Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2020, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2020
LESBÓK
KVIKMYNDIR Leikstjórinn Kevin Smith, sem frægastur er
fyrir kult-kvikmyndirnar Clerks, Mallrats og Chasing Amy,
situr ekki auðum höndum á tímum kórónuveirunnar og
samkomubanns. Hann lauk nýverið við fyrsta uppkast
að handriti fyrir nýja mynd sem byggist á myndinni
Mallrats og nefnist Twilight of the Mallrats. Sagði
Smith í viðtali við vefmiðilinn ComicBook.com að allar
persónur upprunalegu myndarinnar myndu láta
sjá sig, þar á meðal Shannon Hamilton sem Ben
Affleck lék eftirminnilega. Ekkert er þó staðfest
í þessum efnum, að sögn Smith. Gaman verður að
sjá hvort Smith takist að skapa sömu stemningu í
þessari mynd um verslunarmiðstöðvarhangsið og
hann gerði í þeirri fyrri árið 1995.
Ljósaskipti í mollinu
Kevin Smith á sér
fjölda aðdáenda. AFP
VÍDEÓSAMTÖL Persónur og leikendur þátt-
anna Parks and Recreation endurnýjuðu kynnin
í sérstökum aukaþætti á dögunum, fimm árum
eftir að síðustu þáttaröð þáttanna lauk. Fastur
heima í sóttkví ákvað Mike Schur, höfundur
þáttanna, að kalla saman handritshöfunda
þeirra (með vídeósamtali) og skrifa þátt. Leik-
arar þáttanna hittust svo upp á kórónumátann (í
gegnum tölvu) og tóku upp þáttinn sem svo var
sýndur á NBC-sjónvarpsstöðinni. Markmiðið var
ekki einungis að gleðja aðdáendur heldur einnig
að safna peningum til styrktar góðu málefni,
Feeding America, og sjá Bandaríkjamönnum
fyrir mat á þessum erfiðu tímum.
Leika til styrktar góðu málefni
Amy Poehler sneri aftur sem Leslie Knope.
Ljósmynd/Wikipedia
Þegar Chicago Bulls unnu annanNBA-meistaratitil sinn í röðog þann fimmta á sjö árum í
júní 1997 var ekki alls kostar víst að
liðið kæmi saman í sömu mynd um
haustið.
Framtíð þjálfarans, Phil Jackson,
var í mikilli óvissu enda hann samn-
ingslaus og mjög stirt var á milli hans
og framkvæmdastjóra liðsins, Jerry
Krause. Vildu einhverjir meina að
Krause, sem setti bæði þetta lið og
Bulls-liðið sem vann titilinn þrjú ár í
röð 1991-93 saman, væri ósáttur við
að fá ekki þá athygli sem hann átti
skilið fyrir árangurinn.
Athyglina fengu Jackson og leik-
menn liðsins. Þar ber hæst að nefna
Michael Jordan, sem enn í dag er af
mörgum talinn vera besti körfuknatt-
leiksmaður sögunnar. Jordan gaf það
strax út eftir tímabilið að hann hygð-
ist hætta í körfubolta ef Jackson
þjálfaði ekki liðið. Hann hefði einfald-
lega engan áhuga á því að spila fyrir
annan þjálfara.
Ofan á þetta var næstbesti leik-
maður liðsins og hægri hönd Jordans,
Scottie Pippen, ósáttur við laun sín
hjá liðinu. Hafði hann skrifað undir
samning við liðið árið 1991 til sjö ára
og því dregist aftur úr þeim sem
sömdu síðar, enda hækkuðu laun leik-
manna mikið á 10. áratugnum. Hann
var því aðeins númer 122 á lista yfir
launahæstu leikmenn deildarinnar
þrátt fyrir að vera einn besti leik-
maður hennar, jafnvel sá næstbesti, á
eftir Jordan. Þá hafði Krause ítrekað
reynt að skipta honum frá liðinu og
andaði því köldu á milli þeirra kappa.
Eins og flestir körfuboltaunnendur
þekkja kom liðið saman um haustið
og vann titilinn þriðja árið í röð ári
seinna og vann Jordan þar með sjötta
titil sinn. Það merkilega er að Bulls-
liðið, og þar með Jordan sjálfur, veitti
myndatökuliði áður óþekktan aðgang
að liðinu þetta tímabilið. Loks nú,
rúmlega tuttugu árum seinna, fær al-
menningur að sjá afraksturinn í
heimildarþáttaröðinni The Last
Dance, sem fjallar um síðasta tímabil
Jordan, Jackson og Pippen hjá Bulls.
Vill minna á sig
Birting myndefnisins sem safnað var
tímabilið 1997-98 var frá upphafi háð
samþykki Jordans. Þættirnir fóru því
ekki í vinnslu fyrr en árið 2016 þegar
Jordan gaf loks leyfi sitt. Þá áttu
þættirnir ekki að vera sýndir fyrr en í
júní á þessu ári, þegar úrslitaeinvígi
NBA-deildarinnar færi fram. En
þegar íþróttaheimurinn lagðist í
dvala var útgáfu þáttanna flýtt og allt
kapp lagt á að klára þá sem fyrst. Var
því vinnslu allra þátta ekki lokið þeg-
ar tveir fyrstu voru fóru í loftið 20.
apríl síðastliðinn.
Athygli vekur að daginn sem Jor-
dan gaf grænt ljós á þættina fór fram
skrúðganga til að fagna fyrsta meist-
aratitli Cleveland Cavaliers og þriðja
titli LeBron James, sem oft er borinn
saman við Jordan. Tímasetningin
gæti verið tilviljun en líklegt verður
að teljast að með þátttöku sinni í út-
gáfu þáttanna vilji Jordan minna fólk
á að hann sé sá besti sem uppi hefur
verið, ekki James.
Hefur leikstjóri þáttanna, Jason
Hehir, raunar hlotið nokkra gagnrýni
fyrir að leyfa Jordan að stjórna frá-
sögninni um of. Jordan réð því ekki
hverja var rætt við fyrir þættina en
hann virðist alltaf fá að eiga síðasta
orðið þegar umdeild atvik eru rædd,
t.d. í deilum sínum við Isiah Thomas
eftir frægt atvik í úrslitum Austur-
deildarinnar 1991.
Jordan var og er mikill keppnis-
maður. Svo mikill að hann átti það til
að fara illa með liðsfélaga sína ef þeir
stóðu sig ekki nógu vel að hans mati.
Fór hann illa með unga leikmenn, lét
þá heyra það og gekk í einhverjum
tilfellum of langt. Hvort það var
Síðasti dansinn
Nýir heimildarþættir um Chicago Bulls og Michael Jordan hófu
göngu sína á Netflix í apríl. Áður óséð myndefni frá síðasta tímabili
Jordans er notað og ferill hans og liðsfélaga skoðaður.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Michael Jordan, Dennis Rodman og Scottie Pippen ræða málin í leik með Bulls.
AFP