétt skref að fara frekar út en að taka þátt í Íslandsmótinu með 2. flokki. Svo eru líka leikmenn eins og Gylfi Þór Sigurðsson sem fara mjög ungir út og slá engu að síður í gegn. Eftir þessi þrjú ár mín hjá AZ stóð mér til boða að spila áfram með varaliðinu en þá fannst mér kominn tími á að ég færi að spila alvöru meistaraflokksbolta. Ég vissi að ég væri ekki að fara að spila með að- alliðinu og því ákvað ég að meta stöðuna upp á nýtt og koma heim.“ Getur haft öfug áhrif Jónatan segir að það sé mjög per- sónubundið hvort það henti ungum leikmönnum að fara snemma út í at- vinnumennsku og það sé ýmislegt sem þurfi að hafa í huga þegar sú ákvörðun er tekin. „Tími minn úti kenndi mér mjög mikið og í dag veit ég nákvæmlega hvað ég þarf að gera til þess að ná árangri. Ég veit hvar ég stend gagnvart öðrum leikmönnum sem dæmi og svo er lífið allt öðruvísi en hérna heima á Íslandi. Þú ert ekki með vini og fjölskyldu í kringum þig og það getur tekið á og verið erfitt, sérstaklega þegar í harðbakkann slær. AZ endaði á toppnum í ár ásamt Ajax í hollensku úrvalsdeildinni og þar var maður að æfa með gríð- arlega góðum leikmönnum. Gæðin á æfingum voru allt önnur en hér heima og þú veist því hvað þú þarft að leggja á þig, ef þú vilt koma þér á þennan stað. Þetta getur gert mönnum mjög gott en þetta getur líka haft öfug áhrif. Þegar allt kemur til alls fer þetta mest eftir leikmanninum sjálfum, hvað hann trúir á og vill. Eins þarf að horfa á liðið sem menn eru að fara í og hvernig þeir sjá þetta fyrir sér. Ert þú bara einn af þúsund öðr- um sem þeir vonast til að slái í gegn eða eru þeir virkilega búnir að vera að fylgjast með þér og eru tilbúnir að gera þig að betri knattspyrnu- manni?“ Þótt sóknarmanninn dreymi um að snúa aftur í atvinnumennsku einn daginn er það ekki á forgangs- listanum hjá honum þessa dagana. Lít ekki á FH sem stoppistöð „Draumurinn er að komast aftur út í atvinnumennsku þegar ég er tilbúinn í það og orðinn nægilega góður. Ég er búinn að vera smá jójó undanfarin tvö ár, og átt góða og slæma leiki inni á milli. Ég er ekki tilbúinn að fara út í eitthvert lið því þú þarft að vera á meðal bestu leik- manna úrvalsdeildarinnar áður en þú getur farið að sýna þig í ein- hverri annarri deild. Ég er þess vegna ekki að bíða eft- ir því að komast aftur út þótt ég sé vissulega að stefna á það, hvenær sem það svo verður. Ég lít því alls ekki á FH sem einhverja stoppistöð fyrir mig, mér líður mjög vel þar og ég get enn bætt mig mikið sem leik- maður, og svo bara þurfum við að bíða og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Ná vonandi að slá í gegn Jónatan á von á mjög skemmti- legu knattspyrnusumri. „Ég held að við munum fá mörg óvænt úrslit í sumar og það er alveg klárt mál að byrjunin á tímabilinu mun skipta sköpum fyrir mörg lið í deildinni. Ég á von á því að það verði mikið um breytingar á liðunum á milli leikja enda verður spilað þétt í sum- ar eins og margoft hefur komið fram. Það er mikil spenna hjá öllum að hefja mótið og fara almennilega af stað. Ég á þess vegna von á því að deildin verði mjög skemmtileg og að við fáum að sjá fleiri unga og efni- lega stráka í sumar sem ná vonandi að láta ljós sitt skína og slá í gegn,“ bætti Jónatan Ingi við. Ekki í for- gangi að fara strax aftur út  Jónatan Ingi er spenntur fyrir kom- andi tímabili með FH  Vill verða einn af betri leikmönnum deildarinnar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kantmaður Jónatan Ingi Jónsson er að hefja þriðja tímabil sitt með meistaraflokki FH, sem sækir HK heim í fyrstu umferðinni 14. júní. FH Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Jónatan Ingi Jónsson sá fram á fá tækifæri með meistaraflokki FH árið 2015 og ákvað þess vegna að ganga til liðs við hollenska úrvalsdeildarfélagið AZ Alkmaar, þar sem hann lék með unglingaliði félagsins. Jónatan sneri aftur til FH árið 2018 og kom við sögu í fjórtán leikj- um í efstu deild með liðinu á fyrsta tímabili sínu eftir að hann kom aftur til Íslands, þá 19 ára gamall. Hafnfirðingurinn á að baki 35 leiki í efstu deild, þar sem hann hef- ur skorað 3 mörk, en hann er að fara inn í þriðja Íslandsmót sitt með FH, sem varð síðast Íslandsmeistari 2016. „Ég er mjög spenntur fyrir sumr- inu,“ sagði Jónatan Ingi í samtali við Morgunblaðið. „Ég er löngu byrj- aður að æfa og við getum í raun ekki beðið eftir því að byrja að spila. Það hefði verið hægt að byrja mótið fyrr, en að sama skapi er jákvætt að það var ákveðið að bíða með það fram í miðjan júní. Það er gott fyrir liðin að fá smá tíma til þess að koma sér í gang og það ætti að koma í veg fyrir meiðsli í fyrstu umferðunum. Þótt maður sé búinn að vera duglegur að æfa einn og sér síðan samkomubannið var sett á er það ekki það sama og að spila fótbolta. Þú dettur alltaf að- eins niður þegar þú byrjar að spila á fullu og þess vegna er gott að fá nokkrar vikur í undirbúning.“ Tækifæri til að stíga upp „Þegar þú spilar með liði eins og FH gerirðu ákveðnar kröfur til sjálfs þíns. Undanfarin fimmtán til tuttugu ár hefur FH alltaf verið í baráttu um titla og á síðustu leiktíð sem dæmi áttum við að vinna bikar- inn en það gekk ekki eftir. Við end- uðum í þriðja sæti deildarinnar, sem er ágætt, en stefnan í Hafnarfirði er aldrei að enda í þriðja sæti. Hópurinn í ár er þynnri en oft áð- ur og það eru margir lykilleikmenn, bæði innan sem utan vallar, horfnir á braut, eins og Davíð Þór Við- arsson og Pétur Viðarsson. Það er því tækifæri fyrir aðra til þess að stíga upp í sumar og við höfum fengið Baldur Sigurðsson til félags- ins, en honum svipar mjög til Davíðs þegar kemur að leiðtogahæfileikum. FH-ingar staðfestu í gær að Andrea Mist Pálsdóttir, sem hefur leikið með Þór/KA í úrvalsdeildinni í knattspyrnu undanfarin sex ár, væri gengin til liðs við félagið. Morgun- blaðið skýrði frá því fyrr í vikunni að hún væri á leiðinni þangað. Þar með hafa nýliðar FH fengið þrjá leikmenn sem eiga A-landsleiki að baki. Andrea hefur spilað þrjá lands- leiki, Sigríður Lára Garðarsdóttir sem er komin frá ÍBV hefur spilað 20 landsleiki og Hrafnhildur Hauks- dóttir, sem kom frá Selfossi, á fjóra landsleiki að baki. Þriðja landsliðs- konan í FH Ljósmynd/Þórir Tryggvason Opinbert Andrea Mist Pálsdóttir er komin til liðs við FH-inga. Enska knattspyrnufélagið Man- chester United skýrði frá því í gær að það hefði þegar tapað 28 millj- ónum punda, um fimm milljörðum íslenskra króna, vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og reiknað væri með því að það væri bara brot af heildartapinu sem það yrði fyrir. Af því væru um 20 milljónir punda í sjónvarpstekjur sem skila þyrfti til baka og átta milljónir hefðu tapast vegna frestana leikja fyrstu þrjár vikur faraldursins. Megnið af tap- inu ætti eftir að koma fram þegar tímabilið apríl-júní yrði gert upp. Hafa þegar tapað fimm milljörðum AFP Tap Kórónuveiran kemur illa við fjárhag knattspyrnufélaganna. GOLF Fyrsta mótið á mótaröð GSÍ 2020, B59 Hotel-mótið, hefst á Leynisvelli á Akranesi klukkan 8 í dag og síðustu keppendur hefja leik klukkan 14.50. Flestallir bestu kylfing- ar landsins eru með, alls eru 98 karlar og 27 konur meðal keppenda, en leiknir verða þrír hringir á þremur dögum og mótinu lýkur því síðdegis á sunnudaginn. Í DAG!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.