Morgunblaðið - 08.05.2020, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020
og það endar aldrei vel, það er augljóst. Alltaf
að gera það sem gerir gagn og er hjálplegt, það
er ágætis mantra.“
Ertu góð að útbúa staði til að slappa af heima?
„Ég hef nú aldrei verið þekkt fyrir að slappa
mikið af, en af því að maður á að reyna að bæta
það sem maður getur bætt þá hef ég reynt að
leggja áherslu á að læra að slappa af líka. Þegar
ég fæ mér kaffibolla á morgnana kemur augna-
blik sem ég reyni að einbeita mér að bara að
einu í einu. Þá kem ég stundum inn smá „mind-
fulness“ og þá sest ég við gluggann og horfi út á
hafið og yfir á Esjuna og Snæfellsjökul. Það er
án efa uppáhaldsstaðurinn minn í íbúðinni.“
Hægeldaður heimilismatur í uppáhaldi
Hvaða bók lastu síðast?
„Síðasta skáldsaga sem ég las var The
Nightingale eftir Kristin Hannah. Saga sem
fjallar um tvær systur á tímum seinni heims-
styrjaldarinnar og segir frá hlutverki og stöðu
kvenna í stríðinu.
Síðasta bók sem ég las var hins vegar On
Fire eftir Naomi Klein sem er fréttamaður og
umhverfissinni. Hún fjallar um umhverfisvána
og hvernig efnahagskerfi heimsins þurfa í raun
að kollvarpast til að takast á við hana. “
Hvað keyptir þú þér síðast inn á heimilið?
„Ljós sem er í eldhúsinu.“
Áttu gott ráð til að róa taugarnar, sofa betur
og slaka á?
„Ég reyni að koma hugleiðslu fyrir á hverj-
um degi. Þá meina ég svona meðvitaða hug-
leiðslu sem er bara hugleiðsla, en mér finnst ég
alveg hugleiða líka þegar ég er að hlaupa, hjóla
eða synda. En þá hef ég notað Headspace-
appið til að koma mér á sporið og svo fer ég líka
mikið inn á mindful.org og finn góðar hug-
leiðsluaðferðir þar. Þá hlusta ég á einn hug-
leiðsluþátt áður en ég sofna. En ég finn mikinn
mun á mér þegar ég stunda hugleiðslu. Það ró-
ar hugann og gerir það sama og hreyfing að því
leyti að mér finnst ég vera gera eitthvað sem er
á mínu valdi. Ég er að höndla aðstæður.“
Ertu mikið í eldhúsinu?
„Ó já! Ég elska að elda og finnst fátt eins
skemmtilegt og að bjóða fólki í mat.“
Hver er uppáhaldsrétturinn þinn þar?
„Mér finnst skemmtilegast að gera hægeld-
aðan heimilismat og sennilega er Boeuf Bo-
urguignon í uppáhaldi. Ég hef mjög gaman af
að elda franskan klassískan mat. Sennilega af
því Julia Child er í miklu uppáhaldi hjá mér. En
núna er ég með æði fyrir að steikja góða fallega
rauðsprettu og hafa ferskt salat með. Svo hef
ég alltaf gaman af að baka og þá vil ég hafa
strákana mína með mér í því.“
Gaman að bjóða fólki í mat
Hvað gerir þú skemmtilegt á kvöldin og um
helgar?
„Þegar maður æfir svona mikið eins og ég þá
er helgardjammið laugardagsmorgunn klukk-
an 7 með æfingafélögunum í Ægi3. Ég er að
æfa þríþraut og þá tökum við svokallaðar
brikk-æfingar á laugardagsmorgnum. Það er
hjól og hlaup strax í kjölfarið. Þetta eru um það
bil þriggja tíma æfingar. Það er klikkað stuð!
Stefnan er að fara til Danmerkur í júní og taka
hálfan járnkarl, ef farbanni verður aflétt. En
þetta er með því skemmtilegra sem ég hef gert,
að æfa og keppa í Ironman. En svo elska ég líka
að fara á skíði og nýjasta æðið mitt er fjalla-
skíði. Kvöldin eru svo bara afslöppun uppi í sófa
að horfa á eitthvað gott í sjónvarpinu eða enn
betra að bjóða fólki í mat.“
Áttu gott ráð fyrir þá sem eiga erfitt með að
láta sér líða vel einir heima?
„Já, algjörlega. Það er eitt af mikilvægari
hlutverkum okkar að láta okkur líða vel með
sjálfum okkur og til mikils að vinna að líða vel
einum líka. Þrátt fyrir að við séum félagsverur
þá lærum við mest ein og flestar góðar hug-
myndir fæðast þannig. Til að öðlast styrk og
færni í að vera einn mæli ég eindregið með hug-
leiðslu eins og Headspace og mindful.org. Svo
er það heilmikil hugleiðsla og mannbætandi að
lesa góðar bækur. En það er líka mikilvægt að
vera í góðum samskiptum og sennilega hefur
aldrei verið jafn gott að vera í einangrun og ein-
veru og núna, því við getum svo auðveldlega
verið í félagslegum samskiptum þó að við séum
líkamlega einangruð. Ég held það sé góður tími
núna að heyra í fólki sem maður hefur ekki
heyrt í lengi, nýta tímann til að efla sambönd og
athuga með fólkið sitt í leiðinni. Núna er tíminn
að læra eitthvað nýtt, taka námskeið á netinu
eða fara bara á YouTube. Ég hef alltaf ætlað að
nýta mér að hlusta á hljóðbók og prjóna á sama
tíma og þá þarf ég að kíkja á kennslumyndbönd
til að rifja upp. Finnst það bara frábær hug-
mynd að slá tvær flugur í einu höggi. En ég
held að við græðum bara á að láta okkur líða vel
í einveru. Það er bara styrkjandi fyrir sjálfs-
traustið og getur verið mjög frjór tími. Þetta
gæti alveg orðið mjög skapandi tímabil hjá okk-
ur öllum.“
Foreldrarnir fyrimyndirnar í lífinu
Áttu þér fyrirmyndir í lífinu?
„Agjörlega. Foreldra mína. Þau eru gott og
vandað fólk í alla staði og svo augljóslega topp
uppalendur! Allar konurnar sem komu á undan
okkur og ruddu brautina, hvort sem var hljóð-
látt eða upphátt. Vigdís Finnbogadóttir er nátt-
úrlega hetja sem við ungar konur í dag lítum til
og sjáum núna hversu magnað afrek hennar
var. Einstæð móðir í karllægum heimi og bara
kjarkurinn að fara út í þetta verkefni og að tak-
ast það er ótrúlegt afrek. Sem einstæð móðir og
kona ber ég ótrúlega virðingu fyrir henni. Mér
fannst Karen Blixen alveg ótrúlega flott og Out
of Africa er ein af mínum uppáhaldsmyndum.
Hún fór ein inn í mjög karllægan karlrembu-
heim og lét það ekki stöðva sig í að gera það
sem hún vildi. Ég man eftir því þegar ég var lít-
il stelpa í sveit og maður sá fljótlega að strákar
máttu meira og var treyst fyrir meiru, að mað-
ur þurfti að láta vaða ef maður vildi fá sömu
tækifæri og ekki missa af neinu. Ég held að
konur í dag séu að sýna nákvæmlega þetta og
veigra sér ekki við að vera með allt á sinni
könnu og fara í fjallaferðir, keppa í erfiðum
keppnum á hjólum, gönguskíðum, crossfit,
hlaupum eða hvað eina, ofan á allt annað. Og
það er ekki síst út af þessum fyrirmyndum sem
fóru á móti straumnum og það þýðir ekkert að
kvarta eða skæla ef maður vill sömu tækifæri
og strákarnir. Þannig er það bara. Þetta eru
allt mínar fyrirmyndir.“
Rautt leðursófasett frá
ítalska merkinu De Sede.
Málverkið fyrir ofan
sjónvarpið er eftir
listakonuna Soffíu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðrún hjólar eina 30 km
á svölunum þegar hún tek-
ur hjólaæfingar þar.