Bæjarins besta - 18.02.1986, Page 10
10
BB
18 spurningar, 12 svör
Hljómplötuverðlaun í hverri viku.Aðalvinningurinn,
Trivial Pursuit, dreginn út í næstu viku
Fjórði þáttur „Gettu nú“ er með svolítið öðru sniði en þrír þeir
fyrstu. Þátttakendur hafa kvartað undan því að spurningarnar hafi
verið helst til þungar og sumar hverjar smásmugulegar. Til að ráða
bót á því hefur verið ákveðið að hafa spurningarnar meira almenns
eðlis. Auk þess hefur þátturinn tekið á sig nýja mynd, þar sem nú
eru þrjár spurningar í stað tveggja í hverjum flokki og mega þátt-
takendur velja sér TVÆR SPURNINGAR ÚR HVERJUM FLOKKI til
að svara. Lausnum má svo skila til BB, eða í kassa sem eru í
Vöruvali, Hamraborg og í Shell-skálanum í Bolungarvík. Skila-
frestur er til föstudagskvölds.
Sigurvegari í síðasta þætti var Kristján Kristjánsson, Vitastig 10,
Bolungarvík og fær hann hljómplötu að eigin vali í verðlaun. Allar
réttar lausnir sem berast eru geymdar og er aðalvinningurinn,
spurningaleikurinn Trivial Pursuit, síðan dreginn út í lok hvers
mánaðar. Þannig geta menn fengið bæði hljómplötu og Triviai
Pursuit út á sama svarseðilinn. Það ætti því
að vera vel þess virði að vera með.
Góða skemmtun.
BÓKMENNTIR OG LISTIR:
1. Hver samdi tónverkið Finniandia,
árið 1899?
2. Eftir hvern er leikritið Gatdra-
Loftur?
3. Hvað hét Steinn Steinarr réttu
nafni?
VÍSINDI:
1. Hvaða efni er sett í gosdrykki til
að þeir freyði?
2. Hvaða jurt borðuðu islendingar
áður fyrr til að forðast skyrbjúg?
3. Hvaðerkarri?
ÍÞRÓTTIR OG LEIKIR:
1. Hvar voru fyrstu Olympiuleikarnir
eftirsiðari heimsstyrjöldina haldnir?
2. Í hvaða iþrótt er keppt í Tour de
France?
3. Undir hvaða nafni er Edson Ar-
antes do Nasciniento betur þekktur?
LANDAFRÆÐI:
1. í hvaða landi er Polarbjórinn
framleiddur?
2. Hvaða ríki hefur tekjur sinar af
spilavitum en ekki sköttum?
3. ihvaða landi er Canberra höfuð-
borg?
DÆGRADVÖL:
1. Hvervar yngsti Bítillinn ?
2. Hvar gerist íslenska sjónvarps-
myndin Draugasaga?
3. Með hvaða hljómsveit söng Jim
Morrison?
SAGA:
1. Hver var myrtur 4. apríl 1968?
2. Hver kom fyrstur upp prent-
smiðju á íslandi?
3. Af hvaða tilefni var Eiffel-turninn
reistur?
RÉTT SVÖR I SÍÐASTA ÞÆTTI:
Vísindi:
1. Hann er ákaflega heimskur.
2. í eyranu.
Saga:
1. 1. nóvember
2. Landhelgisdagurinn
Bókmenntir og listir:
1. Fjórðungur 2. Kleópatra
Dægradvöl:
1. Einræðisherrann
2. Guðrún Bjarnadóttir
íþróttirog leikir:
1. Höndunum 2. 24
Landafræði:
1. Þjórsá
2. Belgia, Holland og Luxemburg
GETTU NÚ? SVARSEÐILL
íþróttir og leikir:_____ Landafræði:
Vísindi:
Bókmenntirog listir:
Nafn:
Saga: Dægradvöl: Heimili:
Staður: Sími: