Fréttablaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 13
Netapótek Lyavers
–Apótekið heim til þín
Kaupaukifylgir*
lyaver.is Suðurlandsbraut 22
Í Netapóteki Ly avers á lyaver.is
getur þú fundið þína lyfseðla, valið
samheitalyf og séð ly averðið þitt.
Mikið úrval af vítamínum og bætiefnum.
Lágt vöruverð og heimsending um land allt.
Gerðu verðsamanburð!
*Ef verslað er fyrir meira en 5.000 kr.
AF KÖGUNARHÓLI
Þorsteinn
Pálsson
Viðskiptasamningur Breta og Evrópusambandsins, sem tók gildi um áramótin, var
góð lausn fyrir báða aðila eins og
málum var komið.
Fyrir Ísland og þau lönd önnur,
sem eftir eru á innri markaði
Evrópusambandsins, er þetta eigi
að síður mjög stórt skref til baka.
Þeir sem eru fylgjandi frjálsum
viðskiptum geta með engu móti
fagnað meiri takmörkunum og
fleiri hindrunum.
Tvær grímur renna á
breskan almenning
Ríkisstjórn breska Íhaldsflokksins
fagnar hins vegar þessum tíma-
mótum með háfleygum yfir-
lýsingum. Brexit var samþykkt
með mjög naumum meirihluta.
Nýjustu kannanir sýna aftur á
móti að aðeins 38 prósent eru enn
fylgjandi útgöngu en 48 prósent
eru á móti.
Hugmyndafræðin, sem varð
ofan á í breska Íhaldsflokknum,
og naumur meirihluti keypti á
markaðsverði í þjóðaratkvæða-
greiðslunni, byggði á þeirri stað-
hæfingu að það væri andstætt
fullveldi Stóra-Bretlands að deila
ákvörðunum með öðrum þjóðum.
Meðan breska Íhaldsflokks-
stjórnin hrósar happi yfir því að
hafa endurheimt fullveldið benda
kannanir hins vegar til þess að
tvær grímur hafi runnið á meiri-
hluta þjóðarinnar. Hvað veldur
því?
Fullveldi fyrir þingmenn
en ekki þjóðina
Í f lestra augum eru fullveldi og
frelsi nátengd hugtök. Sú tenging
byggir á því að stjórnvöld nýti
fullveldisréttinn til þess að gefa
almennum borgurum og fyrir-
tækjum þeirra sem mest svigrúm
til athafna í viðskiptum, vísindum
og listum.
Aftur á móti er ekki sjálfgefið að
stjórnvöld nýti fullveldið á þann
hátt. Almenningur í Bretlandi
virðist smám saman vera að átta
sig á því að hugmyndir forystu-
manna breska Íhaldsflokksins um
fullveldi beindust fyrst og fremst
að því að auka að nafninu til svig-
rúm þingmanna til ákvarðana á
kostnað athafnafrelsis borgaranna
og fyrirtækja þeirra.
Brexit snerist með öðrum
orðum um fullveldi fyrir þing-
menn en ekki þjóðina.
Nýjar hindranir
Þó að viðskiptasamningurinn
tryggi tollfrjáls viðskipti með
vörur er verið að reisa margvís-
legar nýjar viðskiptahindranir.
Skrifræði eykst til mikilla muna
á landamærum með auknum
kostnaði fyrir stjórnvöld og fyrir-
tæki. Viðskiptin ganga líka hægar,
jafnvel þó að nýja tölvuvædda
skrifræðiskerfið gangi snurðulítið
fyrir sig.
Þjónustuviðskipti falla fyrir
utan samninginn. Þau eru uppi-
staðan í breskum þjóðarbúskap.
Nýjar hindranir, stórar og smáar,
rísa upp á þessu sviði. Ýmis verk-
efni f lytjast yfir til meginlandsins.
Frjáls för fólks hefur verið aflvaki
fyrir lista- og menningarlíf. Nú
er dregið úr því frelsi. Nemenda-
skipti falla niður og frelsi náms-
manna skerðist.
Minna frelsi og meira „fullveldi“
Meira í orði en á borði
Til þess að halda tollfríðindum
verða Bretar í öllum megin-
atriðum að fylgja svipuðum
samkeppnisreglum og gilda
á innri markaði Evrópusam-
bandsins. Komi upp ágreiningur
sker alþjóðlegur gerðardómur úr.
Aukið sjálfstæði þingmanna er
því fremur í orði en á borði.
Evrópusambandið er með
samninga við yfir eitt hundrað
ríki. Þó að Bretar nái á næstu
árum að gera jafn marga samn-
inga munu þeir ekki vega upp á
móti skertu athafnafrelsi á innri
markaði Evrópu.
Aukið fullveldi þingmanna
að nafninu til þýðir minna frelsi
almennra borgara og fyrirtækja
þeirra. Minna athafnafrelsi
þrengir svo möguleika atvinnu-
lífsins til þess að vaxa með sama
hraða og samkeppnislöndin.
Áhrif Breta í alþjóðasamfélag-
inu dvína. Í augum umheimsins
hefur fullveldi Breta veikst en
ekki styrkst.
Endurómur Miðflokks
og Sjálfstæðisflokks
Miðf lokkurinn og Sjálfstæðis-
f lokkurinn hafa um nokkurt skeið
endurómað sömu hugmyndafræði
og breski Íhaldsf lokkurinn. Báðir
f lokkarnir eru andvígir því að
auka athafnafrelsi með fullri aðild
að Evrópusambandinu.
Í báðum f lokkum er vaxandi
andstaða við aðild Íslands að
innri markaði Evrópusam-
bandsins. Vegna ágreinings í
Sjálfstæðisf lokknum tók það
ríkisstjórnina til að mynda meira
en heilt ár að afgreiða nýjar og
bættar evrópskar reglur á sviði
orkumála. Ef VG hefði verið jafn
sundrað í því máli er eins víst að
EES-samningurinn væri í upp-
námi.
Nái Miðf lokkurinn og Sjálf-
stæðisf lokkurinn saman um
myndun nýrrar ríkisstjórnar er
hætt við að það verði á kostnað
viðskiptafrelsis og neytenda-
verndar. Það mun veikja sóknar-
möguleika íslensks atvinnulífs.
Meðan breska Íhaldsflokks-
stjórnin hrósar happi yfir
því að hafa endurheimt full-
veldið benda kannanir hins
vegar til þess að tvær grímur
hafi runnið á meirihluta
þjóðarinnar. Hvað veldur
því?
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 7 . J A N Ú A R 2 0 2 1