Morgunblaðið - 22.05.2020, Page 27

Morgunblaðið - 22.05.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020  Samuel Umtiti, varnarmaður spænska knattspyrnufélagsins Barce- lona, er til sölu í sumar, en hann hefur einungis byrjað níu leiki í spænsku 1. deildinni á tímabilinu. Umtiti er 26 ára gamall og gekk til liðs við Barcelona frá Lyon sumarið 2016. Hefur hann tví- vegis orðið Spánarmeistari með liðinu og tvívegis bikarmeistari. Spænski miðillinn Sport greinir frá því að Barcelona hafi lækkað verðmiðann á leikmanninum úr 50 milljónum evra niður í 25 milljónir evra. Ensku félögin Arsenal og Manchester United eru m.a. sögð áhugasöm um leikmanninn.  Hollendingurinn Jaap Stam hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri FC Cincinnati í Bandaríkjunum. Gerir hann tveggja ára samning við félagið. Stam gerði garðinn frægan sem leik- maður og lék m.a. með Manchester United og AC Milan. Hefur hann síðan stýrt Reading á Englandi og FC Zwolle og Feyenoord í heimalandinu. Sagði hann upp hjá Feyenoord í október á síðasta ári.  Thomas Bach frá Þýskalandi, for- seti Alþjóðaólympíunefndarinnar IOC, segir það ekki koma til greina að fresta Ólympíuleikunum í Tókýó á nýj- an leik. Geti þeir ekki farið fram á næsta ári verði þeim einfaldlega af- lýst.  Danski knattspyrnumaðurinn Eddi Gomes sem lék með FH-ingum keppnistímabilið 2018 er kominn aftur til Danmerkur og búinn að semja við HB Köge í B-deildinni út yfirstandandi tímabil. Gomes, sem var fyrirliði Dana í knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna í Ríó sumarið 2016, lék með Henan Jinaye í Kína frá 2015 en var í láni hjá FH og missti talsvert úr vegna meiðsla. Hann spilaði áður með HB Köge 2013-14 og síðan með Esbjerg eitt tímabil áður en hann fór til Kína.  Hamarsmenn í Hveragerði hafa samið við bandaríska körfuboltamann- inn Anthony Lee um að leika með þeim í 1. deildinni næsta vetur. Lee er 24 ára bakvörður og þreytir frumraun sína í atvinnumennsku á Íslandi, en hann kemur úr Kutztown-háskóla, þar sem hann skoraði 27 stig að meðaltali, tók 7 fráköst og gaf 5 stoðsendingar á síðasta tímabilinu.  Knattspyrnumaðurinn Jordon Ibe mun ekki ljúka tímabilinu með enska úrvalsdeildarfélaginu Bournemouth, en félagið ætlar ekki að framlengja samning hans sem rennur út 30. júní. Ibe hefur ekki náð sér á strik á fjórum árum hjá félaginu, sem keypti hann af Liverpool fyrir 16 milljónir punda árið 2016.  Dönsku knattspyrnufélögin sem leika í úrvalsdeild karla tilkynntu hvert á fætur öðru í gær að engin smit af kórónuveirunni hefðu greinst í þeirra herbúðum. Allir leikmenn ásamt starfsfólki liðanna gengust undir skimun fyrr í vik- unni. Þá staðfesti FC Köbenhavn að Ragnar Sigurðsson landsliðsmiðvörður væri búinn að jafna sig af meiðslum og væri klár í slaginn fyrir fyrsta æf- ingaleikinn eftir hléið sem er gegn OB í dag. Keppni í deildinni hefst á ný 28. maí. Eitt ogannað VALUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslandsmeistarinn Guðný Árnadóttir var sex ára gömul þegar foreldrar hennar þurftu hálfpartinn að múta henni til þess að mæta á fyrstu knatt- spyrnuæfingar sínar. Það tók hana hins vegar eina til tvær æfingar að falla fyrir fótbolt- anum og síðan þá hefur hún skarað fram úr í þeirri íþrótt. Guðný, sem verður tvítug í ágúst, var lykilmaður í hjarta varnarinnar hjá Val á síðustu leiktíð og lék alla átján leiki liðsins í Pepsi Max- deildinni þegar liðið varð Íslands- meistari í ellefta sinn, en hún er upp- alin hjá Sindra á Hornafirði og gekk til liðs við Val frá FH eftir tímabilið 2018. „Maður er búinn að bíða ansi lengi eftir því að hefja leik og það er því mikil spenna fyrir því að byrja tíma- bilið loksins,“ sagði Guðný í samtali við Morgunblaðið. „Við finnum ekki fyrir neinni pressu þannig séð, far- andi inn í mótið sem Íslandsmeist- arar. Markmiðið er fyrst og fremst að njóta þess að spila og hafa gaman af því sem við erum að gera. Per- sónulega hefur mér gengið vel hvað æfingar varðar og við fengum mjög gott æfingaplan frá þjálfarateyminu fyrir hvern einasta dag á meðan ekki var hægt að mæta á æfingar. Við reyndum að hittast stundum tvær til þrjár saman til þess að létta lundina og æfa saman, sem var ágæt- is tilbreyting. Þar sem Valsliðið komst ekki í æfingaferð til Spánar eins og til stóð vegna ástandsins í heiminum ákváðum við svo að gera okkur glaðan dag á Suðurlandinu, þar sem við fórum meðal annars í fjallgöngu og hellaskoðun. Við gist- um þar á Hótel Stracta, sem var mjög fínt, og þetta þjappaði hópnum klárlega saman fyrir komandi sumar.“ Spennandi sumar fram undan Síðasta sumar háðu Valskonur harða baráttu við Breiðablik um Ís- landsmeistaratitilinn en Guðný á von á því að fleiri lið muni blanda sér í baráttuna í sumar. „Það er orðið frekar langt síðan maður sá liðin í deildinni spila og þess vegna er erfitt að spá fyrir um það hvernig sumarið á eftir að þróast. Að mínu mati eru mörg lið sem gætu gert tilkall til þess að verða Íslands- meistarar og ég á ekki von á því að þetta verði tveggja hesta kapphlaup eins og á síðustu leiktíð. Selfoss og KR eru bæði búin að fá til sín mjög öfluga og reynslumikla leikmenn sem hafa verið fastamenn í landsliðinu undanfarin ár. Svo hefur Fylkir líka fengið til sín mjög efni- lega en jafnframt góða leikmenn og það geta þannig séð öll liðin í deild- inni stolið stigum hvert af öðru. Ég á þess vegna von á mikilli spennu og skemmtun í sumar.“ Meira inni í hlutunum Guðný á von á því að ákveðnar breytingar muni eiga sér stað þegar kemur að leikskipulagi og öðru hjá Val þar sem Margrét Lára Viðars- dóttir, fyrirliði liðsins frá síðustu leik- tíð, hefur lagt skóna á hilluna. „Stærsti munurinn frá því fyrir ári er auðvitað bara sá að ég þekki stelp- urnar betur núna. Þjálfarateymið er það sama og á síðustu leiktíð og það hefur því lítið breyst í þeim efnum. Heilt yfir er ég komin meira inn í hlutina núna og ég veit hver stand- ardinn er hjá félaginu. Maður er kominn betur inn í hópinn og þá get- ur maður farið að láta meira að sér kveða í klefanum og tekið meiri ábyrgð. Margrét Lára var frábær síðasta sumar og það er vissulega sjónar- sviptir að henni. Það er erfitt að finna leikmann eins og hana og nánast ekki hægt. Við munum því þurfa að gera ákveðnar breytingar á leik okkar til þess aðlagast brotthvarfi hennar. Að sama skapi höfum við fengið öfluga leikmenn til okkar og breiddin í hópnum er góð, þannig að við eigum að geta ráðið við þetta.“ Lítið annað að gera Guðný ólst upp á Hornafirði og það tók hana ekki langan tíma að falla al- gjörlega fyrir fótboltanum. „Ég æfði fótbolta frá sex ára aldri með Sindra á Hornafirði og það má alveg segja að maður hafi fengið sitt fótboltauppeldi þar. Við vorum með gott lið í okkar flokki og það hjálpaði manni mikið. Það var lítið annað að gera en að vera í fótbolta og það var í raun það eina sem maður gerði á Hornafirði á þessum tíma. Ég var ekki spennt fyrir því að mæta á æfingar í fyrstu og mig lang- aði alls ekki að fara. Mamma og pabbi þurftu að múta mér með alls kyns verðlaunum til þess að fá mig til þess að mæta. Það tók hins vegar ekki langan tíma fyrir mig að falla fyrir fótboltanum og eftir fyrstu æf- ingarnar var þetta svo gott sem kom- ið.