Bæjarins besta - 24.03.1987, Page 5
BÆJARINS BESTA
5
Nokkrar staðreyndir um kvalafullar tilraunir á dýrum:
Líf til einskis!
Mig langar í örfáum orðum að
vekja ísfirðinga og nágranna til
umhugsunar um málefni sem
nánast enga umfjöllun hefur
fengið í íslenskum fjölmiðlum
eða skólum til þessa. En er samt
mál sem varðar allt mannkynið.
Hér er um að ræða þær fjölda-
mörgu ónauðsynlegu tilraunir
sem gerðar eru á saklausum
dýrum dag hvern um heim allan.
Að áliti fjölda vísindamanna eru
langflestar þeirra tilrauna sem
gerðar eru á dýrum í dag ó-
nauðsynlegar.
Tilraunir á dýrum
eru nauðsynlegar!
Hver hefur ekki heyrt þessa
röksemd og gengið út frá því að
hún sé rétt og sönn? Ég gerði
það meira að segja sjálf, þar til
ég fékk vitneskju sem sneri mér á
öndverðan meið. Vitneskju, sem
mig langar að miðla til ykkar,
kæru lesendur.
Tilraunir á dýrum
eru kvalafullar!
Vissulega eru til tilraunir sem
gerðar eru á svæfðum dýrum,
sem eru svo drepin strax og fá
ekkert að vakna aftur. En margar
tilraunir taka langan tíma, og
bera jafnvel ekki árangur ef dýrin
eru svæfð eða deyfð. Meðal
þeirra eru tilraunir þar sem eitrað
er fyrir dýrunum með ýmsum
gerviefnum til þess að sjá hve
mikið þau þola áður en þau
deyja.
Jafnvel tilraunir sem líta
út fyrir að vera ósköp mein-
lausar geta verið mjög kvalafullar
fyrir dýrin. Við megum ekki
aðeins líta á líkamlegu þjáning-
arnar!
Það er til dæmis algengt að
hundar, sem eru miklar félags-
verur, og þurfa mikla hreyfingu
og félagsskap, séu lokaðir inni í
þröngum búrum svo árum skiptir.
Jafnvel apar, kettir og kanínur
eru oft látin dúsa í allt of litlum
búrum og þvinguð til að lifa lífi
sem er þeim gersamlega óeðli-
legt.
Gagnslaus próf
Mig langar til að koma með eitt
dæmi sem er einkennandi fyrir
það sem ég kýs að kalla gagns-
laus próf.
f þekktri rannsóknarstofu í
Gautaborg eru rottur taugaveikl-
aðar til dauða!
Það fer þannig fram að þær eru
sprautaðar með einhverskonar
efni sem gerir það að verkum að
þær lamast, en finna samt sem
áður sársauka. Síðan eru þær
kvaldar með ýmsu móti. Þar sem
þær geta ekki flúið né hreyft sig
verða þær svo taugaveiklaðar að
hjartað stenst það ekki, og gefst
hreinlega upp. Þetta tiltekna próf
er ,,réttlætt“ með þeirri rökfærslu
að verið sé að reyna að finna
meðal gegn streitu.
Væri ekki réttara og vitlegra að
reyna að finna upptök streit-
unnar?
Gagnleg próf
Ég neita því ekki að margar
tilraunir á dýrum hafa komið
mannkyninu til góða. En þrátt
fyrir það höfum við alls engan rétt
til þess að nota dýrin í þjáningar-
fullar prófanir. Þess vegna verður
að finna eitthvað sem getur
komið í staðinn. Nú þegarerfarið
að nota frumur í stað dýra á
mörgum rannsóknarstofum.
Meðal annars þar sem rann-
sakað er krabbamein.
Fyrst manninum er fært að
mjúklenda á framandi hnetti,
hlýtur hann að geta haldið heilsu
sinni án þess að kvelja dýr til
dauða!!!
Vigdís Jakobsdóttir.
I greininni er stuðst við bækling
frá samtökunum ,,Nordiska sam-
fundet mot plágsamma djur-
försök“.
Góður hagur
Flugleiða
Hagnaður Flugleiða á síðasta
ári var 434 milljónir króna. Far-
þegar á árinu voru tæplega 800
þúsund, eða 5,5% fleiri en árið
1985.
Fraktflutningar voru tæplega
12% meiri, einkum vegna um-
talsverðrar aukningar í milli-
landaflugi.
Á síðasta ári störfuðu að meðal-
tali 1.611 manns hjá félaginu, og
launagreiðslur námu samtals
1.275 milljónum króna. í árslok
áttu Flugleiðir sjö þotur og fimm
skrúfuþotur.
Á aðalfundi félagsins sem
haldinn var 20 mars, lagði stjórn-
in til að greiddur yrði 10% arður,
og hlutafé þrefaldað með útgáfu
jöfnunarhlutabréfa, þannig að
hlutafé félagsins hækki úr 105 í
315 milljónir króa.
Myndirnar sýna breytingar í auga kanínu eftir svokallað ,,Draize ofnæmispróf“ þar sem tilteknu efni er
sprautað undir annað augnlokið. Hitt er notað sem viðmiðun. Til vinstri er eðlilegt kanínuauga.
Þriðjudagskvöld
Opið frá kl. 18
Miðvikudagskvöld
Opið frá kl. 18
Fimmtudagskvöld
Opið frá kl. 18
Föstudagskvöld
Opið kl. 18-03
Laugardagskvöld
Húsið opnað kl. 19
Sunnudagskvöld
Opið frá kl. 18
ATH! Dagskrá nánar kynnt
í fimmtudagsblaði
VEITINGASTAÐURINN
Skeiöi, sími 4777