Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2020, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2020
08.00 Strumparnir
08.20 Adda klóka
08.45 Blíða og Blær
09.05 Dóra og vinir
09.30 Mæja býfluga
09.40 Zigby
09.55 Mia og ég
10.15 Lína langsokkur
10.40 Latibær
11.05 Lukku láki
11.30 Ævintýri Tinna
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.05 Nágrannar
13.25 Nágrannar
13.50 Borgarstjórinn
14.15 Friends
14.40 Friends
15.00 Sápan
15.35 The Great British Bake
Off
16.30 60 Minutes
17.40 Víglínan
18.20 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.50 Sportpakkinn
19.00 Framkoma
19.30 The Greatest Dancer
20.40 Between Us
21.25 Killing Eve
22.10 Gasmamman
23.00 Homeland
23.45 Manifest
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Eitt og annað af ferða-
þjónustu
20.30 Eitt og annað frumlegt
21.00 Eitt og annað af ferða-
þjónustu
21.30 Tónlistaratriði úr Föstu-
dagsþættinum
Endurt. allan sólarhr.
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
20.00 Þjóðleikhúsið í 70 ár (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.00 Undir yfirborðið (e)
21.00 Eldhugar: Sería 3 (e)
21.30 Hugleiðsla með Auði
Bjarna (e)
21.45 Bókin sem breytti mér
(e)14.05 Gordon Ramsay’s 24
Hours to Hell and Back
14.50 Lifum lengur
15.20 Smakk í Japan
16.15 Malcolm in the Middle
16.35 Everybody Loves
Raymond
17.00 How I Met Your Mother
17.25 Skandall
18.15 Mannlíf
18.40 Áskorun
19.10 Love Island
20.10 Jarðarförin mín
20.45 This Is Us
21.35 Law and Order: Special
Victims Unit
22.25 Ray Donovan
23.20 The Walking Dead
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Fella-
og Hólakirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Glans.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu: Heima
í Hörpu IV.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Óborg.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Fólk og fræði.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.29 Lalli
07.36 Tulipop
07.40 Molang
07.43 Klingjur
07.54 Minnsti maður í heimi
07.55 Hæ Sámur – 47. þáttur
08.02 Hrúturinn Hreinn
08.09 Bréfabær
08.20 Letibjörn og læmingj-
arnir
08.27 Stuðboltarnir
08.38 Konráð og Baldur
08.50 Nellý og Nóra
09.00 Múmínálfarnir
09.23 Ronja ræningjadóttir
09.35 Krakkafréttir vikunnar
09.50 Skólahreysti
10.15 Herra Bean
10.30 Menningin – samantekt
11.00 Silfrið
12.10 Leikhúsveisla í stofunni
13.45 Poppkorn – sagan á
bak við myndbandið
14.00 Skólatónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands
15.35 Sirkus Íslands – Heima
er best
16.40 Alla leið
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Söguspilið
18.25 Lífsins lystisemdir
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Landinn
20.15 Úti
20.45 Howards End
21.45 Finnskir bíódagar –
Handan vonar
23.25 Kafbáturinn
13 til 16 Pétur Guðjóns Góð tónlist og létt spjall á
sunnudegi.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með DJ Dóru Júlíu
Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir vinsæl-
ustu lög landsins á K100. Tónlistinn er eini opinberi
vinsældalisti landsins, unninn upp úr gögnum frá Fé-
lagi hljómplötuframleiðanda.
18 til 00 K100 tónlist Besta blandan af tónlist á
K100 í allt kvöld.
Vilhjálmur Ingi Vil-
hjálmsson, for-
maður Hinsegin
daga, segir stjórn
daganna, sem
verða haldnir 4.-9.
ágúst, nú funda
stíft til að skipu-
leggja dagskrána
en bíða frekari
upplýsinga frá yfir-
völdum vegna
COVID-19. Stað-
festir hann að
stjórnin sé að miða við að leyfi verði fyrir 2.000
manns og segir sérstakt að það verði ekki að hægt að
halda gleðigönguna með sama sniði og venjulega á
tuttugu ára afmæli göngunnar sem er í ár.
Nánar er fjallað um málið á fréttavef K100, K100.is.
Leita leiða til að fagna
stórafmæli gleðigöngunnar
Andlát leikkonunnar NatalieWood árið 1981 hefur ávalltverið sveipað hulu. Wood
drukknaði við Catalina-eyju að næt-
urlagi og enn er ekki vitað hvað
gerðist. Í vikunni var frumsýnd
heimildarmynd um leikkonuna, Na-
talie Wood: What Remains Behind.