“ Löng keyrsla á æfingar Árið 2013 byrjaði miðvörðurinn að æfa með FH í Hafnarfirði en hún var þó keyrð um langan veg á æfingar fyrstu árin, þar sem fjölskyldan flutt- ist búferlum frá Hornafirði til Víkur í Mýrdal. „Í maí 2013 fluttum við fjölskyldan á Vík í Mýrdal og þá byrjaði ég að æfa með 3. flokki FH. Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að æfa með FH var einfaldlega sú að pabbi er mikill FH- ingur. Mamma og pabbi voru svo dugleg að keyra mig bæði á æfingar og í leiki á bæði vorin og haustin, en á sumrin bjó ég hjá ömmu minni sem býr í Hafnarfirði. Þar sem við bjuggum á Vík komst ég ekki á allar æfingar og á veturna nýttum við í raun öll tækifæri sem gáfust til þess að fara í bæinn og ná bæði æfingum og leikjum. Ég var í skóla á Vík og þess vegna gat ég lítið sem ekkert æft í bænum á virkum dögum en ég fór á frjálsíþrótta- og fótboltaæfingar hjá Kötlu eins og ég gat á þessum tíma.“ Guðný lék fyrsta landsleik sinn í janúar 2018 þegar hún kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik gegn Nor- egi á æfingamóti á La Manga á Spáni. Leiknum lauk með 2:1-sigri Noregs en varnarmaðurinn ætlar sér í atvinnumennsku á næstu árum. Háleit markmið „Ég var búin að vera aðeins viðloð- andi landsliðið þegar ég var í FH og markmiðið var svo auðvitað að tæki- færunum myndi fjölga eftir kom- una í Val. Ég ætla mér að stimpla mig inn í landsliðið í framtíðinni og það mætti því segja að þetta sé allt á áætlun eins og staðan er í dag. Atvinnumennskan hefur lengi ver- ið draumur hjá mér og það er nokkuð sem ég vil gera síðar á ferlinum. Ég er með háleit markmið þegar kemur að fótboltaferlinum og ég stefni á að reyna fyrir mér erlendis eftir eitt til tvö ár ef allt gengur að óskum,“ sagði Guðný Árnadóttir enn fremur í samtali við Morgunblaðið. Mútað til að byrja að æfa fótbolta á Hornafirði  Guðný Árnadóttir finnur ekki fyrir pressu fyrir tímabilið hjá Val  Var keyrð á æfingar hjá FH frá Vík í Mýrdal Morgunblaðið/Eggert Valskona Guðný Árnadóttir festi sig vel í sessi í vörn Vals í fyrra. Hlíðar- endaliðið byrjar titilvörnina gegn KR á heimavelli föstudaginn 12. júní. Körfuknattleiksmaðurinn Martin Hermannsson er orðaður við gríska stórliðið Panathinaikos á vefmiðl- inum Sportando. Hefur góð frammi- staða Martins með Alba Berlín undanfarin tvö ár vakið athygli, en hann hefur verið einn besti leik- maður þýska liðsins síðan hann kom frá Chalons-Reims í Frakklandi. Pan- athinaikos hefur sex sinnum unnið Evrópudeildina, sterkustu keppni álfunnar, og 37 sinnum orðið grískur meistari. Var liðið úrskurðaður grískur meistari í gær, er tímabilinu var aflýst vegna kórónuveirunnar. Martin orðaður við risafélag Ljósmynd/Euroleague Stórlið Martin Hermannsson er orðaður við stórliðið Panathinaikos. Miklar líkur eru á að bandaríska NBA-deildin í körfubolta fari af stað á nýjan leik um miðjan júlí. Verður þá einungis úrslitakeppnin leikin og staðan eins og hún var þegar tímabilinu var frestað vegna kórónuveirunnar látin standa sem lokastaða. ESPN greinir frá því að leikið verður á tveimur stöðum; annars vegar Disneylandi í Orlando og hins vegar í Las Vegas. Verði leikið í júlí fá liðin nægan tíma til að undirbúa sig, þar sem æfingasvæði félaga hafa verið opnuð aftur síð- ustu daga. Úrslitakeppni NBA í júlímánuði AFP NBA Los Angeles Lakers er í topp- sæti Vesturdeildarinnar í NBA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.