Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020
verð áður 11.900.-
nú 10.115.-
Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
TILBOÐ MÁNAÐARINS Í MAÍ
15% afsláttur af öllum vörum frá Sign
skartgripirogur.is
Njóttu sumarsins í miðbænum
verð áður 29.900.-
nú 25.415.-
verð áður 19.900.-
nú 16.915.-
verð áður 19.900.-
nú 16.915.-
verð áður 9.900.-
nú 8.415.-
verð áður 16.900.-
nú 14.365.-
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri SinfoniaNord, líkir
ástandinu við upptökur á tónlist fyrir
erlend fyrirtæki í Hofi, á undan-
förnum vikum, við kvikmynd um
njósnarann James Bond. Nýverið
lauk tökum á tónlist fyrir tvær kvik-
myndir fyrir streymisveituna Netflix
með heimsfrægum leikurum í aðal-
hlutverkum og segir Þorvaldur mjög
strangar reglur hafa verið settar
vegna COVID-19-farsóttarinnar.
20 á sviðið í einu
„Við fengum beiðni um hvort við
gætum tekið upp og hvort það væri
leyfi hér til þess og við sögðum ein-
faldlega já. Þá hélt ég að þetta væri
staðfest og við færum bara að gera
þetta eins og venjulega því við vær-
um hvort eð er með leyfi fyrir 20
manna samkomum. Þeir vildu fá um
40 manna strengjasveit og við kom-
um með þá tillögu að taka upp efri
hluta strengjanna sér og selló og
bassa sér og þá væru aldrei fleiri en
19 á sviðinu, 20 með stjórnanda. Það
þótti strax geta gengið upp en þá
byrjuðu „risk assessment“-kröfur
Bandaríkjanna. Við fengum skjal
með endalausum spurningum um
hvernig við ætluðum að framkvæma
þetta og í ljós kom að engin leið væri
að gera þetta nema vera með a.m.k.
eitt fyrirtæki sem sérhæfði sig í
heilsuvernd og með hjúkrunarkonur
á svæðinu. Enginn mátti koma inn og
byrja að vinna nema hann væri búinn
að svara spurningalista og búinn að
fara í próf til að athuga hvort við-
komandi væri með hita eða einhver
einkenni,“ segir Þorvaldur og nefnir
að einum hljóðfæraleikara hafi verið
hafnað vegna COVID-19-einkenna.
Hann reyndist þó ekki vera með
veiruna.
Öryggisverðir, spritt og grímur
Til að byrja með var farið fram á
að allir hljóðfæraleikararnir færu í
sýnatöku en Þorvaldur segir að hætt
hafi verið við það þegar í ljós kom
hversu hár kostnaðurinn yrði og
hversu tímafrekt yrði að prófa alla.
Því hafi verið ákveðið að Hof mætti
aðeins vera með einn inngang opinn
og að ráða þyrfti öryggisverði sem
pössuðu upp á að aldrei mynduðust
raðir fyrir utan. Verðirnir sáu til
þess að allir væru sprittaðir og
fengju grímur og þurftu svo hljóð-
færaleikarar að fara að sínum borð-
um í sal sem voru merkt með nöfnum
þeirra. Hver og einn fékk box með
mat og þess gætt að tveir metrar
væru á milli allra. Þegar skipt var
um hljóðfærahópa kom hreingern-
ingahópur inn í salinn og sótthreins-
aði allt. „Þetta var eins og hernaðar-
áætlun,“ segir Þorvaldur.
Með vaðið fyrir neðan sig
SinofiaNord-verkefnið er það um-
svifamikið, að sögn Þorvaldar, að
kalla þarf til hljóðfæraleikara víða
að. Þeir eru einfaldlega ekki nógu
margir fyrir norðan. „Þetta verkefni
nær því um allt Ísland og stundum út
fyrir það,“ segir hann.
En hvernig stendur á því að erlend
fyrirtæki, bandarísk eða frá öðrum
löndum, geta gert svo strangar kröf-
ur um sóttvarnir á Íslandi? Var ein-
hver á þeirra vegum á staðnum?
„Það var enginn frá þeim á staðnum,
þannig séð, þeir mega einfaldlega
ekki ferðast og við bjóðum upp á
fjarupptökur þar sem viðskiptavin-
urinn er í sínu eigin hljóðveri og fylg-
ist með í rauntíma í gegnum forrit
sem heitir Source Connect Live,“
svarar Þorvaldur, „en þetta er al-
gjörlega vegna þess að í Bandaríkj-
unum og í þessum alþjóðlega bransa
eru svo rosaleg tryggingaviðurlög.
Ef það hefði komið upp smit hér og
frést að Netflix hefði haldið áfram að
framleiða og það valdið frekari smit-
um hefðu þeir verið lögsóttir í bak og
fyrir og það hefðu líka verið vond al-
mannatengsl. Þeir vildu nýta sér
þjónustuna og í ljós kom að við vor-
um eina hljómsveitin í heiminum sem
gat gert þetta út af því hvernig
stjórnvöld hafa tekið á þessu hér. Við
urðum miðpunktur athyglinnar í
bransanum og ég hef ekki undan
þessa dagana að svara fyrirtækjum,
EMI, Sony, sjálfstæðum fyrir-
tækjum, One Little Indian og fleir-
um,“ segir Þorvaldur. Hann segist
búinn að senda kostnaðaráætlun á
fjölda fyrirtækja og að mörg verk-
efni séu í biðstöðu. Það megi því bú-
ast við annríkissumri hjá Sinfoniu-
Nord en nú þegar hafa upptökur
fyrir eina Hollywood-mynd, innlenda
mynd og söngleik verið bókaðar í
Hofi.
