Morgunblaðið - 08.05.2020, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.05.2020, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020 og það endar aldrei vel, það er augljóst. Alltaf að gera það sem gerir gagn og er hjálplegt, það er ágætis mantra.“ Ertu góð að útbúa staði til að slappa af heima? „Ég hef nú aldrei verið þekkt fyrir að slappa mikið af, en af því að maður á að reyna að bæta það sem maður getur bætt þá hef ég reynt að leggja áherslu á að læra að slappa af líka. Þegar ég fæ mér kaffibolla á morgnana kemur augna- blik sem ég reyni að einbeita mér að bara að einu í einu. Þá kem ég stundum inn smá „mind- fulness“ og þá sest ég við gluggann og horfi út á hafið og yfir á Esjuna og Snæfellsjökul. Það er án efa uppáhaldsstaðurinn minn í íbúðinni.“ Hægeldaður heimilismatur í uppáhaldi Hvaða bók lastu síðast? „Síðasta skáldsaga sem ég las var The Nightingale eftir Kristin Hannah. Saga sem fjallar um tvær systur á tímum seinni heims- styrjaldarinnar og segir frá hlutverki og stöðu kvenna í stríðinu. Síðasta bók sem ég las var hins vegar On Fire eftir Naomi Klein sem er fréttamaður og umhverfissinni. Hún fjallar um umhverfisvána og hvernig efnahagskerfi heimsins þurfa í raun að kollvarpast til að takast á við hana. “ Hvað keyptir þú þér síðast inn á heimilið? „Ljós sem er í eldhúsinu.“ Áttu gott ráð til að róa taugarnar, sofa betur og slaka á? „Ég reyni að koma hugleiðslu fyrir á hverj- um degi. Þá meina ég svona meðvitaða hug- leiðslu sem er bara hugleiðsla, en mér finnst ég alveg hugleiða líka þegar ég er að hlaupa, hjóla eða synda. En þá hef ég notað Headspace- appið til að koma mér á sporið og svo fer ég líka mikið inn á mindful.org og finn góðar hug- leiðsluaðferðir þar. Þá hlusta ég á einn hug- leiðsluþátt áður en ég sofna. En ég finn mikinn mun á mér þegar ég stunda hugleiðslu. Það ró- ar hugann og gerir það sama og hreyfing að því leyti að mér finnst ég vera gera eitthvað sem er á mínu valdi. Ég er að höndla aðstæður.“ Ertu mikið í eldhúsinu? „Ó já! Ég elska að elda og finnst fátt eins skemmtilegt og að bjóða fólki í mat.“ Hver er uppáhaldsrétturinn þinn þar? „Mér finnst skemmtilegast að gera hægeld- aðan heimilismat og sennilega er Boeuf Bo- urguignon í uppáhaldi. Ég hef mjög gaman af að elda franskan klassískan mat. Sennilega af því Julia Child er í miklu uppáhaldi hjá mér. En núna er ég með æði fyrir að steikja góða fallega rauðsprettu og hafa ferskt salat með. Svo hef ég alltaf gaman af að baka og þá vil ég hafa strákana mína með mér í því.“ Gaman að bjóða fólki í mat Hvað gerir þú skemmtilegt á kvöldin og um helgar? „Þegar maður æfir svona mikið eins og ég þá er helgardjammið laugardagsmorgunn klukk- an 7 með æfingafélögunum í Ægi3. Ég er að æfa þríþraut og þá tökum við svokallaðar brikk-æfingar á laugardagsmorgnum. Það er hjól og hlaup strax í kjölfarið. Þetta eru um það bil þriggja tíma æfingar. Það er klikkað stuð! Stefnan er að fara til Danmerkur í júní og taka hálfan járnkarl, ef farbanni verður aflétt. En þetta er með því skemmtilegra sem ég hef gert, að æfa og keppa í Ironman. En svo elska ég líka að fara á skíði og nýjasta æðið mitt er fjalla- skíði. Kvöldin eru svo bara afslöppun uppi í sófa að horfa á eitthvað gott í sjónvarpinu eða enn betra að bjóða fólki í mat.