Fréttablaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Skeifunni 6 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4450 | everest.is everest@everest.is | facebook.com/everestverslun Komdu á skíði í vetur 20% afsláttur af öllum gönguskíðapökkum Swix Blizzard Beanie Hlý og góð húfa Verð 3.995,- Swix Strive Jkt W Frábær dömujakki í skíðagönguna Verð 19.995,- Swix Race Jkt M Frábær herrajakki í skíðagönguna Verð 31.995,- Swix Cross Glove Góðir alhliða hanskar Verð 4.995,- Northug Classic Performance Frábær sólgleraugu í allar íþróttir Verð 13.995,- Swix RaceX Warm W Undirfatnaður fyrir dömur Verð 11.995,- Skijack Ómissandi í bílskúrinn Verð 10.995,- Swix RaceX Carbon LS M Undirfatnaður fyrir herra Verð 7.495,- Rudy Project Cutline Frábær sólgleraugu í allar íþróttir Verð 31.995,- Mikið úrval af Swix skíðaáburði Ne t f l i x- þ æ t t i r n i r C obr a K a i er u vægast sagt síðbúið framhald á átaka-sögu Daniels og Johnny, sem hófst með kvikmyndinni The Karate Kid 1984. Þættirnir hafa slegið hressi- lega í gegn og í kjölfar frumsýningar þriðju seríu á nýársdag hafa þeir verið öruggir í efstu sætum vin- sældalista Netflix á Íslandi. „Ég reyndar horfði á fyrsta þátt- inn í gær,“ segir Karl Gauti Hjalta- son, þingmaður Miðflokksins, sem veit ýmislegt um karateklúbba og hina fornu japönsku sjálfsvarnar- íþrótt í kvikmyndum þótt hann hafi ekki haft tíma til að kafa djúpt ofan í Cobra Kai. Hann var frekur til fjörs- ins á árum áður, meðal annars sem stofnandi og formaður Karate- félagsins Þórshamars frá 1979–1985 og for- maður Karatesambands Íslands frá 1985–1998 og þegar hann hætti var hann löngu kominn með hið eftirsótta svarta belti. „Þetta hafði mikil áhrif á áttunda áratugnum. Þá var Bruce Lee náttúrlega látinn,“ segir Karl Gauti, sem æfði karate í dýrðarljóma goðsagnarinnar Bruce Lee. „Hann deyr 1973 en myndirnar gengu lengi og það var alltaf horft til hans eins og hins eina sanna. Þumbinn Chuck Norris Menn horfðu á þessar myndir hans og þá sérstaklega Í klóm drekans, sem var náttúrlega toppurinn og allir voru búnir að sjá hana. Margoft jafnvel,“ heldur Karl Gauti áfram um Lee. „Síðan komu alls konar aðrar myndir og alltaf fylltust bíóhúsin og karatenámskeiðin fylltust í kjölfarið. Chuck Norris var talinn svona þumbi og þunglamalegur og það var ekki eins gaman að honum. Mér fannst hann aldrei skemmtilegur.“ Norris átti þó seinna meir eftir að fá uppreist æru sem internetbrandari. „Þetta er fyrst og fremst hugsað sem sjálfsvarnaríþrótt. Alveg frá grunni. Og það kemur fram í öllum þessum myndum, alveg sama hvort það eru Bruce Lee-myndirnar, Karate Kid, eða þetta Cobra Kai,“ segir Karl Gauti. „Menn eru að þjálfa sig upp. Þeir verða fyrir einhverjum ágangi og góði gæinn náttúrlega bíður og lætur berja sig aðeins áður en hann tekur til varna.“ Bruce Lee og bílabón Bruce Lee-myndirnar og þær sem fjalla um Karate Kid eiga það líka sameiginlegt að hafa laðað fólk að íþróttinni. „Það gerist það sama þegar Karate Kid kemur þarna 1984, en það var kannski ekki alveg eins áberandi og þetta höfðaði kannski líka til yngri krakka meira en þessar Bruce Lee-myndir. „Þarna var ungur strák- ur sem var lagður í ein- hvers konar einelti og fór svo að æfa hjá eldri manni og maður áttaði sig alveg á því hvað var að gerast þótt aðrir hafi kannski ekki gert það,“ segir reynd ur karateþjálf- arinn um þann sérkenni- legan kennslu grunn herra Miyagi að láta Daníel hinn unga bóna bíla. „Þetta voru náttúrulega allt saman ákveðnar hreyfingar og svo kom þetta allt heim og saman í lokin og þetta olli því að krakkar fylltu þarna alla byrjendahópa,“ segir Karl Gauti sem lét staðar numið fyrir rúmum tveimur áratugum. Gula beltið í skák „Svona eftir á að hyggja þá eyddi ég rosalegum tíma í að æfa, kenna, stjórna og dæma. Það fór gríðarleg- ur tími hjá mér í þessi fjögur atriði í áraraðir,“ segir Karl Gauti, sem lét af formennsku Karatesambandsins eftir þrettán ár og sagði skilið við sportið þegar hann gerðist sýslu- maður í Vestmannaeyjum. „Ég sneri mér reyndar mjög hratt að annarri nördaíþrótt þegar ég villt ist inn á æfingu hjá Taflfélagi Vest mannaeyja með sonum mínum. Ég er enginn sérstakur skákmað ur en stuttu seinna var ég orðinn for mað ur Taf lfélagsins. Ég er ekki kominn með svarta beltið í skák, ætli ég sé ekki bara rétt að ná gula. Eitthvað svoleið- is,“ segir Karl Gauti, sem af greiddi skákþættina Queen’s Gambit á Netflix mun hraðar en Cobra Kai. „Ég vona bara að þessi karatesería hafi sömu áhrif á starfsemi karate- félaganna og Queen’s Gambit hefur gert fyrir skákfélögin.“ toti@frettabladid.is Með svarta beltið í karate og gult í skák Alþingismaðurinn Karl Gauti Hjaltason var með svarta beltið í karate þegar hann hætti og vonast til að Cobra Kai-þættirnir geri það sama fyrir karatefélögin og Queen’s Gambit fyrir skákina. Þingmaðurinn æfði karate á meðan ljómi Bruce Lee var enn yfir bardagaíþróttinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Í „viðbragðsstöðu“ eins og það var orðað í texta við mynd GVA í DV 1987. Bruce Lee. Daniel í Cobra Kai. 7 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.