Bæjarins besta - 24.03.1987, Blaðsíða 1
(f
H-PRENT SF.
BLAÐAÚTGÁFA,
ÖLLALMENN
PRENTÞJÓNUSTA.
J
ÞRIÐJUDAGUR
24. MARS 1987
4. ÁRGANGUR
Bolungarvík:
Tíu ára hnáta
íþróttamaður ársins!
íþróttamaöur ársins 1986 í
Bolungarvík var kjörinn á sunnu-
dagskvöldiö. Athöfnin fór fram í
félagsheimili staöarins að við-
stöddu fjölmenni. Víðir Bene-
diktsson, formaður íþróttaráðs,
lýsti kjörinu. Fyrir valinu að þessu
sinni varð sundkonan Erna Jóns-
dóttir, en hún verður 11 ára á
þessu ári.
Sem viðurkenningu hlýtur hún
farandbikar, sem hún varðveitir
í eitt ár, afsteypu af honum til
eignar og viðurkenningarskjal.
Erna á öll íslandsmet í flokki
hnáta (10 ára og yngri). Á síð-
asta ári setti hún 41 Bolungar-
víkurmet og 38 Vestfjarðamet.
Hún sigraði með miklum yfir-
burðum í báðum sínum greinum
á aldursflokkameistaramóti ís-
lands sem haldið var sl. sumar,
og setti þar glæsileg íslandsmet.
Erna hefur æft sund frá 7 ára
aldri. Nú æfir hún fjórum sinnum í
viku undir stjórn þjálfara sund-
deildarinnar. Foreldrar hennar
eru þau Rannveig Snorradóttir
og Jón Valgeir Guðmundsson.
Óshlíðin kláruð
í vor og í sumar stendur til að
leggja slitlag á það sem eftir er af
Óshlíðinni. Það er fyrirtækið Hag-
virki sem vinnur verkið.
Að sögn Gísla Eiríkssonar hjá
Vegagerðinni eru það um 1,8 km
sem eftir eru á sjálfri Óshlíðinni.
Einnig stendur til að leggja slitlag
á 6,5 km inni í Álftafirði og 5,5 km í
Dýrafirði.
Frá verðlaunaafhendingu í Félagsheimilinu i Hnífsdal síðastliðið
sunnudagskvöld vegna firmakeppni hjá Bridgefélagi ísafjarðar.
Til hægri á myndinni er Halldór Sveinbjörnsson sem tók á móti
fyrstu verðlaunum fyrir hönd Bæjarins besta, í miðjunni er Guð-
mundur M. Jónsson sem spilaði til vinnings fyrir BB, og til vinstri
er Kristinn Kristjánsson gjaldkeri Bridgefélagsins sem afhenti
verðlaunin.
Viðburðarík helgi
Það hefur verið annasamt hjá
lögreglunni a ísafirði undanfarna
daga. Aðfaranótt sunnudagsins
var hafin leit að skipverja af Hersi
frá Hafnarfirði. Slysavarnafélagið
og Hjálparsveit skáta voru fengin
til að aðstoða við leitina. Lík
mannsins fannst í höfninni um
morguninn. Hafði hann að öllum
líkindum ætlað í land umrædda
nótt, en fallið milli skips og
bryggju.
Rétt eftir hádegi á laugar-
deginum var lögregla kvödd út á
Hnífsdalsveg að sinna umferðar-
óhappi. Skyggni var mjög slæmt
og skafrenningur mikill. Þegar
komið var á staðinn, kom í Ijós að
fimm bílar höfðu lent þarna
saman. Fyrst rákust tveir saman,
og hinir fylgdu á eftir. Skemmdir
urðu töluverðar, en slys á
mönnum engin.
Að sögn lögreglunnar hefur
árekstrum fjölgað umtalsvert upp
á síðkastið. Árekstrafjöldi er
orðinn jafn mikill nú í mars og
hann var í júní í fyrra!