Morgunblaðið - 08.05.2020, Side 2

Morgunblaðið - 08.05.2020, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Saga Sigurðardóttir. Þ egar fólk er spurt út í heimili sitt er svarið yfirleitt eitthvað á þá leið að heimilið sé skjól fyrir áreiti heimsins. Það sé griðastaður þar sem fólki á að líða vel. Á tímum sem þess- um hefur friðsæld heimilisins aldrei verið mikilvægari. Þarfir fólks eru auðvitað misjafnar en takturinn breytist þegar við erum ekki á leiðinni neitt nema kannski bara inn á bað eða inn í stofu. Þegar við verjum meiri tíma inni á heimili okkar þurfum við að hugsa heimilið og heimilishaldið út frá því. Margir voru sjálfsagt í þeirri stöðu að geta alltaf látið sig hverfa til fjarlægari landa þegar líf- ið varð aðeins of goslaust og tilbreytingarlítið. Nú sitjum við uppi með okkur sjálf og getum ekki stungið af og þá þurfum við að finna nýjar leiðir til að draga andann. Ég á vinkonu sem fær innilokunarkennd ef hún á ekki nokkra flug- miða á lager. Þegar ég spurði hana hvernig henni liði núna sagðist hún hafa það óvenju gott. Hún hefði nefnilega fengið frí frá óróleik- anum í sjálfri sér um stund. Hún áttaði sig á því að það var bara drullunæs að vera bara heima og gera hluti heima hjá sér sem hún var vön að gera á ferðalögunum. Í sárabætur fyrir ferðafallið keypti hún sér flottustu kaffivél á Íslandi og sprangar nú um heimili sitt eins og konungborin. Með kaffi í hönd og heimalitað hár. Þegar kemur að heimilinu þurfum við að losa okkur við gamlar og úreltar hugmyndir. Við þurfum að nýta tímann núna til að endurhugsa hlutina og reyna að vera svolítið sniðug. Þegar við erum til dæmis farin að gera leikfimisæfingar inni í stofu því við komumst ekki í rækt- ina þá þurfum við kannski að færa til húsgögn svo við veltum gler- borðinu ekki um koll þegar við erum að gera froskahopp af öllu afli. Þá komumst við kannski að því að þetta glerborð passaði aldri þarna inn og allt sé betra ef það er bara jógadýna á gólfinu. Í allri inniverunni sá ég mig knúna til að hressa okkur aðeins við og bjó til „flipp“-myndavegg. Ég dró fram útskriftarmynd mannsins míns úr MR og hengdi upp á vegg við hliðina á verki eftir Erró sem ég fann á háalofti tengdamóður minnar (ásamt fleira góssi). Þessu blandaði ég saman við plakat frá Svíþjóð (sem hefur tilfinningalegt gildi fyrir mig og engan annan) ásamt fleiri listaverkum. Þessi „flipp“- myndaveggur er ekki alveg tilbúinn en lofthæðin er ágæt þannig að lengi má bæta við. Í þessum pælingum hef ég velt fyrir mér hvort ég ætti loksins að láta ramma inn myndina af Silvíu Nótt sem mér áskotnaðist fyrir margt löngu. Þar stendur hún í glimmergalla, búin að tapa Eurovison, maskarinn lekur niður kinnarnar og hún ákveður að eina leiðin til að lifa þetta ógeð af sé að kveikja sér í sígarettu. Stundum er líf okkar eins og myndin af Silvíu Nótt. Við stýrum ekki atburðarás heimsins en við getum alltaf ákveðið hvort við ætlum að hafa allt í drasli inni hjá okkur eða ekki. Við getum líka ákveð- ið hvort við viljum eiga gott og fallegt heimilislíf eða ekki. Í hvaða litum við ætl- um að mála og hvort jógadýnan megi ekki bara vera í stofunni. Það kostar nefnilega enga peninga að færa til hluti og það kostar heldur ekki peninga að skapa góða stemningu og koma vel fram við þá sem við búum með (eða mætum á lífsleiðinni). Morgunblaðið/Eggert Hvað myndi Silvía Nótt gera? Marta María Jónasdóttir Hvað er í snyrtibuddunni? „EGF-serum, Chanel-maskari, YSL- farði, Clarins-gloss og NARS-kinnalitur.“ Ertu með ákveðnar hefðir við daglega umhirðu húðarinnar? „Ég passa ávallt upp á að hreinsa húðina vel og næra hana með góðum kremum og serumi. Einnig finnst mér nauðsynlegt að nota bæði andlits- og augnmaska reglulega til að fá þetta extra dekur fyrir húðina. Vegna vinnu minnar hjá BIOEFFECT er ég svo heppin að geta borið þessar lúxushúðvörur á mig daglega og gæti t.d. ekki verið án EGF-serums held ég.“ Hvað keyptirðu síðast fyrir þig? „Skart frá Hildi Hafstein, það er svo margt fallegt sem hún er að gera.“ Hver er upphaldsmaturinn þinn? „Mér finnst ítalskur matur mjög góður og segi aldrei nei við góðu Boeuf Bourguignon.“ Hvers saknarðu helst að gera þessa dagana? „Að hitta stórfjölskylduna og vini reglulega og að geta ekki knúsað alla.“ Hvað hefur verið ánægju- legt við að vinna heima að undanförnu? „Það sem hefur komið hvað mest á óvart á þessum tímum er hversu auðvelt það er að vinna heima og hversu mikið maður getur gert bara með tölvuna og síma að vopni.“ Hvað hefur verið erfitt? „Að hitta ekki reglulega alla frábæru starfsfélagana og sjá því miður alvarlegar efnahagslegar afleiðingar af þessu ástandi úti um allan heim.“ Hvað færðu þér í morgunmat? „Það er misjafnt en ég fer ekki út úr húsi án þess að gera mér góðan kaffibolla.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn heima? „Það er ákveðinn stóll í stof- unni þar sem ég hef útsýni beint út á sjó.“ Hvað keyptirðu síðast inn á heimilið? „Borðstofuborð og -stóla úr CASA.“ Áttu þér uppáhalds- hönnuð? „Mér finnst margt fal- legt frá Chloé og Stellu McCartney. Á Íslandi finnst mér kjólarnir hennar Andreu Magnúsdóttur kvenlegir og fallegir.“ Hver er uppáhalds- liturinn þinn? „Bláir tónar.“ Áttu þér uppáhalds- snyrtivöru? „EGF-serum frá BIO- EFFECT, CHA- NEL-maskara, YSL- gullpennann og STELLU-ilmvatn frá Stellu McCartney.“ Áttu þér uppáhalds- æfingu að gera í líkams- rækt? „Ég elska að vera úti í náttúrunni og þá helst í fjallgöngu eða á skíðum. Ef ég fer inn í ræktina finnst mér gaman að fara í ta- batatíma.“ Brynja Magnús- dóttir er fagurkeri fram í fingurgóma. Fagurkeri með frábæra húð! Skartgripir frá Hildi Hafstein eru í uppáhaldi hjá Brynju. Blár er einn af uppáhalds litum Brynju. Falleg bók sem fæst á Net-A-Porter. Góður kaffibolli er gulls ígildi. Brynja Magnúsdóttir viðskiptastjóri á sölusviði ORF líftækni er nautnaseggur með skódellu að eigin sögn. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Chloé er eitt af uppáhalds- tískumerkjum Brynju. EGF Day serum frá Bioeffect.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.