Fréttablaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 6
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
35” BREYTTUR 33” BREYTTUR ÓBREYTTUR
JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK – VERÐ FRÁ: 11.690.000 KR.
• 3.0 V6 250 HÖ. DÍSEL, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• 570 NM TOG
• HÁTT OG LÁGT DRIF
• RAFDRIFIN LÆSING Í AFTURDRIFI
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN AÐ FRAMAN OG AFTAN
• HLÍFÐARPLÖTUR UNDIR VÉL, KÖSSUM OG SKIPTINGU
• BI-XENON LED FRAMLJÓS MEÐ ÞVOTTAKERFI
• RAFDRIFIN OPNUN Á AFTURHLERA
ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP® GRAND CHEROKEE BREYTTIR OG ÓBREYTTIR
• ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI
• BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ
• FJARLÆGÐASKYNJARAR AÐ FRAMAN OG AFTAN
• BLINDHORNSVÖRN
ALLAR BREYTINGAR UNNAR AF BREYTINGARVERKSTÆÐI ÍSBAND
COVID-19 Mikil töf hefur orðið á
því að nýtt greiningartæki, sem
nýtist meðal annars við greiningar
á COVID-19, verði tekið í notkun á
Landspítalanum. Tækið var keypt
um mitt síðasta ár og upphaf lega
var vonast til þess að það yrði tekið
í notkun í nóvember. Það gekk ekki
eftir en nú er stefnt að því að tækið
verði klárt til notkunar í byrjun
febrúar.
Tækið, Cobas 8800 frá framleið-
andanum Roche, kostaði stjórnvöld
um 100 milljónir króna en það mun
þrefalda möguleg afköst Sýkla- og
veirufræðideildar Landspítalans. Í
dag getur deildin greint allt að 2.000
sýni á sólarhring með sínum tækja-
búnaði og hefur því þurft að treysta
á aðstoð Íslenskrar erfðagreiningar
til þess að ná hámarksafköstunum
upp í 5.000 sýni á sólarhring. Þegar
hið nýja tæki verður tekið í gagnið
verður afkastageta Landspítalans
6.000 þúsund sýni á sólarhring.
Tækið kom loks til landsins þann
13. desember síðastliðinn en er svo
sérhæft að hvorki tæknimenn Land-
spítalans né umboðsaðilans Lýru
mega koma nálægt því að setja það
upp. „Við megum ekki opna kass-
ana sjálf og því verður að bíða með
alla uppsetningarvinnu þangað til
tæknimenn koma frá fyrirtækinu
að utan. Því miður var orðið svo
skammt til jóla að við fengum ekki
ekki tæknimenn fyrir áramót,“
segir Karl G. Kristinsson, yfirlæknir
á Sýkla- og veirufræðideild Land-
spítalans. Tæknimennirnir koma
til landsins um helgina og hefja
uppsetningu í byrjun næstu viku ef
sýni þeirra reynast neikvæð. Tækið
ætti að óbreyttu að komast í notkun
í byrjun febrúar eins og áður segir.
Karl segir að í ljósi mikilvægis
tækisins hafi verið reynt að reka á
eftir afhendingunni en ekkert hafi
verið við það ráðið. „Við höfum ekki
fengið aðrar skýringar á töfinni á
af hendingu heldur en COVID-19
álag,“ segir Karl. – bþ
Nýtt COVID-greiningartæki Landspítala enn ekki komið í gagnið
Hið nýja tæki mun þrefalda afköst
Sýkla- og veirufræðideildar LSH
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Karl G. Kristins-
son, yfirlæknir
Sýkla- og veiru-
fræðideildar LSH
STJÓRNMÁL Demókratar munu
stjórna báðum deildum Bandaríkja-
þings næstu tvö árin, en báðir fram-
bjóðendur flokksins fóru með sigur
af hólmi í sérstöku kjöri til öldunga-
deildarinnar í Georgíu í gær.
Þingsæti ríkisins voru skipuð
Repúblikönum fyrir kosningarnar
en í kjölfar þeirra er öldungadeildin
þannig skipuð að Repúblikanar
eru með 50 þingmenn á móti 48
þingmönnum Demókrata en tveir
óháðir þingmenn bætast þar við,
sem fylgja Demókrötum að málum.
Ef atkvæði í þinginu eru jöfn á
varaforseti Bandaríkjanna úrslita-
atkvæðið og það embætti skipa
Demókratar einnig eins og kunn-
ugt er. Demókratar eru því vel settir
næstu tvö árin.
Þingmennirnir sem sigruðu í
Georgíu í gær eru Raphael War-
nock og Kelly Ossoff. Warnock er
fyrsti svarti öldungadeildarþing-
maðurinn úr röðum Demókrata
sem er kjörinn í Suðurríkjunum
og Ossoff er yngsti öldungadeildar-
þingmaðurinn til að ná kjöri frá því
að Joe Biden var kjörinn. Warnock
mun sitja til 2022 og Ossoff til 2026.