“ Áttu gott ráð fyrir þá sem eiga erfitt með að láta sér líða vel einir heima? „Já, algjörlega. Það er eitt af mikilvægari hlutverkum okkar að láta okkur líða vel með sjálfum okkur og til mikils að vinna að líða vel einum líka. Þrátt fyrir að við séum félagsverur þá lærum við mest ein og flestar góðar hug- myndir fæðast þannig. Til að öðlast styrk og færni í að vera einn mæli ég eindregið með hug- leiðslu eins og Headspace og mindful.org. Svo er það heilmikil hugleiðsla og mannbætandi að lesa góðar bækur. En það er líka mikilvægt að vera í góðum samskiptum og sennilega hefur aldrei verið jafn gott að vera í einangrun og ein- veru og núna, því við getum svo auðveldlega verið í félagslegum samskiptum þó að við séum líkamlega einangruð. Ég held það sé góður tími núna að heyra í fólki sem maður hefur ekki heyrt í lengi, nýta tímann til að efla sambönd og athuga með fólkið sitt í leiðinni. Núna er tíminn að læra eitthvað nýtt, taka námskeið á netinu eða fara bara á YouTube. Ég hef alltaf ætlað að nýta mér að hlusta á hljóðbók og prjóna á sama tíma og þá þarf ég að kíkja á kennslumyndbönd til að rifja upp. Finnst það bara frábær hug- mynd að slá tvær flugur í einu höggi. En ég held að við græðum bara á að láta okkur líða vel í einveru. Það er bara styrkjandi fyrir sjálfs- traustið og getur verið mjög frjór tími. Þetta gæti alveg orðið mjög skapandi tímabil hjá okk- ur öllum.“ Foreldrarnir fyrimyndirnar í lífinu Áttu þér fyrirmyndir í lífinu? „Agjörlega. Foreldra mína. Þau eru gott og vandað fólk í alla staði og svo augljóslega topp uppalendur! Allar konurnar sem komu á undan okkur og ruddu brautina, hvort sem var hljóð- látt eða upphátt. Vigdís Finnbogadóttir er nátt- úrlega hetja sem við ungar konur í dag lítum til og sjáum núna hversu magnað afrek hennar var. Einstæð móðir í karllægum heimi og bara kjarkurinn að fara út í þetta verkefni og að tak- ast það er ótrúlegt afrek. Sem einstæð móðir og kona ber ég ótrúlega virðingu fyrir henni. Mér fannst Karen Blixen alveg ótrúlega flott og Out of Africa er ein af mínum uppáhaldsmyndum. Hún fór ein inn í mjög karllægan karlrembu- heim og lét það ekki stöðva sig í að gera það sem hún vildi. Ég man eftir því þegar ég var lít- il stelpa í sveit og maður sá fljótlega að strákar máttu meira og var treyst fyrir meiru, að mað- ur þurfti að láta vaða ef maður vildi fá sömu tækifæri og ekki missa af neinu. Ég held að konur í dag séu að sýna nákvæmlega þetta og veigra sér ekki við að vera með allt á sinni könnu og fara í fjallaferðir, keppa í erfiðum keppnum á hjólum, gönguskíðum, crossfit, hlaupum eða hvað eina, ofan á allt annað. Og það er ekki síst út af þessum fyrirmyndum sem fóru á móti straumnum og það þýðir ekkert að kvarta eða skæla ef maður vill sömu tækifæri og strákarnir. Þannig er það bara. Þetta eru allt mínar fyrirmyndir.“ Rautt leðursófasett frá ítalska merkinu De Sede. Málverkið fyrir ofan sjónvarpið er eftir listakonuna Soffíu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðrún hjólar eina 30 km á svölunum þegar hún tek- ur hjólaæfingar þar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.