Fréttablaðið - 07.01.2021, Side 22
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Í netmiðlinum Daily Mail er sagt að tískuflíkur eins og Nicole Kidman klæðist í þessum
þáttum hafi ekki sést í sjónvarpi
frá því að Carrie Bradshaw arkaði
um götur New York borgar í Sex
and the City. Talað er um að þessi
glæsilegi klæðnaður gæti haft áhrif
á söluna hjá helstu tískuhúsum
heims á næstunni. Sérstaklega
vekja kápurnar sem Nicole klæðist
mikla athygli. Þá er því spáð að
liðað, rauðleitt hár hennar geti
orðið að tískubylgju á þessu ári.
Mótleikari Nicole er Hugh Grant
sem sömuleiðis vekur athygli. Auk
þess fer Donald Sutherland með
stórt hlutverk. Þættirnir sem eru
sex talsins þykja afar vel leiknir og
spennandi með morðfléttu sem
heldur áhorfandanum við efnið.
Hægt er að horfa á þessa þætti á
Stöð 2 Maraþon.
Vefútgáfa Los Angeles Times
hvetur fólk til að horfa á þættina
og skrifar: „Horfið á þetta ótrú-
lega ríka fólk og sóðalegt líf þess.“
Þættirnir eru byggðir á bókinni
You Should Have Known eftir
Jean Hanff Koelitz sem kom út
árið 2014. Framleiðandinn er hinn
virti David E. Kelley en hann hefur
getið sér gott orð fyrir margar
frábærar sjónvarpsseríur eins og
Boston Legal, Ally McBeal, L.A.
Law og margar fleiri. Leikstjóri
er Susanne Bier sem er dönsk og
hefur vakið mikla athygli sem
leikstjóri. Búningahönnuðurinn er
sömuleiðis danskur, Signe Sejlund,
en þær tvær hafa unnið mikið
saman.
Árið 2020 var skrítið ár en
heimavera gaf mörgum nægan
tíma til að horfa á sjónvarpsseríur
og þar kom The Undoing sterk inn.
Hárgreiðslustofur voru lokaðar
og margir komnir með svokallaða
COVID-hárgreiðslu. Þættir eins og
The Undoing gætu hjálpað fólki
að leita sér að breytingu varðandi
hárgreiðslu. Norskur hársnyrtir
nefnir greiðslu Nicole Kidman í
þáttunum á vefmiðli VG og býst við
að fólk verði duglegt að fá sér nýja
liti í hárið þegar líður á þetta ár,
jafnvel öðruvísi klippingu en það
hafði áður. „Nýtt útlit með betri
tímum. Koparrautt á eftir að vera
vinsæll háralitur,“ segir hann.
Þeim sem ekki hafa séð The
Undoing er bent á að fylgjast vel
með fatnaðinum sem Nicole klæð-
ist en þættirnir voru teknir upp
rétt áður en heimsfaraldurinn skall
á. Signe Sejlund búningahönnuður
segir að fötin hafi verið valin til
að Nicole yrði bæði dularfull og
töfrandi í hlutverki sínu sem Grace
Fraser. Hún er klædd í ofurlúxus
frá toppi til táar. Vínrauð kápa með
belti frá Phillip Lim, pils frá The
Row og kjólar frá Bottega Veneta,
silkikjóll með málmþráðum frá
Givenchy og kápa með efni frá Max
Mara. Fataskápurinn átti að vera
klassískur og tímalaus. Skartgrip-
irnir voru sérvaldir af skartgripa-
hönnuðinum Rebeccu Elbek.
Signe segir að oft hafi fatnaður
verið blandaður, aðkeyptur frá
hönnuðum og síðan breyttur og
lagfærður af henni. Þannig var
með Max Mara kápuna rauðu.
Nicole er mjög hávaxin og grönn.
Það þurfti stundum að laga
fatnað að hennar líkama. Signe
saumaði sömuleiðis hentugan
klæðnað fyrir aðra leikara þátt-
anna. Sannarlega hugsað út í hvert
smáatriði.
Dularfull og töfrandi Nicole
Sjónvarpsþættirnir The Undoing hafa slegið í gegn víða um heim. Sagt er að áhorfendur hafi
tekið vel í spennuþætti í glæsilegri umgjörð á tímum COVID. Ekkert var til sparað í lúxusfatnaði.
Hugh Grant og
Nicole Kidman
í hlutverkum
sínum í sjón-
varpsþáttunum
The Undoing.
Glæsileg velúrkápa frá Max Mara. Takið eftir hárinu
sem er sagt verða tískuhárið 2021. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þær eru hver annarri glæsilegri káp-
urnar sem Nicole Kidman klæðist
í þáttunum. Kápan var hönnuð af
Signe Sejlund búningahönnuði.
Glæsileg
kápa frá
Phillip Lim.
ÚTSÖLUR OG OUTLET
Sérblaðið Útsölur og outlet kemur út 16. janúar og mun fylgja helgarblaði
Fréttablaðsins.
Í þessu blaði geta auglýsendur auglýst útsölur, vörur og verð sem verða í boði á
útsölunum í janúar. Einnig viljum við bjóða outlet verslunum að vera með í þessu
blaði og kynna búðir, vörur og verð sem eru í boði.
Vertu viss um að tryggja þér gott pláss í langmest lesna dagblaði landsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttu fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minni gunni um ldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglý ingaplá s
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um blaðið vei ir :
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . JA N ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U R