Á bak við myndina er Natasha Greg-
son Wagner, dóttir Wood, sem var
11 ára þegar móðir hennar dó.
Mikið var fjallað um andlátið í fjöl-
miðlum. Wood hafði verið úti að
skemmta sér um kvöldið ásamt
manni sínum, leikaranum Robert
Wagner, og leikaranum Christopher
Walken og mun mikið hafa gengið á.
Natasha segir að það vaki ekki fyrir
sér að varpa ljósi á kvöldið sem móð-
ir hennar lést heldur fjalla um líf
hennar og afrek. „Við fórum ekki af
stað undir þeim formerkjum að kom-
ast að því „hvað gerðist?“ því að við
vitum hvað gerðist,“ segir Natasha í
viðtali við The Guardian.
Í myndinni segir Robert Wagner,
sem nú er níræður, frá atburða-
rásinni um nóttina, drykkjurifrildi
við Walken, sem hafi leyst farsæl-
lega, en hann gengið einn til náða.
Robert og Natasha geta sér til þess
að Natalie hafi farið út til að binda
árabát við hlið snekkjunnar
Splendour, sem þau voru á. Við það
hafi hún hrasað, rekið höfuðið í bát-
inn, fallið sjóinn og drukknað.
Niðurstaða lögreglunnar í Kali-
forníu var sú á sínum tíma að Natalie
hefði dáið af slysförum.
Rannsókn málsins var hins vegar
hafin á ný 30 árum síðar eftir að
skipstjóri snekkjunnar bar vitni um
að hann hefði heyrt rifrildi um kvöld-
ið. Árið eftir var dánarvottorðinu
breytt og talað um „drukknun og
aðra óráðna þætti“ sem dánarorsök.
Árið 2018 var málið tekið upp að
nýju vegna nýs vitnisburðar og var
sérstaklega tekið fram að áhugi lög-
reglu beindist að Robert Wagner.
John Corina lögregluforingi sagði þá
að hann væri þess fullviss að hún
hefði ekki dottið í sjóinn af sjálfs-
dáðum. Corina lést í fyrra og hefur
lítið frést af rannsókninni eftir það.
Systir Natalie, Lana Wood, er
sannfærð um að henni hafi verið
hrint í sjóinn og grunar Robert Wag-
ner. Hún á í deilum við fjölskylduna
og vildi ekki koma fram í myndinni.
Catalina er eyja undan ströndum
Kaliforníu og tilheyrir Los Angeles-
sýslu. Í safni á eyjunni má sjá mynd-
ir af Natalie Wood og fleira frægu
fólki á borð við Charlie Chaplin, sem
fór þar í frí, og Marilyn Monroe, sem
átti heima þar í bænum Avalon í
nokkra mánuði ásamt fyrsta eigin-
manni sínum, James Dougherty.
Fyrr á öldum var eyjan bækistöð
sjóræningja og smyglara. Árið 1919
keypti tyggjókóngurinn William
Wrigley eyjuna og reisti þar spilavíti
og kvikmyndahús, sem síðar varð
fyrsta bíóið til að sýna hljóðmyndir.
Natalie Wood og Robert Wagner
fóru þangað iðulega, meðal annars í
seinni brúðkaupsferð sína. Þau gift-
ust fyrst 1957, skildu 1962 og gengu
svo aftur í hjónaband 1972.
Natalie Wood var barnastjarna og
byrjaði að leika fimm ára. Hún varð
heimsfræg fyrir leik sinn í myndinni
Rebel Without a Cause með James
Dean og var aðeins fimmtán ára þeg-
ar hún hlaut tilnefningu til Ósk-
arsverðlauna fyrir bestan leik í
aukahlutverki fyrir frammistöðu
sína í myndinni. Alls urðu tilnefning-
arnar til Óskarsverðlaunanna þrjár
á ferlinum. Wood var aðeins 43 ára
þegar hún lést.
Hjónin Robert Wag-
ner og Natalie Wood
saman í Hollywood.
AP
HEIMILDAMYND UM LEIKKONUNA NATALIE WOOD
Andlát stjörnunn-
ar enn ráðgáta
Natasha Gregson Wagner veitir viðtal á Sundance-kvikmyndahátíðinni í janúar
um heimildarmyndina um móður sína, Natalie Wood: What Remains Behind.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 18. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105, kata@mbl.is
Blaðið verður með góðum
upplýsingum um garðinn,
pallinn, heita potta,
sumarblómin, sumar-
húsgögn og grill ásamt
ótal girnilegum uppskriftum.
Garðablað
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 22. maí
SÉRBLAÐ