Fréttablaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 10
Kóf er gamalt íslenskt orð sem notað er um snjó sem fýkur með jörðu og er oftar kallað skafrenningur, snjódrif eða skafald. Einnig er talað um skýja-kóf, til dæmis þegar flugvél hefur sig til lofts í gegnum skýjahulu uns komið er í heiðskírt. Nýliðið ár var f lestum eftirminnilegt og erfitt þar sem COVID-19 gerði okkur jarðarbúum grikk og nánast lamaði heilu samfélögin. Kóvið er nýrði í íslensku yfir ástandið sem skapaðist. En öll él styttir upp um síðir og mikilvægt að rífa sig upp úr erfiðleikunum. Ef bólusetning er undanskilin er sennilega hvergi auðveldara að ná fyrri hæðum en í íslenskri náttúru. Merkilegt nokk varð hún sigurvegari kóvsins þar sem margir kusu að ferðast innanlands, enda lögðust ferðalög til útlanda nánast af. Auk þess var hægt að njóta náttúrperlanna í fámenni þar sem hátt í þrjár milljónir erlendra ferðamanna sem sækja landið heim árlega neyddust til að halda sig heima. Á Íslandi eru ský ekki óalgeng og oftar en ekki hamla þau útsýni. En það má ganga upp úr þeim og ná frábæru útsýni – ekki ósvipað kóvinu sem hel- tekið hefur líf okkar. Þetta á ekki síst við um hæstu tinda eins og á Öræfajökli eða í djúpum fjörðum eins og á Hornströndum. Þarna koma nákvæmari veðurspár, sem meðal annars sýna skýjahæð, oft að góðum notum. Þannig má ganga upp úr svarta- þoku í frábært veður, til dæmis við Kýrskarð á Hornströndum skammt frá Hornbjargsvita. Sunnan skarðsins er nafnlaus klettur með gati sem minnir á risastóra könnu. Af honum býðst einstakt útsýni yfir Hornvík og oft stinga Kálfatindar og Hælavíkurbjarg sér í gegnum skýjakófið. Á Öræfajökli, sem er eitt af stærstu eldfjöllum Evrópu og hýsir þrjá af hæstu tindum Íslands, er afar algengt að lenda í snjó- eða skýjakófi á leiðinni upp, ekki síst í Dauða- brekkunni alræmdu. En við rætur Hnjúksins léttir veðrinu oft og efst getur verið bongó- blíða. Þannig var það að minnsta kosti síðastliðið vor þegar við vorum þarna á ferð með dróna og slógum upp tjaldi á toppnum. Kófi sleppir nefnilega alltaf og hvergi betra að sannreyna það en í ósnortinni íslenskri nátt- úru. Ofan skýja á Efri Dyrhamri í Öræfajökli. Á sama tíma rigndi í Skaftafelli, tæpum tveimur kílómetrum neðar. MYND/ÓMB Miðnætursól upp af Hornvík sem er eins og teppalögð skýjum. MYND/ SIGRÚN HALLA HALLDÓRSDÓTTIR Hvanndals- hnjúkur (2.210 m) stingur sér upp úr skýjakófi sem gladdi göngu- fólk á ávölum toppnum. MYND/ÓMB Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Upp úr kóvinu 7 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.