Bæjarins besta

Eksemplar

Bæjarins besta - 24.03.1987, Side 6

Bæjarins besta - 24.03.1987, Side 6
6 BÆJARINS BESTA Reyklaus dagur á föstudag: Um rétt þeirra sem ekki reykja (öðruvísi en þetta hefðbundna reykingavarnakjaftæði) Á föstudaginn verður „reyklaus dagur“ á Islandi. Ráðgert er að framkvæmd hans verði með svipuðum hætti og á reyklausa daginn í febrúar árið 1982. Sá dagur tókst mjög vel. Fjölmargir reykingamenn tóku þátt í því átaki og allmargir hættu þá að reykja fyrir fullt og allt. Löggjöf um tóbaksvarnir hefur nú verið í gildi á íslandi um tveggja ára skeið, og hefur haft ómetanlegt gildi fyrir það starf sem unnið hefur verið. Ekki verður sagt annað en það sé vel raunhæft að stefna að reyklausu íslandi árið 2000. Herferð gegn reykingum er nú farin víða um heim. Flestar þjóðir hafa á síðustu árum lagt áherslu á tóbaksvarnir og tekið upp ýmsar baráttuaðferðir. Fyrir nokkru var grein um þessi mál í bandaríska vikuritinu Time. Þar kom fram, að í 40 fylkjum Banda- ríkjanna (af 50) eru reykingar á almannafæri takmarkaðar að einhverju leyti. í 33 fylkjum eru þær bannaðar í strætisvögnum, lestum og sporvögnum. í 17 fylkjum eru þær bannaðar á skrif- stofum og öðrum vinnustöðum. í einstöku fylkjum eru auk þess allskonar önnur ákvæði um tak- markanir á reykingum og tóbaks- auglýsingum. Og í hverri viku bætast við nýjar reglur, og eldri reglur eru hertar. Hér er ekki um það að ræða, að verið sé að hafa vit fyrir þeim sem reykja, þótt sumir haldi það. Og tilgangurinn er ekki fyrst og fremst sá að draga úr hinum gífurlega kostnaði þjóðfélagsins vegna sjúkdóma af völdum reyk- inga. Eða öðrum kostnaði vegna þeirra. Það er bara aukabónus. Hér er einfaldlega verið að gæta hagsmuna og réttinda þeirra sem ekki reykja. Auðvitað væri ekki þörf á löggjöf í þessu skyni ef reykingamenn virtu sjálfsagðan rétt þeirra sem ekki reykja og tækju tillit til þeirra. En stað- reyndin er sú að mjög margir reykingamenn gera það ekki. Þess vegna er þörf á harkalegum ráðstöfunum á meðan viðhorf almennings breytast nóg til þess að þau dugi ein. Að því mun vissulega koma. ( áðurnefndri grein í Time er m.a. fjallað um hættuna sem fólki stafar af reykingum annarra. Margir reykingamenn virðast ekki gera sér neina grein fyrir því, að þeir eru að valda öðru fólki heilsutjóni með framferði sínu. Almenn kurteisi og tillitssemi eru svo sérstakur kapítuli þar fyrir utan. Margir reykingamenn virð- ast ekki gera sér neina grein fyrir því, að reykjarsvæla veldur mörgu fólki verulegum óþæg- indum. Og sumir reykingamenn virðast vera að láta í Ijós van- máttuga andstöðu sína við bar- áttuna gegn reykingum (þeir kalla það stundum skerðingu á persónufrelsi!) með því að gera í því að valda öðru fólki óþæg- indum. Menn muna það, þegar leyft var að reykja öðrum megin við ganginn í farþegaflugvélum, en bannað hinum megin. Það var tilgangslítið að öðru leyti en því, að það var viðurkenning á ein- hverjum rétti. Nú er slíku hálfkáki löngu hætt I flugvélum, en það viðgengst ennþá annars staðar. Sum borð á veitingahúsum teljast reyklaus, en ekki önnur. Far- þegar Flugleiða kannast við svæluna í flugstöðinni á Reykja- víkurflugvelli. Þar er lágt undir loft, og loftræsting í lágmarki. Þeir sem ekki reykja geta kúldr- ast afsíðis, og einnig virðist vera bannað að reykja uppi í loftinu fyrir ofan borðið þar sem tékkað er inn. Einu sinni um daginn var starfsfólk spurt af hverju reykingar þar við afgreiðsluborðið væru látnar afskiptalausar, og þá var því svarað til, að ræða yrði við yfirmenn Flugleiða um það! Tölur liggja fyrir um árangurinn af baráttunni gegn reykingum í Bandaríkjunum. Hlutfall þeirra sem reykja er komið úr fimmtíu prósentum niður í tæp þrjátíu. Og af þeim sem reykja, vilja nærri níutíu prósent hætta. En sumir halda uppi vörnum fyrir frelsi til að gera öðru fólki miska, og halda því áfram að reykja á almannafæri með barnalegum storkunarsvip. Þessi börn héldu nýlega tombólu til styrktar Hjálparsveit skáta, og varð afraksturinn kr. 883,70. Þau heita Ari Kristinn Jóhannsson, Sigurbjörg Sigurjónsdóttir og Jóhann Sigur- jónsson. VÖRUVAL LJÓNINU SKEIÐI — SÍMI4211 BÚÐ SEM STENDUR UNDIR NAFNI ATVINNA Óska að ráða starfskraft til verslunarstarfa eftir hádegi. Upplýsingar gefnar í síma 4211.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.