Auk þess að halda um valdataum-
ana í Hvíta húsinu og öldungadeild-
inni eru Demókratar einnig með
meirihluta í fulltrúadeild þingsins
og geta þeir því komið ýmislegu í
verk næstu árin.
Báðar deildir nýkjörins Banda-
ríkjaþings komu saman í gær til að
telja atkvæði kjörmanna til forseta
og þar með staðfesta kjör Joes Biden
en kjörmennirnir greiddu atkvæði
í desember. Biden fékk þar alls 306
kjörmenn en 270 kjörmenn þarf til
að vinna kosningarnar.
Undir venjulegum kringumstæð-
um er hlutverk þingsins í forseta-
kjöri formsatriði, en eftir umdeildar
kosningar er staðan önnur.
Trump neitar enn að játa sig sigr-
aðan og heldur því fram að kosn-
ingasvindl hafi átt sér stað í nóvem-
ber, en nokkrir þingmenn hafa lýst
því yfir að þeir muni neita að stað-
festa kjör Bidens. Meðan á fundar-
höldum stóð í þinginu var mótmælt
á götum höfuðborgarinnar og fór
svo að mótmælendur ruddust inn
í þinghúsið og koma þurfti þing-
mönnum og öðru starfsliði þingsins
í skjól.
Þrátt fyrir mótmæli Donalds
Trump og stuðningsmanna hans
og andmæli nokkurra þingmanna
úr röðum Repúblikana getur nánast
ekkert komið í veg fyrir að Demó-
kratinn Joe Biden sverji embættis-
eið sem 46. forseti Bandaríkjanna
þann 20. janúar næstkomandi.
fanndis@frettabladid.is
Demókratar við völd
í báðum þingdeildum
Demókratar náðu í gær meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings. Stuðnings-
menn Donalds Trump ruddust inn í þinghúsið í Washington í gær þar sem
fram fór staðfesting á forsetakjöri Joes Biden gegn andmælum Repúblikana.
Mótmælendur ruddu sér leið inn í þinghúsið í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Demókratar sigruðu í
aukakosningum í Georgíu
sem fram fóru á þriðjudag
og náðu með því völdum í
öldungadeild þingsins.
GRÍMSNES „Ég reyni bara að vera
jákvæð og treysti því að sveitar-
stjórnin f inni lausn á þessu,“
segir Ingibjörg Sigmundsdóttir,
félagi í Ásgarðsnefnd Oddfellow,
en nefndin sendi í desember bréf
til sveitarstjórnar Grímsnes- og
Grafningshrepps, þar sem hún
lýsir yfir óánægju sinni með að
við gerð nýs Búrfellsvegar misstu
félagsmenn Oddfellow vegasam-
band við landsvæði í sinni eigu í
Ásgarðslandi í Grímsnesi.
„Það er ekki bílfært að landinu
nema í gegnum hlið Þórstígsfélags-
ins svo fólk þarf að þekkja einhvern
til að komast í gegn,“ segir Ingi-
björg og bætir við að landinu sem
um ræðir hafi verið ætlað að vera
opið öllum. „Ekki bara félögum í
Oddfellow heldur landsmönnum
öllum.“
Í bréfinu segir að Oddfellowum
standi til boða aðgangur að hliði
Þórstígsfélagsins og að í þeim
aðgangi felist að fimm símanúmer
geti opnað hliðið með símtali.
Ingibjörg segir það óásættanlega
lausn þar sem félagsmenn séu í það
minnsta tvö hundruð talsins og að
þau öll, ásamt almenningi, ættu að
hafa aðgang að landinu.
„Þetta er of boðslega fallegt tíu
hektara land sem Oddfellowstúk-
unum var gefið og það er skilyrt
þannig að við megum ekki byggja
þarna, heldur er þetta skógræktar-
og útivistarsvæði. Þarna höfum
við plantað miklu af trjám og
þetta er bæði mikið berjaland og
skemmtilegt útivistarsvæði, það
er bara hundfúlt að þetta sé svona
en ég trúi því að það finnist á þessu
lausn,“ segir Ingibjörg.
Í bréfinu skorar nefndin á sveit-
arfélagið að leiðrétta þau mistök
sem sem leiddu til þess að umrætt
land var skilið eftir vegasambands-
laust. Þess er krafist að lausn verði
fundin hið snarasta „annars er
okkur nauðugur einn kostur að
leita réttar okkar“.
Málið var tekið fyrir á fundi
sveitarstjórnarinnar um miðjan
desember og var Ásu Valdísi
Árnadóttur, oddvita Grímsnes-
og Graf ningshrepps, falið að
vinna málið áfram í samræmi við
umræður á fundinum. Ása Valdís
segir málið í skoðun en að engin
niðurstaða hafi fengist. „Þetta er
bókað fimm mínútur í jól svo það
er ekkert búið að gerast í þessu eins
og staðan er núna,“ segir Ása. – bdj
Komast ekki að landi sínu
Félagsmenn í Oddfellow komast ekki lengur að landsvæði sínu í Ásgarðs-
landi í Grímsnesi eftir að nýr Búrfellsvegur var lagður. MYND/AÐSEND
7 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð