Morgunblaðið - 08.05.2020, Page 12

Morgunblaðið - 08.05.2020, Page 12
finnist gaman að fylgjast með og fá innblástur. „Í gegnum árin hef ég verið með hálfgerða glasadellu og elska falleg glös og mér finnst voða gaman að drekka úr fallegu glasi.“ Helga segir að á góðum degi þegar hún vilji gera vel við sig komi hún sér vel fyrir í stofunni, kveiki upp í arninum og á kertum, setji fallega tónlist á og hafi húsið ilmandi. „Það er toppurinn. Svo á hinn bóginn finnst mér mjög gaman að taka til, setja tónlistina í botn og spila sem dæmi Prince. Þá fer ég eins og stormsveipur um heimilið og endurraða, tek til í hirslum og ástunda það sem er eins konar heilun fyrir mig. Að sjá hlutina verða betri í kring- um mig. Þessi áhugi minn hefur komið sér ágætlega í inniveru síðustu vikna.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í húsinu? „Ætli ég myndi ekki segja arinstofan. Það er ótrúlega kósý að sitja við arininn á dimmu vetrarkvöldi og njóta ilmsins sem frá honum kemur. Stundum á daginn finnst mér einnig voðalega notalegt að setjast í sófann og horfa út um gluggann en þaðan get ég séð Hallgrímskirkju turn. Það er róandi og notalegt að sjá turninn og hlusta á kirkjuklukkurnar hringja. Ætli það mætti ekki segja líka að eldshúsið sé einnig svolítill uppáhaldsstaður í húsinu. En kannski skiljanlega eyðum við mestum tíma í eld- húsinu og þar líður okkur líka mjög vel. Eyjan er stór og þar endum við einhvern veginn svo oft. Fyrir utan það augljósa að njóta máltíða saman þá klárum við oftast heimalærdóminn þar, ég og sonur minn litum mikið sam- an og svo er bara spjallað um lífið og tilveruna. Að ógleymdri Nespresso kaffivélinni minni sem fær mig til að stökkva á fætur alla morgna. Það eru þessir litlu hlutir sem maður hefur lært enn frekar að meta síðustu vikur.“ Helga er ekki mikill lestrarhestur sjálf, þótt hún njóti þess mikið og vel að klára bók endrum og sinnum. „Börnin mín eru í yngri kantinum og mér gefst lítill tími til að lesa, nema þá barnabækur. Annars er ég oft með alls kyns hlaðvörp í eyrunum sem mér finnst athyglisverð og gera heilmikið fyrir mig og slæ þannig tvær flugur í einu höggi.“  SJÁ SÍÐU 14 Ljósi sófinn í stofunni er frá Alter London og var það innanhússarkitekt- inn Hanna Stína sem sér- valdi hann inn á heimilið. Réttlætisgyðjan er úr Antik Kúrí- ósa sem móðir hennar rak á sínum tíma. West Elm-vasi sem Helga skreytir sjálf með mosa. Morgunblaðið/Árni Sæberg Grænu Hay-kertin minna Helgu á gömul áhugaverð tímabil. 12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.