Bæjarins besta - 24.03.1987, Blaðsíða 12
MANAFOSS
L pá
i"l —— . 1 ..
*
STRANDFLUTNINGAR
AÐ SUNNAN ALLA MIÐVIKUDAGA
AÐ NORÐAN ALLA MÁNUDAGA
SÍMAR:
SKRIFSTOFA
VÖRUHÚS
4555
4556
Knattspyrnan:
Málin að skýrast hjá ÍBÍ
— bæði varðandi keppni og peninga
Helgi Ragnarssgn úr FH þjálfar
meistaraflokk ÍBÍ í sumar (sjá bls.
4). Jón E. Halldórsson (Lambi)
sér um kvennaliðið eins og áður,
og Jóhann Torfason þjálfar 6.
flokk. Enn vantar þjálfara fyrir
2.-5. flokk, en viðræður standa
yfir við Valdimar Guðmundsson,
fyrrverandi íþróttakennara við
Grunnskólann á ísafirði.
Þótt þjálfari sé enn ókominn,
þá hafa meistaraflokksmenn
samt stundað æfingar hér á ísa-
firði að undanförnu undir stjórn
Örnólfs Oddssonar, og þeir leik-
menn sem eru fyrir sunnan hafa
fengið inni hjá ýmsum félögum
þar.
Þetta og margt fleira sagði Jói
Torfa þegar við spurðum hann
frétta af fótboltamálum hjá ÍBÍ.
íslandsmótið í knattspyrnu
hefst í lok maí, og mun ÍBI taka
þátt í því í öllum flokkum. Sjötti
flokkur verður einnig með í svo-
kölluðu Pollamóti.
Nokkrir leikmenn ÍBÍ hafa til-
kynnt félagaskipti. Haukur
Magnússon og Rúnar Vífilsson
fara yfir í Þrótt í Reykjavík og Jón
Oddsson spilar með Fram. Óvíst
er hvort Guðmundur Jóhannsson
verður með áfram. Jóhann
Torfason kvaðst ætla að spila í
sumar, en óvíst væri enn hvort
það yrði með meistaraflokki eða
bara dútl. Það færi eftirýmsu, þar
á meðal heilsunni.
Aðrir leikmenn verða væntan-
lega þeir sömu og í fyrra, auk
nokkurra ungra sveina sem
koma upp úr 2. flokki. Liðið þyrfti
helst að fá tvo reynda leikmenn til
viðbótar, auk annars mark-
manns.
Peningamálin gömlu og erfiðu
eru smátt og smátt að skríða
saman. Sérstök nefnd mannatók
þau föstum tökum síðla árs 1985,
og hefur mikið áunnist, að sögn
Kristjáns K. Jónassonar, sem er
einn í þeim hópi. Samt er enn
Ungur
afreks-
maður
Strákurinn á myndinni heitir
Auðunn Gunnar Eiríksson, er
ellefu ára. og býr á Flateyri.
Seint á síðasta ári fór hann að
æfa sund með Sunddeild Grettis.
Það sýndi sig fljótt að ýmislegt er
í strákinn spunnið, því hann hefur
bætt tíma sinn í skriðsundi um
rúmlega 15 sekúndur á þeim
stutta tíma sem liðinn er síðan
fyrst var tekinn tími á hann.
Röskur drengur hann Auðunn!
mikið óunnið, enda sagði Kristján
í samtali við BB að skuldirnar
hefðu verið nokkuð á sjöttu
milljón að stofni til, auk dráttar-
vaxta, þegar þeir fóru að vinna
að þessu. Að undanförnu hafa
staðið yfir viðræður við Flugleiðir,
sem eru stærsti kröfuhafinn, og
hafa gengið allvel. Gert hefur
verið uppkast að samningi, en til
þess að hann verði staðfestur
þarf áður að greiða þriðjung
skuldarinnar.
Jói Torfa sagði að ferða-
kostnaðurinn hjá IBÍ í sumar yrði
að líkindum álíka mikill og í fyrra,
eða um 800 þúsund fyrir meist-
araflokk og um ein og hálf milljón
alls. Auglýsingar á búningum
meistaraflokks í sumar verða frá
Vitanum, og reyndar gefur Vitinn
keppnisbúninga, Sporthlaðan
æfingabúninga.
Veðrið setur strik
í reikninginn hjá okkur
— en Aðalbjörn Jóakimsson
verður í opnuviðtali á fimmtudag
fimmtudag með glænýtt og
feiknagott opnuviðtal við Aðal-
björn Jóakimsson, fram-
kvæmdastjóra Bakka h.f.
Hnífsdal og fyrrverandi skip-
stjóra á Hafþór. Hann er þar
m.a. ómyrkur í máli um stjórn
rækjuveiða á íslandi.
Blaðið hjá okkur f dag er
heldur þynnra en við ætluðum.
En einhvern tima hefði okkur
ekki þótt lítið að vera með tólf
síður.
Flug hefur legið niðri undan-
farna daga vegna veðurs.
Núna átti að vera heilsíðu-
auglýsing í lit á baksíðunni, en
hún hefur ekki komist vestur
ennþá. Þetta hefur raskað á-
ætlunum okkar á fleiri vegu.
Við bíðum líka fram á
Vonandi verður flogið í dag
eða á morgun, og þá verður
blaðið hjá okkur fallega lit-
prentað á fimmtudag!
m. H-PRENT
ÖLLALMENN
PRENTÞJÓNUSTA
Sími4560