Morgunblaðið - 08.05.2020, Page 22
H
elga Birgisdóttir, oft kölluð Gegga, starfaði í ein 36
ár á Landspítalanum sem hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðir. Sjálf hefur hún þurft að endurhanna líf
sitt eftir áfall sem hún varð fyrir og hefur sú líf-
reynsla að mörgu leyti skapað það líf sem hún lifir
í dag. Það er auðséð þegar maður hittir Helgu að hér er sjálf-
stæð og margbrotin kona á ferð, sem sinnir eigin rekstri, sífellt
leitandi og að bæta sig á öllum áhugasviðum.
„Ég átti mér lengi draum um að búa í gömlu húsi með sál. Sá
draumur rættist um síðustu aldamót er ég og sambýlismaður
minn skildum. Ég hafði ekki leitað lengi er ég fann drauma-
húsið og um leið og ég steig með stórutána inn fyrir dyrnar vissi
ég að hér vildi ég eiga heima. Líkt og andi hússins opnaði arm-
ana og byði mig velkomna. Húsið er yfir 120 ára gamalt og á
stríðsárunum var það flutt úr Skerjafirði inn í Skipasund þar
sem það stendur á stórri lóð. Húsið er tvær hæðir og ris og á ég
miðhæðina ásamt stórum hluta kjallarans. Á lóðinni er líka ann-
ar draumur minn sem er bjart og fallegt listagalleri. Mín litla
paradís á jörðu.“
Eldhúsið vinsælasti staðurinn í húsinu
Helga segir eldhúsið vinsælasta staðinn í húsinu.
„Í eldhúsinu er góður andi sem opnar á umræðu um ýmis
hjartans mál.
Þar vilja því gestir helst sitja og spjalla þótt stofan sé kósí.
Ég er með ágætis skrifstofuherbergi en enda alltaf í eldhúsinu
þar sem ég sit stóran hluta af deginum með tölvuna mína á fal-
lega borðdúknum frá ömmu. Ég horfi þar yfir veröndina á gall-
eríið mitt, stutt er í ísskápinn og kaffið, eins á salernið sem er út
frá eldhúsinu. Þannig voru mörg húsanna hönnuð í gamla
daga.“
Helgu leiðist aldrei en hún upplifði kulnun fyrir tveimur
árum.
„Ég er með marga bolta á lofti, en æfi mig þó í að slaka á þar
sem ég er að ná mér úr kulnun sem ég lenti í fyrir tveimur
árum.
Ég er að ljúka brautargengisnámi hjá Nýsköpunarmiðstöð,
sem hefur verið bæði fróðlegt og hvetjandi. Auk starfa minna
sem listakona og NLP-meðferðar- og markþjálfi kenni ég einn-
ig magnaða aðferð gegn streitu sem kallast „The Work“ og er
eftir bandaríska rithöfundinn Byron Katie. Ég er hrikalega for-
vitin og fróðleiksfús og því stöðugt að bæta við mig þekkingu
um meðferðarform. Ég er svo heppin að hafa ástríðuverkefni
sem heitir SMILER og er að endurútgefa bókina Smiler getur
öllu breytt, bæði á íslensku og ensku. Ég skrifaði reynslusögu
mína af kulnun í nýútgefna bók sem ber nafnið 10 Traits of
Highly Resilient People og er eftir dr. Andreu Pennington. Ég
fór líka nýlega á námskeið hjá Stílvopninu og uppgötvaði þar
leyndan hæfileika til að skrifa skrítnar skáldsögur, sem kom
mér skemmtilega á óvart.“
Helga segist þrífast á fegurð. Að hafa fallegt í kringum sig sé
sér nauðsynlegt til að halda í góða skapið.
„Ég hef lagfært eignina mína í rólegheitunum. Fimm árum
eftir að ég flutti inn opnaði ég á milli hæða, en áður var ekki
innangengt í kjallarann. Ég braut niður veggi og málaði. Garð-
urinn var ansi druslulegur og elskulegur þáverandi kærasti
hjálpaði mér að byggja góðan pall. Húsið var upphaflega við-
arlitað en fyrir tveimur árum var það málað svart með sólgulri
hurð. Ég kalla húsið „Black Heaven“. Mér er sagt að eitt sinn
hafi þetta hús verið það ljótasta í götunni en síðan var það
stækkað og klætt að utan.“
Á heimili Helgu er mikið af listmunum, flestir eftir hana
sjálfa. Bæði leirmunir og málverk.
„Sófaborðið er hluti af útskriftarverki mínu úr Listháskól-
anum. Það verk hét Manneldi og samanstóð af skúlptúrum og
hafði ekkert með húsgögn að gera þá.“
Hrifin af notuðum hlutum
Helga lýsir stílnum sínum sem bæði gamaldags og einnig
persónulegum.
„Ég hrífst af notuðum hlutum og sérstæðum listmunum.
Kósíheit, kertaljós og hlýir litir eru málið. Ég kaupi sjaldan
nýtt og er enn með um 30 ára gamalt sófasett og rispað eldhús-
borð frá systur minni sem ég klæði með fallega dúknum frá
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Listakonan Helga, eða
Gegga eins og hún er oft
kölluð, kann hvergi betur
við sig en í vinnustofunni.
Húsið orðið það sem
hana dreymdi um
Helga Birgisdóttir listakona og NLP-meðferðar- og markþjálfi er að lifa drauminn. Kaflaskipti urðu í lífi
hennar þegar hún ákvað að breyta til og vinna að heiman. Þá hafði hún unnið í nokkra áratugi innan
heilbrigðsgeirans. Saga hennar er saga sjálfstæðrar konu sem hefur lært að setja sig í fyrsta sætið.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Antík náttborð frá ömmu og afa Helgu fara vel
með mósaíkspeglum sem Helga gerði úr leir.
SJÁ SÍÐU 24
Leirlistaverkið ofan á antíkhúsgögnum
vísar í leg kvenna og heitir Manneldi.
Listaverk eftir Helgu úr
leir. Verkið heitir Mann-
eldi og er vísun í leg konu.
Vinnustofa Helgu
er alger paradís.
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020