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Upplifun „Þetta var eins og hernaðaráætlun,“ segir Þorvaldur Bjarni um
öryggiskröfur Netflix og eftirlit í Hofi við upptökur SinfoniaNord.
Eins og í Bond-mynd
Uppfylla þurfti strangar öryggiskröfur Netflix við upptökur SinfoniaNord
Mörg verkefni fram undan í sumar að sögn framkvæmdastjóra verkefnisins
AFP
Tímanna tákn Kórónuveiran á skjá og merki Netflix í snjallsíma. COVID-19-
faraldurinn hefur frestað kvikmyndatökum víða um lönd en streymisveitan
Netflix sækir í sig veðrið með stóraukinni eftirspurn í kófinu.
Bandaríski list-
málarinn Susan
Rothenberg, sem
sló í gegn með
expressjónískum
málverkum af
hrossum, verk-
um sem voru á
sínum tíma eins
konar andsvar
við ríkjandi
mínimalisma í
listheiminum vestanhafs, er látin,
75 ára að aldri.
Tjáningarrík málverk Rothen-
berg slógu í gegn á áttunda og ní-
unda áratug síðustu aldar og er að
finna í öllum helstu listasöfnum
Bandaríkjanna. Þau eiginmaður
hennar, myndlistarmaðurinn kunni
Bruce Nauman, settust síðan að í
Nýju-Mexíkó, fjarri háværum list-
heiminum, og unnu þar markvisst í
sjálfskipaðri einangrun að mynd-
sköpun sinni. Rothenberg hélt til
dauðadags áfram að kanna nýjar
leiðir í málverkinu.
Hrossamálarinn
Rothenberg látin
Susan
Rothenberg
Sýning blaða- og
fréttaljósmynd-
ara, Myndir árs-
ins, stendur nú
yfir í Ljósmynda-
safni Reykjavík-
ur í Grófarhús-
inu. Þrír ljós-
myndaranna sem
hlutu verðlaun
fyrir myndir sín-
ar kynna þær í
safninu í hádeginu í dag, föstudag,
kl. 12.10. Það eru þau Kjartan Þor-
björnsson (Golli) sem hlaut verð-
laun fyrir mynd ársins og mynda-
röð ársins, Aldís Pálsdóttir sem tók
tímaritsmynd ársins og Kristinn
Magnússon sem tók íþrótta-
ljósmynd ársins.
Viðburðurinn er öllum opinn á
meðan húsrúm leyfir. Til að fylgja
tveggja metra reglunni takmarkast
fjöldi gesta við 20, fyrstir koma
fyrstir fá. Aðgangur er ókeypis.
Sýningin stendur til 30. maí og fæst
bók með öllum myndum sýningar-
innar í verslun safnsins.
Segja frá verð-
launamyndum
Kjartan
Þorbjörnsson - Golli
Metfjöldi sótti um styrki í auka-
úthlutun Hönnunarsjóðs. Sjóðnum
var falið að úthluta 50 milljónum
til átaksverkefna á sviði hönnunar
og arkitektúrs, samkvæmt þings-
ályktun um tímabundið fjárfest-
ingarátak til að vinna gegn sam-
drætti í hagkerfinu í kjölfar
heimsfaraldurs Covid-19. Þegar
umsóknarfrestur rann út á mánu-
dag var ljóst að met var slegið
hvað varðar fjölda umsókna til
sjóðsins. Alls bárust 276 umsóknir
þar sem sótt var um 520 milljónir.
Í tilkynningu segir að sjóðnum
hafi ekki borist slíkur fjöldi um-
sókna frá stofn-
un hans árið
2013. Í tilkynn-
ingunni segir að
ljóst sé að allar
greinar hönn-
unar og arki-
tektúrs finni
fyrir mikilli
niðursveiflu
samanber niður-
stöður könnunar sem Hönnunar-
miðstöð stóð fyrir í apríl og sýndi
fram á að 70% þeirra sem starfa í
hönnun og arkitektúr finna fyrir
verulegum áhrifum faraldursins.
Umsóknir eru fjölbreyttari en oft
áður og fleiri umsóknir frá fyrir-
tækjum í eigu hönnuða og arki-
tekta en oft áður. Úthlutað verður
fyrir 1. júní.
Metfjöldi umsókna
í Hönnunarsjóð
Frá Hönnunarmars.
Í tilefni af 40 ára afmæli kvikmynd-
arinnar The Shining og 25 ára af-
mæli The Shawshank Redemption
munu SAMbíóin í Álfabakka, í sam-
starfi við Warner Brothers, sýna
þær aftur. Báðar eru byggðar á
sögum Stephens Kings og teljast sí-
gildar.
The Shining segir af rithöfundi
og fyrrverandi kennara sem gerist
húsvörður á mannlausu hóteli
veturlangt og dvelur þar með eigin-
konu sinni og syni. Fljótlega fara
dularfullir atburðir að gerast og
rithöfundurinn missir hægt og síg-
andi vitið. Leikstjóri myndarinnar
er Stanley Kubrick og í aðalhlut-
verkum Jack Nicholson, Shelley
Duvall og Danny Lloyd. The
Shawshank Redemption segir af
ungum manni sem sakfelldur er
fyrir að myrða eiginkonu sína og
elskhuga hennar. Hann er dæmdur
í lífstíðarfangelsi og fer sagan fram
innan veggja fangelsisins Shaw-
shank. Leikstjóri myndarinnar er
Frank Darabont og með aðal-
hlutverk fara Tim Robbins og
Morgan Freeman.
SAMbíóin sýna
afmælisperlur
Klassík Úr The Shawshank Redemption.