Fréttablaðið - 07.01.2021, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —4 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 7 . J A N Ú A R 2 0 2 1
Krón
an
mæli
r með
!Bestar
núna!
Mmm ...
Stuðnignsmaður Donalds Trump sat með MAGA-húfu á höfði í stól þingforseta Bandaríkjaþings, meðan heimsbyggðin fylgdist agndofa með atburðum í Washington. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
BANDARÍKIN Algert upplausnar-
ástand ríkti við þinghús Bandaríkj-
anna í gærkvöld þar sem nýkjörið
þing var saman komið til að stað-
festa kjör Joes Biden í embætti for-
seta. Stuðningsmönnum Donalds
Trump Bandaríkjaforseta tókst að
komast inn í bandaríska þinghúsið
og brjóta sér leið inn í þingsalinn.
Stuttu áður en mótmælendur
komust inn í þinghúsið höfðu þeir
hlýtt á hvatingarræðu Donalds
Trump þar sem hann sagðist ekki
ætla að viðurkenna ósigur í forseta-
kosningunum.
Heima- og þjóðarvarnarlið voru
kölluð út á níunda tímanum til að
reyna að ná tökum á ástandinu en
vopnaðir lögreglumenn gátu ekki
varnað lýðnum inngöngu í þing-
salinn. Mike Pence varaforseti var
f luttur á brott af öryggisástæðum
og þingmenn urðu að leita skjóls.
Þingmenn beggja f lokka og við-
mælendur fjölmiðla vestanhafs
lýstu háttseminni sem tilraun til
valdaráns og þingfréttaritarar
stærstu miðlanna sögðust aldrei
hafa upplifað neitt þessu líkt á ferli
sínum.
Joe Biden ávarpaði þjóðina upp
úr klukkan níu að íslenskum tíma í
gærkvöldi og þrýsti einnig á fráfar-
andi forseta að ávarpa stuðnings-
menn sína og biðja þá að yfirgefa
þinghúsið og láta af óeirðum.
Fjölmiðlar greindu einnig frá því
að ráðgjafar forsetans hefðu beðið
hann að senda út skýrari skilaboð
en hann hefði þráast við.
Donald Trump f lutti svo stutt
sjónvarpsávarp rétt fyrir hálf tíu
í gærkvöldi sem innihélt hvoru
tveggja, fullyrðingar um að kosn-
ingunum hefði verið stolið og
beiðni um að mótmælendur héldu
friðinn og færu heim. Ekkert lát var
á óeirðum á götum Washington
þegar Fréttablaðið fór í prentun í
gærkvöldi og líklegt að atburðir
hafi verið að skýrast eitthvað inn
í nóttina.
Fréttastöðin CNN greindi frá
því að kona væri alvarlega slösuð
eftir að hafa verið skotin í bringuna
fyrir utan þinghúsið en frekari
upplýsingar um meiðsl á fólki
lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í
prentun.
– aá / sjá síðu 6
Ruddust inn í Bandaríkjaþing
Þingmenn bæði Repúblikana og Demókrata lýstu innrás fjölda manns í þinghúsið í Washington sem
tilraun til valdaráns. Herinn var í viðbragðsstöðu og bæði heima- og þjóðarvarnarlið voru kölluð út. HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið í handbolta laut í lægra haldi 26-24
þegar liðið sótti Portúgal heim í
undankeppni EM 2022 í gær.
Liðin skiptust á að hafa forystuna
framan af fyrri hálf leik en portú-
galska liðið náði þriggja marka for-
skoti þegar skammt var eftir af fyrri
hálfleiknum.
Ísland náði að jafna metin þegar
skammt var eftir af leiknum en
heimamenn voru hins vegar sterk-
ari aðilinn á lokakafla leiksins.
Bjarki Már Elísson og Elvar Örn
Jónsson voru markahæstir hjá
íslenska liðinu með sex mörk hvor.
Portúgal er á toppi riðilsins með
fullt hús stiga eftir þrjá leiki en
Ísland hefur tvö stig eftir tvo leiki.
Liðin mætast á nýjan leik í undan-
keppninni að Ásvöllum á sunnu-
daginn kemur. – hó
Ísland þurfti að
sætta sig við tap
gegn Portúgal
Donald Trump var
sakaður um að hafa hvatt til
óeirðanna í ræðu þar sem
hann beindi orðum sínum
til mótmælenda í gær. Hann
var tregur til að biðja fólk að
róa sig.