Bæjarins besta - 24.03.1987, Blaðsíða 7
BÆJARINS BESTA
7
Þessar myndir af briddsfólki voru
teknar á sunnudagskvöldið. Eins
og við sögðum frá síðast, þá lauk
einmennings- og firmakeppni
Bridgefélags ísafjarðar um fyrri
helgi og hér í blaðinu er skrá um
fyrirtækin sem tóku þátt í því.
Félagarnir í Bridgefélagi ísa-
fjarðar koma saman á hverju
sunnudagskvöldi kl. 19:45 í Fé-
lagsheimilinu í Hnífsdal. Nýliðar
Bridge
eru velkomnir, og byrjendur fá að
sjálfsögðu tilsögn.
Fyrir nokkru var spilað í Bol-
ungarvík um réttinn til að fara
sem fulltrúi Vestfirðinga í riðla-
keppnina á íslandsmótinu í
bridge, sem verður í Reykjvík í
byrjun apríl. Þar kepptu sveitir frá
ísafirði, Bolungarvík, Tálknafirði
og Þingeyri, og sigraði sveitin
sem er á myndinni hér að neðan.
Sveitin sem fer á
íslandsmótið eftir
mánaðamótin:
Kristinn Kristjáns-
son, Eiríkur Kristó-
fersson, Guðni
Ásmundsson, Einar
Valur Kristjánsson
og Guðlaug Jóns-
dóttir. Á myndina
vantar Sigmar Þór
Óttarsson.
Sæmundur Guðmundsson fyrir hönd G. E. Sæmundssonar h.f.
tekur við 2. verðlaunum í firmakeppninni. Það var Sigurður
Óskarsson sem spilaði fyrir málarana.
í Félagsheimilinu í Hnífsdal sl. sunnudagskvöld: Kristján Haralds-
son Orkubússtjóri segir Guðmundi M. Jónssyni að láta í kónginn
hjá Eiríki Kristóferssyni, en Kristinn Kristjánsson bíður átekta.
ALLT A EINUM STAÐ
Gos - Sælgæti
Pítur
2 gerðir
Pizzur
2 gerðir
Langlokur
m/grænmeti
Samlokur
Heitar og kaldar
SS borgarar
Júmbó hamborgarar
ís - Konfekt
Nýjasta nýtt!
FRANSKAR
KARTÖFLUR