Fréttablaðið - 07.01.2021, Page 10
Kóf er gamalt íslenskt orð sem notað er um snjó sem fýkur með jörðu og er oftar kallað skafrenningur, snjódrif eða skafald. Einnig er talað um skýja-kóf, til dæmis þegar flugvél hefur sig til lofts í gegnum skýjahulu uns komið
er í heiðskírt. Nýliðið ár var f lestum eftirminnilegt
og erfitt þar sem COVID-19 gerði okkur jarðarbúum
grikk og nánast lamaði heilu samfélögin. Kóvið er
nýrði í íslensku yfir ástandið sem skapaðist. En öll
él styttir upp um síðir og mikilvægt að rífa sig upp
úr erfiðleikunum. Ef bólusetning er undanskilin
er sennilega hvergi auðveldara að ná fyrri hæðum
en í íslenskri náttúru. Merkilegt nokk varð hún
sigurvegari kóvsins þar sem margir kusu að ferðast
innanlands, enda lögðust ferðalög til útlanda nánast
af. Auk þess var hægt að njóta náttúrperlanna í
fámenni þar sem hátt í þrjár milljónir erlendra
ferðamanna sem sækja landið heim árlega neyddust
til að halda sig heima.
Á Íslandi eru ský ekki óalgeng og oftar en ekki
hamla þau útsýni. En það má ganga upp úr þeim og
ná frábæru útsýni – ekki ósvipað kóvinu sem hel-
tekið hefur líf okkar. Þetta á ekki síst við um hæstu
tinda eins og á Öræfajökli eða í djúpum fjörðum
eins og á Hornströndum. Þarna koma nákvæmari
veðurspár, sem meðal annars sýna skýjahæð, oft
að góðum notum. Þannig má ganga upp úr svarta-
þoku í frábært veður, til dæmis við Kýrskarð á
Hornströndum skammt frá Hornbjargsvita. Sunnan
skarðsins er nafnlaus klettur með gati sem minnir á
risastóra könnu. Af honum býðst einstakt útsýni yfir
Hornvík og oft stinga Kálfatindar og Hælavíkurbjarg
sér í gegnum skýjakófið. Á Öræfajökli, sem er eitt
af stærstu eldfjöllum Evrópu og hýsir þrjá af hæstu
tindum Íslands, er afar algengt að lenda í snjó- eða
skýjakófi á leiðinni upp, ekki síst í Dauða-
brekkunni alræmdu. En við rætur Hnjúksins
léttir veðrinu oft og efst getur verið bongó-
blíða. Þannig var það að minnsta kosti
síðastliðið vor þegar við vorum þarna á
ferð með dróna og slógum upp tjaldi
á toppnum. Kófi sleppir nefnilega
alltaf og hvergi betra að sannreyna
það en í ósnortinni íslenskri nátt-
úru.
Ofan skýja á Efri Dyrhamri í Öræfajökli. Á sama tíma rigndi í Skaftafelli, tæpum tveimur kílómetrum neðar. MYND/ÓMB
Miðnætursól upp af Hornvík sem er eins og teppalögð skýjum. MYND/ SIGRÚN HALLA HALLDÓRSDÓTTIR
Hvanndals-
hnjúkur (2.210
m) stingur
sér upp úr
skýjakófi sem
gladdi göngu-
fólk á ávölum
toppnum.
MYND/ÓMB
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Upp úr kóvinu
7 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð