Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 29

Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI GÓÐ GRÍNMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA MEÐ ÍSLENSKU TALI. AFMÆLISVEISLA Í ÁLFABAK Tvær frábærar eftir sögu Stephen King EIN BESTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Á ÞESSU ÁRI. JAMIE FOXX OG MICHAEL B.JORDAN ERU BÁÐIR HÉR MEÐ FRÁBÆRAN LEIK. MYND SEM ALLIR KEPPAST VIÐ AÐ HÆLA EFTIR AÐ HAFA SÉÐ MYNDINA. Ragna Kjartansdóttir tónlistar- kona mælir með verkum sem njóta má innan veggja heimilisins á tímum kórónuveirufaraldurs. „Ég verð að viðurkenna að ég les ekki mikið og er ekkert endi- lega heldur mikið fyrir að horfa á hvað sem er. En þegar ég dett inn á einhverja góða seríu eða kvik- mynd þá skilur hún yfirleitt eitt- hvað eftir sig. Ég sá til dæmis ný- verið óskarsverðlaunamyndina Parasite. Ég verð að viður- kenna að það er eitthvað við að horfa á erlendar myndir þegar maður þekkir ekki leikarana, þá trúir maður þeim mun meira. Frá fyrstu mínút- unum fangaði myndin athygli mína. Hún er óþægileg og svívirðileg, mannleg og auðmýkjandi, ófyrirsjáanleg með miklum kaldhæðnislegum húmor og fær mann til að hugsa. Akkúrat þegar maður heldur að maður hafi séð allt slær þessi mynd mann eins og blaut tuska í andlitið. Undanfarið hef ég verið að hlusta á podcast með Conan O’Brien sem heitir Conan O’Brien needs a friend. Hann tekur einlæg viðtöl á léttu nótunum við marga bransavini sína eins og Dana Car- vey, Charles Barkley, Will Ferrell, Keegan-Michael Key, Ricky Geevais, Ali Wong, Tinu Fey og Ellen. Mjög skemmtilegir þættir og ég hlæ alveg oft upphátt. Þá er að finna til dæmis á Spotify og öll- um helstu streymisveitum. Það sem er hins vegar oft topp- urinn eru VERZUZ-sessjónirnar á Instagram. Þar eru tveir tón- listarmenn settir hvor upp á móti öðrum og fengnir til að battla þannig að þeir skiptast á að spila lög eftir sjálfa sig, allt frá under- ground-lögum yfir í mjög þekkta billboard-hittara, og dæma þá áhorfendur hver fyrir sig hvor hefur betur eftir kvöldið. Þetta snýst nú aðallega um nostalgíu- kast áhorfenda; að vera akkúrat á þessum stað og stund með þeim að upplifa uppáhaldslögin sín spiluð og sungin ásamt því að fá líka oft söguna á bak við tjöldin frá þeim sjálfum í leiðinni. Upphafsmenn viðburðarins voru Timbaland og Swizz Beats. Eftir það hafa boom bap-pródúserarnir RZA og Premo mæst, þar á eftir voru R&B- risarnir Teddy Riley vs. BabyFace og nýverið engar aðrar en Erykah Badu á móti Jill Scott. Möst að ná þessu í beinni útsendingu og vaka langt fram á nótt. Hvað varðar að taka ástfóstri við tónlistarmenn er ég ein af þeim sem eru oft annaðhvort á undan hæpinu eða eftir á. Það er leiðinlegra að vera eftir á, sér- staklega þegar viðkomandi er lát- inn. Það var svolítið þannig þegar Biggie dó og núna sama að segja með Mac Miller. Ég er búin að vera með tónlistina hans á repeat undanfarna mánuði og það er eiginlega ótrúlegt hvað hún er viðeigandi akkúrat núna. Það er eitthvað við einlægni hans sam- tvinnaða við djassað hipphopp, tón og frösun, svo ekki sé minnst á hversu klár hann er textalega. Hann fer með mann um allan tilfinningaskalann, sem er svolítið það sem fær mann til að tengjast honum. Hann nær að vera nógu einlægur án uppgerðar en samt svo ótrúlega töff týpa á sama tíma og það ásamt góðri tónlist þykir mér sjaldgæft og mæli með.“ Mælt með í kófinu Sníkjudýr Suðurkóreska Óskarsverðlaunamyndin hefur heillað marga. Óþægileg, svívirðileg, mannleg og auðmýkjandi Ragna Kjartansdóttir Ljósmynd/Nicolas Völcker Endurtekning Ragna hefur hlusað endurtekið á Mac Miller heitinn. Titillinn segir margt.Glæpasagan Illvirki eftirsænska rithöfundinnEmelie Schepp fjallar ein- mitt um það og heldur betur ásamt ýmsum flækjum helstu persóna í vægast sagt mjög spennandi frá- sögn. Jana Berzelius saksóknari er ekki öll þar sem hún er séð, eins og fram hefur komið í tveimur fyrri bókum höf- undar um þessa helstu persónu þeirra. Fortíðin þvælist fyrir henni og tog- streita á milli þess liðna og nú- tímans er sem rauður þráður í Illvirki. Jana virk- ar glæsileg og örugg í starfi en er fráhrindandi, harður nagli utan þægindarammans sem fylgir starf- inu. Flott og ákveðin kona sem á alltaf síðasta orðið. Með góðu eða illu. Sagan hverfist á skemmtilegan og markvissan hátt um Jönu. Morð er framið í Norrköping og í hönd fer æsispennandi atburðarás sem enginn sér fyrir endann á. Rann- sakendur eru misjafnlega hvatvísir og sérstaklega er gaman, ef svo má að orði komast í allri alvörunni, að fylgjast með viðbrögðum Miu Bol- ander á hinum ýmsu stigum rann- sóknarinnar. Uppbygging sögunnar er snilldarlega vel gerð og nánast hugsað fyrir öllu. Spennan helst út í gegn og allan tímann veit lesand- inn hvorki í þennan heim né annan. Einkalíf þeirra sem helst koma við sögu, einkum vandamálin, eru sem þeyttur rjómi á kökuna og falla vel að því sem upphaflega var lagt upp með, að komast að hinu sanna. Þessi blanda gerir söguna líka trú- verðugri en ella, því almenningur, hvar sem hann er staddur, á sér drauma og þrár en misstígur sig á lífsins gangi, því enginn er fullkom- inn. Glæpasagan Illvirki er í raun miklu meira en það. Lýsingarnar á afbrotunum eru óhuggulegar og vart eftir hafandi. Inn í þennan við- bjóð fléttast samfélagsleg vanda- mál, fjölskyldumál, siðferði, lög og réttur, en líka félags- og sál- fræðilegir þættir, sem allir líta ekki sömu augum. Þetta er mikill kokkt- eill, en Emelie Schepp kann á hon- um tökin og blandan bregst ekki. Ljósmynd/Helén Karlsson Höfundur Emelie Schepp. Kokkteill gerður af meistarahöndum Spennusaga Illvirki bbbbm Eftir Emelie Schepp. Kristján H. Kristjánsson þýddi. MTH 2020. Kilja, 432 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.